Morgunblaðið - 14.03.2016, Page 13

Morgunblaðið - 14.03.2016, Page 13
Í mark Kristjana keppti í sínum þriðja Járnmanni í Flórída í fyrra. Hún lauk keppni á 16 klukkutímum og 38 mínútum, og varð 11. í sínum aldursflokki. breyst.“ Bryndís veitti Kristjönu góða leiðsögn, en hún er fyrsta ís- lenska konan sem hefur tekið þátt í Járnmanni eða þríþraut. „Hún opn- aði fyrir mér þá sýn að maður á ekki að hlusta á neinn annan en sjálfan sig. Ég hafði gaman af því að hlaupa og þetta breytti lífsmunstrinu, börn- in voru uppkomin en ég hélt í ýmsar venjur, eins og að elda mat öll kvöld. En ég hætti þessu þegar ég fór að æfa á kvöldin í staðinn.“ Kristjana fór fljótlega að skrá sig í hvert hlaupið á fætur öðru og meðal keppna sem hún hefur tekið þátt í er Landvætturinn, sem sam- anstendur af fjórum þrautum, einni í hverjum landshluta. „Ég og Hall- dóra Gyða Proppé, vinkona mín, skráðum okkur í Landvættinn, keyptum okkur skíði og æfðum okk- ur þrisvar fyrir Fossavatnsgönguna. Við hlupum svo bara með skíðin á fótunum og vorum ekki komnar með góða tækni,“ segir hún og hlær. Kristjana hefur auk þess þrisv- ar sinnum hlaupið Laugaveginn, tekið þátt í hálfum Járnmanni og ýmsum fjallahlaupum hérlendis og erlendis og hlaupið maraþon á veg- um Félags maraþonhlaupara, auk maraþona í París og Boston. Hún á hins vegar Reykjavíkurmaraþonið eftir. Þegar Kristjana varð sextug langaði hana að gera eitthvað nýtt. „Mér hefur alltaf fundist gaman að synda og ég er ágætis sundmaður.“ Vorið 2012 kynnist Kristjana Þríkó, þríþrautarfélagi Kópavogs, þar sem hún æfir í dag. Þá kom upp sú hug- mynd að taka þátt í þríþraut. Í nóv- ember sama ár tók Kristjana þátt í sinni fyrstu þríþraut, ásamt félögum sínum Halldóru Gyðu og Ásgeiri Elíassyni. Fyrir valinu varð Coz- umel-þríþrautin í Mexíkó. Í ágúst 2014 tók Kristjana þátt í sínum öðr- um Járnmanni, þá í Svíþjóð og í nóvember í fyrra hélt hún til Flór- ída ásamt fimm vinkonum sínum úr Þríkó. Eins og fínasta árshátíð „Við litum á Járnmanninn í Flórída sem spennandi skemmtun. Að fara í svona keppni er eins og að fara á árshátíð. Það mæta allir í sínu fínasta pússi með flottu hjólin sín. Á keppninni er svo sýning þar sem verið er að sýna allar nýjustu og flottustu græjurnar sem maður þarf og þarf ekki,“ segir Kristjana og skellir upp úr. Keppnin hefst á 3,9 km sundi og í Flórída er synt í sjón- um. „Það voru töluverðar öldur en það gerði sundið bara meira skemmtilegt.“ Eftir sundið tók hjól- ið við. „Það var ágætis veður en strax daginn eftir kom köld úrhell- isrigning og vindur. En það þarf að taka því sem að höndum ber, en maður er raunar í vernduðu um- hverfi, með drykkjarstöðvar og við- gerðarbíla.“ Eftir að hafa hjólað 180 kílómetra tekur lokahlutinn við, heilt maraþon. „Ég var orðin þreytt í hlaupinu, en þá hægði ég bara á mér og spjallaði við næsta mann. Maður hittir ólíklegasta fólk í þess- um keppnum.“ Kristjana er ein af fjölmörgum konum sem æfa þríþraut hér á landi og taka þátt í Járnmanni. Konur í þríþraut telja réttara að nota orðið Járnmaður en Járnkarl. „Við erum svo heppin að eiga þetta orð: Maður, yfir bæði kyn. Við höfum sent inn ábendingu til ÍSÍ og þessi notkun er að síast inn hjá fólki held ég.“ Hlakkar til að færast upp um aldursflokk Keppt er í aldursflokkum í Járnmanni og mun Kristjana færast upp um einn flokk bráðlega. „Á næsta ári færist ég upp í 65-69 ára og mig langar til að keppa að minnsta kosti einu sinni í þeim flokki, það er mitt markmið.