Morgunblaðið - 14.03.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 14.03.2016, Síða 14
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Að mati Lárusar Sigurðar Lárus- sonar er margt sem mætti betur fara í samrunaeftirliti á Íslandi. Lárus er héraðsdómslögmaður hjá Lögmönnum Sundagörðum en starfaði áður hjá Samkeppniseftir- litinu og Per- sónuvernd. Meðal þess sem Lárus telur rétt að taka til skoðunar er hraði málsmeð- ferðar hjá Sam- keppniseftirlit- inu. „Samrunamál sem fara til Sam- keppniseftirlitsins eru óvenjuleg að því leyti að lög tilgreina hámarks- tíma sem stjórnvöld hafa til að af- greiða hvert mál. Er meðferðinni skipt í tvo fasa; annars vegar 25 virka daga og hins vegar 70 daga. Má bæta við 20 virkum dögum að auki ef nauðsynlegt þykir til frekari upplýsingaöflunar.“ Mánuðir í stað daga Segir Lárus að þeim tilvikum virðist fara fjölgandi þar sem mál fara yfir í annan fasann, þegar fyrsti fasi hefði átt að duga. Rót vandans gæti verið vinnubrögð stofnunarinnar frekar en að gera þurfi breytingar á lögunum. „Regl- urnar gera ráð fyrir því að Sam- keppniseftirlitið sendi frá sér sér- staka tilkynningu áður en fyrsta fasa lýkur. Ef engin tilkynning er birt telst málinu lokið og ekki hægt að grípa frekar inn í samrunann. Mér virðist að hér áður fyrr hafi verið farin sú leið að leyfa 25 daga frestinum að líða án frekari aðgerða ef frumskoðun leiddi í ljós að ekki var ástæða til afskipta af samrun- anum. Nú virðist tíðkast að af- greiða frekar öll erindi með form- legum hætti, með tilheyrandi álagi á starfsmenn stofnunarinnar og drætti á endanlegri niðurstöðu. Út- koman er sú að gagnrýni beinist í vaxandi mæli að Samkeppniseftir- litinu fyrir að mál sem hefði verið hægt að ljúka strax á fyrstu dög- unum fara í gegnum bæði fyrsta og annan fasa án þess að fyrir því sé í raun nokkur ástæða.“ Óhætt að hækka þakið Tilkynna þarf samruna tveggja eða fleiri fyrirtækja ef sameiginleg velta félaganna nemur meira en tveimur milljörðum króna á Íslandi og ef minnst tvö af samrunafélög- unum velta 200 milljónum hér á landi. Lárus segir rétt að skoða hvort mætti ekki hækka veltuvið- miðin enn frekar. Þá segir hann að núgilandi reglur virðist meira íþyngjandi fyrir starfsemi fjárfest- ingafélaga og fjármálastofnana en ástæða er til. „Í litlu landi eins og Íslandi kalla aðstæður á aukna hag- ræðingu í rekstri sem felst þá iðu- lega í samrunum eða samvinnu á milli fyrirtækja, og eðlilegt að spyrja hvort standi í vegi fyrir eðli- legri þróun ef veltuviðmiðin haldast óbreytt,“ segir Lárus en veltuþakið var síðast hækkað árið 2008. Hvað snýr að fjárfestingarfélög- um segir Lárus að lögin líti á öll fé- lög í samsteypunni sem eina heild, jafnvel þó að rekstur hvers félags sé algjörlega sjálfstæður og ótengdur hinum. „Ef maður skoðar heimasíður þessara sjóða má sjá að þeir hafa sett sér alls konar siða- reglur, hæfisreglur fyrir stjórnar- menn og margt fleira sem á að girða fyrir hættuna á hagsmuna- árekstrum eða óeðlilegum upplýs- ingaskiptum. Þegar Samkeppnisyf- irlitið setur fyrirvara við kaup á nýju félagi inn í samsteypuna virð- ist sem þau skilyrði taki oft á sömu eða svipuðum atriðum og þegar er fjallað um í innri reglum fjárfest- ingarfélagsins. Er sumsé verið að reisa tvöfaldar girðingar.“ Það kann að vera til marks um að breytinga er þörf að hlutfall inn- gripa samkeppnisyfirvalda á Ís- landi virðist hærra en í nágranna- löndunum. Segir Lárus þó að samkeppnislöggjöfin sé svipuð í öll- um Evrópulöndum en há tíðni inn- gripa kunni að stafa af smæð og samsetningu íslensks atvinnulífs. „Í öðrum löndum, þar sem hagkerfin eru stærri, er kannski erfiðara fyrir fyrirtæki að ná óeðlilegri stærð á markaði. Engu að síður er alltaf rétt að skoða hvort rétt jafnvægi sé á hlutunum.