Morgunblaðið - 14.03.2016, Síða 6

Morgunblaðið - 14.03.2016, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Aukið áreiti enskunnar í umhverfi barna á máltökuskeiði er líklegt til að breyta og rýra orðaforða og kunnáttu þeirra til að nota málið. Það kann einnig að leiða af sér tví- tyngi sem getur við ákveðnar mál- félagslegar aðstæður verið fyrsta skrefið í tungumáladauða. „Ensk- an er alls ráðandi í hinum staf- ræna heimi. Snjalltækjabylting- unni hefur því fylgt aukin enskunotkun í samfélaginu. Þar eru ung börn í sérstökum áhættu- hópi því þau eru einstaklega mót- tækileg fyrir máli,“ segir Sigríður Sigurjónsdóttir, sem er prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands. Fjöldi fræðimanna flutti erindi um ýmis efni á Hugvís- indaþingi Háskóla Íslands sem haldið var fyrir helgina. Þar var meðal annars fjallað um málvís- indi en nú – eins og áður – er framtíð íslenskunnar í brenni- depli. Máltaka íslenskra barna og snjalltækjavæðing nútímans var yfirskrift erindis Sigríðar. Þar nefndi hún hve börn eru móttæki- leg fyrir máli á fyrstu æviárum sínum. Móttækileg fyrir máli „Fyrstu sex árin er mikilvægt að nýta til að efla málþroska og málskilning barna. Aldrei á lífs- leiðinni eru þau jafn móttækileg fyrir máli. Því er mikilvægt að börn á leikskólaaldri hafi góðar málfyrirmyndir og fái nauðsyn- lega örvun,“ sagði Sigríður í sam- tali við Morgunblaðið. Það máluppeldi sem virðist árangursríkast, segir Sigríður, er að foreldrar og aðrir gefi sér tíma til að tala við börn sín í önnum hversdagsins, lesi fyrir þau – og útskýri fyrir þeim orð sem þau skilja ekki. „Börn sem eru heil- brigð og alast upp við eðlilegar aðstæður tileinka sér grundvall- aratriði móðurmálsins að miklu leyti sjálf. Það hversu góðir mál- notendur þau verða fer þó eftir málfyrirmyndum þeirra í æsku.“ Íslenskunni er stöðugt ögrað og mestu efasemdamennirnir telja hana ekki eiga sér langa framtíð. Endur fyrir löngu var sagt að rokktónlist gengi af þjóðtungunni dauðri. Sjónvarpið átti líka að vera ógn, illa skrifaðar bækur og svo framvegis. Í seinni tíð beinast sjónir þó helst að því hvaða áhrif stafrænir miðlar og snjalltæki hafi, sem bjóða upp á gagnvirk samskipti við notendur. Sítengd alþjóðlegum menningarheimi Sigríður segir stafræna tækni jákvæða á margan hátt. Hún geti þó dregið úr því að börn og full- orðnir tali saman en það sé nauð- synleg forsenda þess að börn nái valdi á móðurmáli sínu. „Hættan fyrir íslenskuna felst meðal annars í því að snjalltækjabyltingin leiðir af sér aukna notkun ensku. Fólk er sí- tengt alþjóðlegum menning- arheimi sem er að verulegu leyti á ensku,“ segir Sigríður. Hún telur nauðsynlegt að ensk áhrif á ís- lensku og netnotkun íslenskra barna með tilliti til kunnáttu í ís- lensku máli verði rannsökuð betur og hefur hún ásamt fleirum sótt um styrk til Rannís til slíks verk- efnis. Ákveðnar staðreyndir liggja þó fyrir frá árinu 2013, það er að 62% íslenskra barna byrja að nota netið á aldrinum fimm til átta ára og 14% yngri en fjögurra ára. „Breytingar með aukinni enskunotkun geta haft þau áhrif að íslenskan missi notkunarsvið. Dæmi þar um geta verið að þeir sem spila tölvuleiki tali um þá á ensku en ekki á íslensku. Breyt- ingar á orðaforða hafa ekki eins alvarlegar afleiðingar í för með sér þótt enskuslettur séu hvim- leiðar. En ef enskan verður ráð- andi á sumum sviðum – eins og kannski er orðið – er íslenskan í hættu,“ segir Sigríður. Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í íslenskri málfræði við HÍ Morgunblaðið/Golli Íslenska Breytingar á orðaforða hafa ekki alvarlegar afleiðingar í för með sér, segir Sigríður hér í viðtalinu.  Sigríður Sigurjónsdóttir fæddist árið 1960. Hún er með cand. mag.-próf í íslenskri mál- fræði frá Háskóla Íslands og doktorspróf í málvísindum frá Kaliforníuháskólanum í Los Angeles.  Síðustu tvo áratugina hefur Sigríður starfað við Háskóla Ís- lands þar sem hún er nú pró- fessor. Eiginmaður hennar er Eiríkur Steingrímsson og eiga þau tvær dætur. Hver er hún? Heilbrigð börn tileinka sér móðurmálið sjálf Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Jóhannes M. Gunnarsson, læknir og læknisfræðilegur verkstjóri um byggingu Landspítala, segir yfirlýs- ingar síðustu daga um byggingu nýs Landspítala á Vífilsstöðum, engu breyta um byggingu Landspítala við Hringbraut. Að sögn Jóhannesar þolir bygging spítalans enga frekari bið, ekki sé rúm fyrir nýja staðarvalsgreiningu. „Það er náttúrulega algjör kata- strófa að hugsa sér það. Allur und- irbúningur, ákvarðanataka og ný hönnun tekur tíma. Ef menn ætla að bíða eftir annarri byggingu, þá erum við að tala um átta til tíu ár. Að óbreyttu er ekki möguleiki fyrir spít- alastarfsemina að lifa þann tíma af,“ segir