“ Fyrst tekur við fjallahlaup í Evrópu í vor og í sumar langar hana að taka þátt í Íslandsgarpnum. Keppnin er sam- sett af þremur þrautum: Sjö tinda hlaupi í Mosfellssveit, Jök- ulmíluhlaupinu og Íslandsmótinu í víðavatnssundi. „Þetta snýst bara um að vera vakandi fyrir því hvað er gaman að gera og vera óhræddur. Það er hægt að laga markmiðin að þeim frí- tíma sem maður hefur úr að spila til æfinga.“ Kristjana segist þó þurfa að passa sig að æfa ekki of mikið. „Ég mæli æfingarnar í klukkutím- um frekar en vegalengd. Þegar ég æfi sem mest þá syndi ég fimm tíma, hleyp sex tíma og hjóla sjö tíma, yfir alla vikuna. Ég vil ljúka æfingunni með það í huga að ég get æft daginn eftir.“ Við svona mikla æfingar segir Kristjana að verkir séu óhjá- kvæmilegir, að minnsta kosti hjá þeim sem eru að byrja. „Ég hætti aldrei, en ég hægi kannski á mér. Ég fann fyrir verkjum í ökklum fyrsta árið, en ég vissi að það væri ekkert að, ég þurfti bara að styrkja mig.“ Eftir að Kristjana byrjaði að æfa af kappi finnur hún minna fyrir áhrifum beinþynningarinnar og er hætt á lyfjunum. „Beinþéttnin er meiri og það er langt síðan ég brotnaði, en það er líka af því ég er hætt að detta, ég er orðin mun sterkari. Ég lét þetta hefta mig áður en ég geri það ekki lengur, þó að slysin geti auðvitað orðið. Ég rist- arbrotnaði til dæmis í fyrsta mara- þoninu mínu.“ Kristjana segir að hreyfingin smiti frá sér og áður en hún vissi af var öll fjölskyldan komin af stað. „Það er nóg að einn byrji. Börnin mín hreyfa sig öll á sinn hátt og maðurinn minn fór að hjóla og hefur mikla ánægju af því.“ Kristjana hvetur því alla til að stunda ein- hvers konar hreyfingu, það sé aldrei of seint að byrja. „Ef fólk hefur ein- hvern tímann haft gaman af að hreyfa sig er allt í lagi að hafa hvílt sig í 30-40 ár.“ Sexurnar Margrét Valdimarsdóttir, Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé, Irina Óskarsdóttir, Guðrún B. Geirsdóttir, Kristjana Bergsdóttir og Sigríð- ur Sigurðardóttir æfa allar hjá Þríþrautarfélagi Kópavogs, Þríkó. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.volkswagen.is Transporter hefur fylgt kynslóðum af fólki sem hefur þurft á traustum og áreiðanlegum vinnuþjarki að halda sem leysir krefjandi og fjölbreytt verkefni. Hann er framhjóladrifinn með fullkominni stöðugleikastýringu og spólvörn en er einnig í boði með fjórhjóladrifi og sjö þrepa sjálfskiptingu. Nýr Volkswagen Transporter kostar frá 4.590.000 kr. (3.701.613 kr. án vsk) Byggir á traustum grunni www.volkswagen.is AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu. Nýr Volkswagen Transporter Þríþraut er íþrótt þar sem keppt er í sundi, hjólreiðum og hlaupi í mismunandi vega- lengdum. Þríþrautafólk keppir um sem bestan tíma í grein- unum þremur og telst tíminn á milli greinanna með í heildar- tímanum. Þríþraut reynir mikið á þol keppenda og þá sérstak- lega lengri þríþrautirnar. Fyrstu þríþrautirnar voru haldnar um 1920 í Frakklandi og árið 2000 var fyrst keppt í þríþraut á Ólympíuleikum. Járnmaður er ein tegund þrí- þrautar, en helstu vegalengdir sem keppt er í eru:  Sprettur: 400 m sund, 10- 12 km hjól og 2-3 km hlaup.  Hálfólympísk: 750 m sund, 20 km hjól og 5 km hlaup.  Ólympísk: 1.500 m sund, 40 km hjól og 10 km hlaup.  Hálfur járnkarl: 1.900 m sund, 90 km hjól og 21 km hlaup.  Járnkarl: 3.800 m sund, 180 km hjól og 42 km hlaup. Hvað er Járnmaður? SUND, HJÓL OG HLAUP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.