“ Ófullkominn markaður Er ekki tímaskekkja að reka samkeppniseftirlit, og leysir ekki frjáls markaður úr því fljótt og vel ef fyrirtæki reyna að beita yfir- burðastöðu sinni á óeðlilegan hátt? Lárus segir að á fullkomnum og heilbrigðum frjálsum markaði gæti þetta átt við, en í reynd séu ýmsar aðgangshindranir til staðar sem torvelda innkomu nýrra aðila á markaði. Þetta umhverfi kalli á virkt sam- keppniseftirlit. „Er rétt að minna á að Samkeppniseftirlitið gerði einmitt mjög ítarlega skýrslu um opnun markaða í kjölfar hrunsins og setti fram mjög ítarlegar til- ögur handa stjórnvöldum. Efni þeirrar skýrslu hefur ekki verið veitt sú athygli sem það verðskuld- ar.“ Lárus segir samkeppniseftirlit einnig gegna lýðræðislegu hlut- verki: „Bandarísk lög um hringa- myndun voru einmitt samin til að koma í veg fyrir að stórar sam- steypur gætu haft óeðlileg áhrif á lagasetningu. Sömu sögu var að segja í Evrópu, þar sem löggjöfin er lituð af reynslu Þýskalands þar sem öflugar samsteypur fengu að þrífast og léku visst hlutverk í uppgangi nasismans. Samkeppnis- löggjöfin hefur hlutverki að gegna við að viðhalda eðlilegum leik- reglum lýðræðisins.“ Samrunamál lengur til meðferðar en þörf er á  Reglurnar „reisa tvöfaldar girðingar“ í kringum starfsemi fjárfestingarfélaga Morgunblaðið/Golli Atvinnulífið Lárus segir vaxandi gagnrýni beinast að Samkeppniseftirlitinu vegna mála sem hefði verið hægt að ljúka á nokkrum dögum en fara þess í stað gegnum langt ferli. Lausnin gæti falist í breyttum vinnubrögðum. Lárus Sigurður Lárusson 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 Breyttu heimilinu með gluggatjöldum frá okkur Suðurlandsbraut 6 sími 553 9990 nutima@nutima.is www.nutima.is Samkvæmt samantekt KPMG námu gjaldfærðir skattar HB Granda samtals 4.180 milljónum króna og innheimtir skattar 3.543 milljónum. Samtals var skattspor fyrirtækisins því 7.723 milljónir króna. Er þetta hækkun um 134 milljónir króna milli ára en á síð- asta ári var skattsporið 7.589 millj- ónir króna. Þá greiddi félagið 3.810 milljónir króna í virðisukaskatt vegna kaupa á aðföngum og þjónustu sem myndaði rétt til endur- greiðslu. Í skýrslu KPMG kemur fram að tekjur fyrirtækisins eru að mestu vegna útflutnings afurða sem ekki er lagður útskattur á. Var útskattur á sölu innanlands 1.953 milljónir króna. Fékk félagið endurgreiddan mismuninn, eða 1.875 milljónir króna. Er virðis- aukaskattur ekki talinn með í skattspori. Einnig kemur fram í samantekt- inni að verðmætasköpun af rekstri fyrirtækisins á árinu 2015 hafi ver- ið samtals 30.890 milljónir króna. Skattbyrði fyrirtækisins var 4.180 milljónir króna á árinu eða 13,5% af verðmætasköpun. Þriðjungur skattbyrðinnar var vegna veiði- gjalda. Afkoma félagsins nam 6.990 milljónum króna eða 22,6% af fjárhagslegu verðmæti ársins. ai@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Auður Starfsmaður færir ker á milli staða við fiskiðjuver HB Granda. Skattspor HB Granda 7,7 millj- arðar ● Það þykir mikil skrautfjöður í hatt fjár- festingafyrirtækja að eiga í viðskiptum við Norska olíusjóðinn. Að sama skapi þykir það ekki góðs viti ef olíusjóðurinn ákveður að slíta viðskiptunum og fara með pen- ingana sína annað. Sjóðstýringarfyrirtækið Pimco þarf núna að sjá á eftir norska fjármagninu eft- ir að hafa átt í viðskiptum við olíusjóðinn frá árinu 2013. Financial Times greinir frá að Norski olíusjóðurinn hafi kvatt Pimco á síðasta ári. Var 2015 erfitt ár hjá Pimco vegna slæmrar frammistöðu skuldabréfa- sjóða fyrirtækisins. Samkvæmt FT tóku fjárfestar 125 millj- örðum evra meira út úr Pimco en þeir lögðu inn á árinu sem leið. Árið áður hafði Bill Gross, stjórnandi og stofnandi sjóðsins, skyndilega látið sig hverfa til að stofna nýtt sjóðstýringarfyr- irtæki. Brasilíski bankinn BTG Pactual var líka látinn fjúka á síðasta ári. Bankinn flæktist í Petrobras-hneykslið sem skekið hefur brasilískt stjórnmála- og efnahagslíf og minnkaði hlutabréfasjóður bankans um helming. Var stjórnandi bankans handtek- inn og honum gefið að sök að reyna að hafa áhrif á rannsókn lögreglu. ai@mbl.is Norski olíusjóðurinn kveður Pimco

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.