Morgunblaðið - 14.03.2016, Side 4

Morgunblaðið - 14.03.2016, Side 4
FRÉTTASKÝRING Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Skiptar skoðanir eru á meðal flokks- manna stjórnarandstöðuflokkanna um tillögur stjórnarskrárnefndar til stjórnarskrárbreytinga. Píratar hafa til að mynda hafnað tillögum stjórn- arskrárnefndar í rafrænum kosning- um og munu ekki styðja þinglega meðferð. Nefndin hefur þó ekki skil- að tillögunum endanlega frá sér til forsætisráðherra. Tillögurnar fara til meðferðar á Alþingi þegar stjórnarskrárnefnd hefur farið yfir umsagnir sem bárust vegna þeirra og þarf lagafrumvarp um stjórnarskrárbreytingar að hljóta tvo þriðju hluta atkvæða þing- manna til að það fari í þjóðarat- kvæðagreiðslu, samkvæmt bráða- birgðaákvæði í stjórnarskránni sem gildir til 30. apríl 2017. Stefnt hefur verið að því að klára málið á þessu þingi, en Páll Þórhalls- son, formaður stjórnarskrárnefndar, áætlar að nefndin þurfi tíma allavega til mánaðamóta til þess að geta skilað tillögunum endanlega frá sér til for- sætisráðherra. Framhaldið er svo í höndum stjórnarflokkanna tveggja. Þrír fundir eru boðaðir hjá stjórn- arskrárnefnd í þessari viku, sá fyrsti á morgun. Samfylkingin ósátt við tillögur Frestur til þess að skila inn at- hugasemdum við frumvarpsdrögin rann út 8. mars sl. en drög að þremur frumvörpum til stjórnskipunarlaga voru birt hinn 19. febrúar sl. Tillög- urnar fela í sér ákvæði um náttúru- auðlindir Íslands og að þær tilheyri íslensku þjóðinni, um umhverfi og náttúru þar sem varúðar- og lang- tímasjónarmið verði höfð að leiðar- ljósi og þriðja frumvarpið felur í sér ákvæði um að 15 prósent kosninga- bærra manna geti knúið fram þjóð- aratkvæðagreiðslu um lög frá al- þingi. Samfylkingin hefur ekki tekið af- stöðu til þess hvort þingmenn flokks- ins styðji þinglega meðferð tillagna nefndarinnar. Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardag var afgerandi meirihluti fundarmanna mótfallinn tillögunum í núverandi mynd. Að sögn Valgerðar Bjarnadóttur, þingmanns og fulltrúa Samfylkingar í nefndinni, verður vinna nefndarinn- ar að hafa sinn gang. „Þetta er stað- an núna, við sjáum hvernig á að end- urskoða þetta með tilliti til umsagna sem nefndinni bárust um tillögurnar. Sjá hvernig málið rekst áfram og við tökum ákvarðanir eftir því sem ger- ist,“ segir hún í samtali við Morg- unblaðið. Hún segir að einhverjir flokks- menn hafi lýst mjög miklum varhug og óánægju með auðlindaákvæðið og aðrir með umhverfisákvæðið. „Þann- ig að þetta fékk bara ekki góðar undirtektir,“ segir hún og bætir við að allir séu sammála um að ákvæði um framsal ríkisvalds í þágu alþjóða- samninga vanti. „Við erum ekki með grundvöll í stjórnarskrá fyrir þátttöku í því al- þjóðastarfi sem við erum í,“ segir Valgerður og bætir við að það gangi ekki að stjórnvöld þurfi endurtekið að taka afstöðu til þess hvort verið sé að fara á svig við stjórnarskrá þegar þátttaka í alþjóðastarfi er annars vegar. Spurð hvernig Samfylkingin ætli að beita sér í málinu segir hún það ekki enn komið í ljós. „Ég get ekki svarað því hvernig á að fara með þessar umsagnir sem bárust nefnd- inni. Þetta verður að hafa sinn gang.