Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 Sti l l ing hf. | S ími 520 8000 | www.st i l l ing . is | st i l l ing@sti l l ing . is Skíðabogar Fást í verslun okkar að Bíldshöfða 10 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beiðekki boðanna þegar fréttir höfðu verið sagðar af fram- boði Magnúsar Orra Schram til formanns Samfylkingarinnar og lýsti andstöðu sinni. Hún telur að eftir að- ild Magnúsar að landsdómsmálinu sé hann ekki til forystu fallinn.    Þetta má til sannsvegar færa. Framganga frambjóð- andans var ekki mjög geðsleg. Hann vildi ákæra þrjá af fjórum og var Ingibjörg Sól- rún þeirra á meðal.    En Magnús er ekkieini formanns- frambjóðandi Sam- fylkingarinnar sem á vafasama fortíð í þessu efni.    Helgi Hjörvar vildiákæra einn af fjórum en að vísu ekki Ingibjörgu Sólrúnu. Tæpast skiptir það þó máli í þessu sambandi.    Helgi, líkt og Magnús, stóð aðákæru í landsdómsmálinu og báðir fóru að auki klækjastjórn- málaleiðina.    Núverandi formanni, Árna PáliÁrnasyni, hafa vissulega verið mislagðar hendur í mörgu og flokk- urinn hefur ekki beinlínis blómstrað undir forystu hans.    En Árni Páll var þó ærlegri enmótframbjóðendurnir tveir þegar á reyndi í landsdómsmálinu. Jafnvel í kosningu innan Samfylking- arinnar hlýtur það að hafa nokkurt vægi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Formenn og frambjóðendur STAKSTEINAR Magnús Orri Schram Helgi Hjörvar Árni Páll Árnason Veður víða um heim 13.3., kl. 18.00 Reykjavík 9 rigning Bolungarvík 11 skýjað Akureyri 9 skýjað Nuuk -10 skýjað Þórshöfn 8 þoka Ósló 3 heiðskírt Kaupmannahöfn 2 skýjað Stokkhólmur 2 skýjað Helsinki 0 skýjað Lúxemborg 8 léttskýjað Brussel 8 heiðskírt Dublin 12 skýjað Glasgow 12 léttskýjað London 7 heiðskírt París 10 heiðskírt Amsterdam 7 heiðskírt Hamborg 2 skýjað Berlín 2 skýjað Vín 5 alskýjað Moskva 0 heiðskírt Algarve 16 heiðskírt Madríd 16 heiðskírt Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 12 léttskýjað Róm 13 léttskýjað Aþena 15 skúrir Winnipeg 6 súld Montreal 6 léttskýjað New York 15 heiðskírt Chicago 8 skúrir Orlando 27 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:48 19:27 ÍSAFJÖRÐUR 7:54 19:31 SIGLUFJÖRÐUR 7:37 19:13 DJÚPIVOGUR 7:18 18:56 „Ég tel með öllu ótímabært að gefa út yfirlýsingar um að hvalveiðum verði hætt,“ segir Sigurður Ingi Jó- hannsson, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, en bandarísk stjórn- völd binda vonir við að íslensk stjórnvöld muni hugleiða það alvar- lega að hætta hvalveiðum í atvinnu- skyni. Morgunblaðið óskaði viðbragða bandaríska sendiráðsins á Íslandi við þeirri ákvörðun Hvals hf. að hætta hvalveiðum í sumar. Í svari sendiráðsins var litið á tilkynningu Hvals sem jákvæða þróun. Ítrekað var jafnframt að Bandaríkin styddu bann Alþjóðahvalveiðiráðsins við hvalveiðum í atvinnuskyni. „Íslenska ríkið hefur nú tækifæri til að sýna að Ísland sé leiðandi land í málefnum tengdum sjávarvernd með því að sporna við hvalveiðum í atvinnu- skyni og viðskiptum með hvalaafurð- ir,“ sagði m.a. í svari sendiráðsins. Sigurður Ingi segist ekki ætla að tjá sig sérstaklega um yfirlýsingar sendiráðsins. Íslensk stjórnvöld bíði nú eftir ráðgjöf Hafró um hve marg- ar langreyðar og hrefnur sé óhætt að veiða. „Við byggjum afkomu okkar á því að nýta auðlindir hafsins með sjálf- bærum hætti og þá allar tegundir. Mér finnst mikilvægt að sá réttur sé virtur enda förum við að alþjóðalög- um,“ segir Sigurður Ingi. Hann bendir á að Hvalur hf. hafi ekki treyst sér í veiðarnar vegna tæknilegra erfiðleika í Japan. Lang- an tíma taki að koma hvalaafurðum á markað og ólíklegt sé að annar aðili hefji hvalveiðar við þessar aðstæður. „Þó að við höfum þennan rétt til hvalveiða, og ef kvóti verður gefinn út, þá er ólíklegt að hann verði nýtt- ur nema aðstæður í Japan breytist,“ segir ráðherra ennfremur. bjb@mbl.is Beðið eftir ráðgjöf um hvalveiðar  Sjávarútvegsráðherra segir mikilvægt að réttur til sjálfbærra veiða sé virtur Hætt hefur verið við uppboð á þremur fasteign- um á Hlíðarenda en Sýslumaður- inn í Reykjavík auglýsti fyrir helgi fasteign- irnar á Hlíða- renda 2, 4 og 14 til uppboðs þar sem gerðarbeiðandi var Reykjavík- urborg. „Þetta var komið til vegna þess að fasteignagjöld á íþróttamann- virki voru vitlaust reiknuð,“ segir Brynjar Harðarson, framkvæmda- stjóri Valsmanna hf. Fasteignamat á Hlíðarenda 14 er 188 milljónir króna. Erfiðlega gekk fyrir Valsmenn að fá svör hjá ÍTR og borginni um fasteignagjöldin og því fór málið í þennan farveg. Brynjar segir að þegar uppboð hafi verið boðað hafi tekist að fá betri svör og uppboðið því verið afturkallað. „Það var búið að berjast í þessu í tvo til þrjá mánuði að fá þetta leið- rétt en það fengust fá svör og því fór þetta svona. En hjólin fóru svo að snúast og uppboðið því aftur- kallað.“ benedikt@mbl.is Brynjar Harðarson Hætt við uppboð  3 fasteignir Vals auglýstar á uppboði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.