Morgunblaðið - 14.03.2016, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.03.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 Þegar þú ert að leita að gluggatjöldum er Luxaflex® augljós kostur. Með yfir 60 ára reynslu af markaðnum bíður Luxaflex® upp á mikil gæði og frábært úrval. Kíktu á okkur í Zenus og fáðu ráðgjöf um réttu gluggatjöldin fyrir þitt heimili. Smiðjuvegi 9 • Sími: 554 2450 zenus@zenus.is • zenus.is Augljós kostur 5 ára ábyrgð Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Kristjana er menntaðurkennari og kerfisfræð-ingur og hefur starfaðvið hugbúnaðarþróun síðustu ár, lengi vel hjá HugAx og síðar Advania. Kristjana telur að rekja megi þríþrautaráhugann til heilsueflingar sem HugAx stóð fyrir innan fyrirtækisins fyrir um það bil 9 árum. „Í tengslum við heilsueflinguna var stofnaður hlaupahópur og ég fylgdist með honum út um gluggann á skrifstofunni og hugsaði með sér hvað þetta væri skemmtilegt,“ segir Kristjana, sem sá þó ekki sjálfa sig fyrir sér sem hluta af hópnum. „Ég hafði greinst með bein- þynningu og var oft að brotna og var því sett á lyf. Ég var orðin hvekkt og hætt voðalega mörgu, ég hafði til dæmis haft gaman af að fara á skíði, en eftir eitt fall í brekk- unni þurfti ég að hunskast heim með brákað rif.“ Kristjana náði þó að telja í sig kjark og spyrja sam- starfskonu sína, Bryndísi Bald- ursdóttur sem leiddi hlaupahópinn, hvort hún mætti vera með, eins og hún orðar það sjálf. „Mér fannst ég þurfa að biðja um leyfi, hugarfarið var bara þannig, mér fannst ég svo gömul.“ Lærði að hlusta á sjálfa sig Kristjana hafði ekki hreyft sig reglulega í rúmlega 30 ár og byrjaði því á að hlaupa milli ljósastaura. „Ég var í sveit þegar ég var krakki og hljóp þar á eftir skepnum og smalaði. Ég hafði gaman af því að hreyfa mig og það hefur ekkert Lífið snýst um að vera óhræddur Kristjönu Bergsdóttur fannst hún vera orðin of gömul þegar hún byrjaði í hlaupa- hóp í vinnunni, þá 55 ára gömul. Hún hafði ekki stundað reglulega hreyfingu í mörg ár en ákvað að slá til. Í dag er hún 63 ára og hefur tekið þátt í fjölmörgum fjallahlaupum og lokið þremur Járnmönnum. Kristjana breytti lífsmunstri sínu og segir mikilvægt að vera vakandi yfir því hvað manni finnst gaman að gera. Ljósmynd/Arnold Björnsson Kraftur Kristjana hefur alltaf verið góður sundmaður þó svo að hlaupin séu hennar sterkasta hlið. Kristjönu finnst best að synda snemma á morgnana. Simpansinn Dajo fagnaði eins árs af- mæli sínu í síðustu viku og af því til- efni færðu starfsmenn dýragarðsins í Gelsenkirchen í Þýskalandi honum dýrindis afmælisköku. Dajo var hins vega ekki lengi í paradís þar sem annar simpansi, eldri og stærri, gleypti kökuna í sig, nánast í heilu lagi. Starfsmenn dýragarðsins gátu lítið sem ekkert gert í öllum hama- ganginum en Dajo fékk þó einhverjar leifar af kökunni, sem innihélt meðal annars sultu og nóg af banönum. Ekki er víst hvort hrekkjusvínið, eða hrekkjuapinn, fær afmælisköku þeg- ar hans dagur rennur upp. Simpansinn Dajo lenti í hrakningum fyrsta afmælisdaginn Hrekkjusvín át afmæliskökuna Ljósmynd/AFP AFP Átvagl Simpansanum virtist vera alveg sama um afmælisbarnið. Afmælisapi Dajo þurfti að láta sér nægja að éta leif- arnar af kökunni. Það að líða vel er hið ákjósan-legasta ástand enda eyðamargir miklu púðri, tíma og peningum í að hámarka þá upplifun og leita að hamingjunni. Það er auðvitað sjálfsagt og gott markmið að vera hamingjusamur enda ef- umst við lítið um gildi jákvæðra til- finninga fyrir líf okkar. Það sama er hins vegar ekki allt- af sagt um neikvæðar tilfinningar. Á þeim liggur oft þungur dómur. Okkur finnst við sjálf og ekki síður hinir vera of neikvæðir, ekki geta fyrirgefið eða missa sig í reiði eða kvíða þegar önnur viðbrögð væru ásættanlegri eða þroskaðri. Það að líða illa hefur oft á sér örlítið illt orð og er jafnvel stimplað óverð- skulduðum stimpli veikleika eða ójafnvægis. Reiði er t.d. ein af for- dæmdum tilfinningum dauðasynd- anna sjö. Dauðasyndum! Já það er nú aldeilis að það hlýtur að vera rangt að vera reiður! Eða er það? Merking tilfinninganna Hvað er að gerast hjá okkur þegar okkur líður illa? Hvaða merkingu hafa erfiðar tilfinningar? Getur jafnvel verið að þessar tilfinningar séu okkur gagnlegar á einhvern hátt? Tilfinningar hafa miklu víðari merkingu og tilgang en einungis að tjá það hvernig okk- ur líður. Þær eru ekki bara við- bragð við því sem gerist sem gufar svo upp. Þegar okkur finnst okkur ógnað upplifum við ótta og þessi ótti hvet- ur okkur til þess að bregðast við, til þess að laga aðstæðurnar, svo við forðum okkur eða tökumst á við hættuna eftir því sem við á. Óttinn berst gegn því sem við viljum ekki, hann er drifkraftur sem hvetur og hreyfir okkur til að gera það sem þarf til að eyða ógninni. Gagnlegt að hlusta En þegar við finnum fyrir kvíða við upphaf nýrrar vinnuviku? Hvað getur sú kvíðatilfinning verið að tjá okkur um aðstæður, vinnuálag, verkefni eða samskipti á vinnu- staðnum? Gæti kvíðinn mögulega verið að segja okkur eitthvað sem við þurfum að heyra? Um eitthvað sem við þurfum að breyta, aðlaga eða takast á við? Gæti verið gagn- legt að hlusta og bregðast við? Það sama á við í óendanlega mörgum aðstæðum. Þegar við verð- um óörugg þegar okkur finnst maki okkar ekki sýna okkur athygli. Þegar við verðum döpur og hugs- um til þess sem við hefðum viljað að væri. Það er nefnilega svo merkilegt með allar þessar tilfinn- ingar, þægilegar eða óþægilegar. Þær segja okkur svo margt sem gott er að heyra.  Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafar- þjónusta, Skeifunni 11a, Reykjavík. www.heilsustodin.is Morgunblaðið/Ásdís Líðan Vanlíðan er oft ómaklega talin til marks um ójafnvægi og veikleika. Það góða við það vonda Heilsupistill Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.