“ Vinstri grænir og Björt framtíð ætla að öllum líkindum að styðja þinglega meðferð málsins þannig að þjóðin fái að eiga síðasta orðið. Báðir flokkar setja þann fyrirvara að nefndin sé ekki enn búin að skila af sér endanlegum tillögum. VG og BF styðja málið á þingi Brynhildur Pétursdóttir, þing- flokksformaður Bjartrar framtíðar, segir að þingmenn BF séu mjög sam- stiga í málinu. „Við teljum það til bóta að tillögurnar verði samþykktar en það er svo þjóðarinnar að ákveða það,“ segir Brynhildur. Hún bætir við að BF hefði eflaust viljað ganga lengra „en þetta er málamiðlun eins og oft þarf að gera,“ segir hún og bætir við: „Ég sé ekki hvernig það sé betra fyrir þjóðina að hafna þessu. Hvernig það geti leitt til þess að við gerum frekari breytingar.“ Óttarr Proppé, formaður BF, var ekki eins afdráttarlaus í máli sínu í samtali við Morgunblaðið. Sagði hann það mikilvægt að þjóðin fengi að kjósa um málið ef samstaða næð- ist um einhvers konar breytingu. Hann sagði breytingarnar eins og þær liggja fyrir núna vera til bóta, en sagði ekki tímabært að segja til um hver afstaða þingmanna BF yrði fyrr en vinnu nefndarinnar lyki. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG og fulltrúi flokksins í nefndinni, sagði í samtali við mbl.is að flokkurinn hefði talað fyrir stjórnarskrárbreyt- ingum og verið reiðubúinn til að taka þær í áföngum til þess að reyna að ná sátt um breytingarnar. „Það væri mjög sorglegt ef enn eitt kjörtímabilið líður án þess að neinar breytingar verði gerðar,“ sagði hún og bætti við að mikilvægt væri að nefndinni yrði gefið ráðrúm til að ljúka vinnu sinni áður en flokk- arnir fara að álykta um ákvæðin áður en þau eru komin til skila. Segir hún að þó svo að meginlína VG í málinu hafi verið að þjóðin fái að eiga síðasta orðið, þá eigi flokkurinn eftir að taka endanlega afstöðu til ákvæðanna þar sem þau eru ekki tilbúin. Morgunblaðið/Golli Flokksstjórnarfundur Tillögurnar mæta andstöðu hjá Samfylkingunni. Ekki samhljómur í stjórnarandstöðunni  Píratar styðja ekki þinglega meðferð stjórnarskrártillagna 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 PRAG 5.maí í 4 nætur Netverð á mann frá kr. 74.900 m.v. 2 í herbergi.HotelILF M/BÓK.AFSL. TIL 15. MARS Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð irá sk ilja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Frá kr. 74.900 m/morgunmat Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Fyrirhugaðar uppsagnir húsvarða í Ráðhúsi Reykjavíkur má draga til baka með aukinni starfsemi í húsinu og betri nýtingu, að sögn Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. „Borgar- stjórnarflokkur Sjálfstæðis- flokksins hefur lagt til að Upplýs- ingamiðstöð ferðamanna í Reykja- vík, Höfuðborgarstofa og skrifstofa menningar- og ferðamálasviðs verði flutt úr leiguhúsnæði í Geysishúsinu yfir í Ráðhús Reykjavíkur en með því aukum við starfsemina í húsinu til muna og getum tryggt áfram störf þeirra húsvarða sem fyrir- hugað er að segja upp í sparnaðar- skyni.