hann. Röskun á starfsemi spítalans Byggingar við sjúkrahótel við hlið Landspítalans við Hringbraut hafa valdið nokkurri röskun á starfsemi spítalans síðustu vikur. Að sögn Jó- hannesar yrði ekki jafnmikil röskun af framkvæmdum við stærstu ný- bygginguna sem yrði fjær. „Það verða ekki byggð hús öðruvísi en að eitthvað heyrist. Sá staður þar sem fram- kvæmdir eru núna er næstur íverustöðum starfsfólks og sjúklinga,“ aðal- byggingin verði að auki neðar í landinu og fram- kvæmdir valdi því minni röskun. Spurður um eldri byggingarnar og hvort þær nýtist áfram undir þung tæki og hátæknistarfsemi, segir Jó- hannes að ætla megi að þær verði nýttar undir létta starfsemi. Endurbætur nauðsynlegar „Í fyrsta áfanganum er gert ráð fyrir að þyngri og tæknilegri starf- semi verði færð yfir í nýja hlutann sem verður kjarni til framtíðar í nýj- um spítala,“ segir hann, gamli spít- alinn verði fyrir léttari starfsemi. Hann þurfi þó á endurbótum að halda, húsin séu gömul og illa farin. Meðal annars lýsti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráð- herra, því yfir í pistli sínum að spítali á Vífilsstöðum væri besti kosturinn, en Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, hafði þá gefið út að bær- inn væri tilbúinn í samstarf við stjórnvöld. Í grein Sigmundar kom meðal ann- ars fram að byggingarframkvæmdir við Hringbraut yllu verulegri röskun á starfsemi spítalans, slík röskun yrði ekki á Vífilsstöðum. Einnig að fjár- hagur ríkisins leyfði nú frekar en áð- ur stórframkvæmdir á borð við ný- byggingu. Sigmundur telur að auki að bygging spítala við Hringbraut sé hægvirk. Færir hann rök fyrir því að bygging nýs spítala gangi hraðar fyr- ir sig og sé mun hagkvæmari. Bið eftir nýjum spítala yrði enn lengri  Bið eftir spítala á Vífilsstöðum átta til tíu ár  Starfsemi spítalans lifir ekki af nýja staðarvalsgreiningu Jóhannes M. Gunnarsson Jón Birgir Eiríksson Anna Sigríður Einarsdóttir Alþýðusamband Íslands og Reykja- víkurborg skrifuðu á laugardag und- ir viljayfirlýsingu um uppbyggingu 1000 nýrra íbúða sem leigðar verði út til tekjulágra fjölskyldna og ein- staklinga. Skrifað var undir yfirlýsinguna í Hörpu í gær þar sem aldarafmæli ASÍ var fagnað. Leita til aðildarfélaganna Íbúðafélag verður stofnað um íbúðirnar en að sögn Gylfa Arn- björnssonar, forseta ASÍ, mun ASÍ leggja 10 milljónir króna til í stofnfé fyrir félagið og leita til aðildarfélaga sinna um að þau veiti félaginu víkj- andi lán upp á 100 milljónir. „10 milljónir er ekki stór fjárhæð en hún dugar til að vera með stofnfé í svona samvinnufélagi og þegar því er líka veitt bakland í formi víkjandi láns þá gerir það félagið rekstrar- hæft svo það geti tekið þessi erfiðu spor til að byrja með,“ segir hann. Lagasetning meginforsenda Viljayfirlýsingin verður unnin á grundvelli væntanlegra laga um al- mennar íbúðir, sem nú liggur fyrir Alþingi og er háð fyrirvara um sam- þykkt þess og samþykki stjórnvalda vegna stofnframlags ríkisins. „Félagar okkar í BSRB hafa ákveðið að fara í þetta með okkur. Það er vilji í okkar baklandi að fara í þetta. Nú munum við halda áfram að undirbúa samþykktir fyrir félagið. Borgin er búin að lýsa yfir sínum vilja, en það þarf að ljúka gerð lag- anna og semja reglugerðir. Við leggjum mikla áherslu á að alþingi hraði þeirri vinnu sem eftir er og við viljum að þetta fari í gang sem allra fyrst,“ segir hann. Að sögn Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, falla áform ASÍ full- komlega að húsnæðisstefnu og hús- næðisáætlun borgarinnar, sem miði að uppbyggingu fjölbreytts húsnæð- is á viðráðanlegu verði. „Þessi yfirlýsing markar tímamót. Það eru áratugir síðan verkalýðs- hreyfingin hefur komið að byggingu húsnæðis á viðráðanlegu verði með jafn afgerandi hætti. Það er sérstakt fagnaðarefni,“ segir hann. 1000 íbúðir fyrir lágtekjuhópa  Samstarf Reykjavíkurborgar og ASÍ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Aldarafmæli Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Aðalfundur Spítalans okkar og málþing að honum loknum. Þriðjudaginn 15. mars 2015 frá kl. 16.00-18.00 Icelandair Hótel Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll Aðalfundur kl. 16.00 Venjuleg aðalfundarstörf Málþing Spítalans okkar kl. 16.50 Sameinaðir kraftar í Vatnsmýrinni. Setning. Þorkell Sigurlaugsson, varaformaður Fyrirlestrar: Mikilvægi samstarfs Háskóla Íslands og Landspítala. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands „Það á enginn eftir að heimsækja þig Sophía“. Klara Guðmundsdóttir, læknanemi Dýnamík í Vatnsmýrinni. Sara Þórðardóttir Oskarsson, listakona Lokaorð. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis Fundarstjóri. Ásta Möller, fyrrverandi alþingismaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.