“ 370 þúsund ferðamenn Gífurleg starfsemi er í kringum Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík og gegnir hún mikilvægu hlutverki fyrir ferðaþjónustu í borg- inni og á landsvísu. Kjartan segir að um 370 þúsund erlendir ferðamenn hafi heimsótt upplýsingamiðstöðina á síðasta ári. „Í dag er orðið nokkuð þröngt um starfsemina og því æskilegt að koma henni fyrir í stærra og hent- ugra húsnæði. Margt bendir til að það henti vel að flytja Upplýsinga- miðstöð ferðamála í Ráðhús Reykja- víkur. Húsið er á góðum stað í Mið- bænum og var það beinlínis hannað með það í huga að straumur fólks lægi í gegnum húsið. Þannig er t.d. aðalgangur Ráðhússins hannaður eins og göngugata með dyrum í þrjár áttir: suður, norður og austur.“ Mikill sparnaður Ljóst er að verulegar fjárhæðir myndu sparast með því að færa starfsemina í húsnæði í eigu Reykja- víkurborgar, að sögn Kjartans og myndi hluti sparnaðarins geta varið störf þeirra húsvarða sem segja á upp. Hægt að spara og bjarga störfum húsvarða  Sjálfstæðisflokkurinn vill aukna starfsemi í Ráðhúsið Kjartan Magnússon Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Segja má að kvikmyndaáhuginn hafi kviknað þegar ég keypti mér 8 mm kvikmyndatökuvél árið 1963. Þá var ég að þjálfa krakka á Selfossi í íþróttum, aðallega fót- bolta. Svo fórum við í mikið keppnisferðalag til Húsavíkur sem tók tvo til þrjá daga. Ég tók þetta upp og þetta er mikil gersemi í dag,“ segir kvikmyndagerðarmað- urinn Marteinn Sigurgeirsson sem hefur um árabil tekið og safnað saman myndskeiðum af íþrótta- starfi sem og myndskeiðum af uppbyggingu Kópavogsbæjar auk fleiri verkefna. Marteinn starfaði um áratuga- skeið í Myndveri grunnskólanna en hefur nú látið af störfum sök- um aldurs. Voru viðstaddir 1940 Marteinn hefur safnað mynd- skeiðum frá landsmótum UMFÍ. Myndskeiðin ná allt til ársins 1946 og hefur hann meðal annars gert tvær sögulegar myndir, aðra um Ungmennafélag Íslands, sem sýnd var í tilefni af 100 ára afmæli UMFÍ árið 2007, og aftur þegar landsmótin urðu 100 ára árið 2009. Svo árið 2013 tók Marteinn að sér fyrir tilstilli HSK að taka saman myndefni um þau landsmót sem farið hafa fram á Suðurlandi. Við vinnsluna hefur hann tekið viðtöl og meðal annars náðist í tvo við- mælendur sem tóku þátt og voru áhorfendur á landsmótinu í Haukadal árið 1940. „Um er að ræða klukkutíma mynd með viðtölum og myndskeið- um. Hugmyndin er að sýna þetta í sumar,“ segir Marteinn. Mynd um Þorstein loks sýnd Söfnun á myndskeiðum af lands- mótum hófst skömmu fyrir síðustu aldamót. „Þetta byrjaði um 1997 þegar ég fór að safna myndefni fyrir UMFÍ. Þá var mót í Borg- arnesi og við sýndum efni frá landsmótinu á Hvanneyri árið 1946. Þorsteinn Einarsson, sem var íþróttafulltrúi ríkisins í 40 ár, lýsti því sem fyrir augu bar, en myndefnið var að sjálfsögðu þög- ult. Þetta tókst býsna vel og ég spjallaði meira við hann. Fljótlega eftir það ákvað ég að gera mynd um hann,“ segir Marteinn. Þorsteinn lést árið 2001 en flest viðtölin um ævi hans tók Marteinn árið 2004 og það síðasta 2010. Hefur myndin nú verið gefin út. „Meiningin var að frumsýna myndina árið 2013 á landsmótinu á Selfossi en það tókst ekki,“ segir Marteinn. Myndin hafði verið í skúffu í nokkur ár en nú er vinnu við hana lokið. Gersemasöfn- un í rúm 50 ár  Fékk átta millimetra vél árið 1963 Vélin Marteinn heldur á 8 mm kvikmyndatökuvél sem hann fékk árið 1963.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.