Morgunblaðið - 14.03.2016, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 14.03.2016, Qupperneq 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016 Frænka þín? Þögul leiftur nefnist ljósmyndasýning Vesturfarasetursins á Hofsósi sem opnuð var í Hörpu um helgina. Á sýningunni eru um 400 ljósmyndir af íslenskum landnemum en sýningin veitir innsýn í andlitsljósmyndun vestanhafs á tímum vesturferða á árunum 1870-1910. Nelson Gerrard, sem á ættir að rekja til Íslendinga sem settust að í Manitoba, átti hugmyndina að þessari sýningu og vann hann hana með söfnun ljósmynda í Norður-Ameríku og á Íslandi. Hann sá jafnframt um gerð leiðsögukorta og upplýsinga um sýninguna. Gestir voru ánægðir með afraksturinn. Golli Sá magnaði maður um margt, Jón Baldvin Hannibals- son, er fyrstur hinna trúuðu ESB-sinna til að segja það sem allir ættu að sjá, að ekkert vit er í því að streða við að ganga í ESB eða taka upp evru við þær aðstæður sem ríkja í Evrópu. Svo kom þessi magnaða lýsing hins orðhaga manns að ESB væri eins og „brennandi hús“ og engum dytti í hug að ganga inn í eldhafið, það væri glórulaus vit- leysa. En kjarninn í ummælum hans var þessi og þess vegna hefur hann endurskoðað afstöðu sína: „Einfaldlega vegna þess að þegar ég horfi til Evrópu, þá sé ég Evrópu- sambandið sem er nánast í sjálfsmorðsleið- angri vegna þess að pólitíska forystan hefur algjörlega brugðist – og það er kreppa eftir kreppu eftir kreppu. Peningasamstarfið er byggt á röngum grunni og stenst ekki. Það mun ekki standast nýtt áhlaup. Tómt efna- hagslegt rugl.“ Mögnuð lýsing um sorglegt ferðalag en þessu var samt spáð í þessa veru af vitrum mönnum um aldamótin. Við erum heppnir, Íslendingar, og heppnari en Njáll og synir hans forðum, þeir að vísu gengu inn áður en kveikt var í en Skarphéðinn varaði föður sinn við brennumönnunum, án árang- urs. Við, andstæðingar þess að Ísland gangi í ESB, höfum verið snupraðir og hæddir á síðustu árum. Kjarkmaður Jón Baldvin og engum krata líkur eins og Kári forðum. Þora menn að fylgja hans fordæmi og viðurkenna þann vanda sem ESB glímir við? Hvað segja stjórnmálaflokkarnir á Alþingi, t.d. Píratar og Vinstri-grænir? Píratar tala um að klára inngönguna og halda viðræðum áfram, sennilega við slökkviliðið. Eru Vinstri- grænir enn á milli vita? Hvað segir foringi ferðalagsins, Össur Skarphéðinsson? Hvað segir atvinnulífið, ASÍ, SA og SI? Hvað segir embættismannaelítan, t.d. í utanríkisráðuneytinu, sem skrifaði hið óljósa bréf sem ráðherrann sendi í góðri trú? Að rembast eins og rjúpan við staurinn Í harðri glímu innan míns gamla og síunga flokks, Framsóknarflokksins, er ég þakklátastur fyrir að Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, kjörinn formaður þegar flokkurinn engdist í ESB- málinu, skyldi sjá hættuna strax og með harðfylgi breyta stefnu flokksins. Hann sá eins og fleiri að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan ESB. Íslandi vegnar nú betur en nokkru öðru landi í Evrópu, það stýrir sínum málum sjálft, á sínar auðlindir og efnahagur landsins og landsmanna batn- ar hratt. Ég ætla ekki að Jón Baldvin Hannibals- son sé að eilífu horfinn frá aðildarhugsun, en það er hreinskilni og manndómur að ganga fram og segja þjóð sinni frá hugsun sinni; hún sé önnur í dag en hún var í gær. Slík hreinskilni hefur nú sett eitt stærsta deilu- mál Íslendinga í annað sviðsljós. Það verður ekki auðvelt fyrir þráhyggjumennina að hrekja ummæli Jóns Baldvins, en hann er margreyndur stjórnmálamaður með víðtæk- ari þekkingu á utanríkismálum en allur fjöldi þeirra sem enn rembast eins og rjúpan við staurinn. Eftir Guðna Ágústsson » Það verður ekki auðvelt fyrir þrá- hyggjumennina að hrekja ummæli Jóns Baldvins. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. „Hið brennandi hús Evrópusambandsins“ Í Kastljósþætti 3. mars síðastlið- inn fjallaði Guðmundur Oddur Magnússon um sýninguna „Aftur í sandkassann“ sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu. Á sýningunni er fjallað um listir og róttækar kennsluaðferðir fyrr og nú. Sýning- arstjórinn Jaroslav Andêl setur þar fram þá skoðun að skólakerfið drepi sköpunarkraftinn. Þessi skoðun hef- ur áður heyrst, meðal annars í mest skoðaða Ted-fyrirlestri frá upphafi sem Bretinn Ken Robinson flytur. Þetta er göm- ul og þreytandi tugga sem mér finnst stundum þeir smjatta mest á sem síst þekkja til. Margt annað er þó athyglisvert í skoðunum Andêl. Eitt af því sem hann varar til að mynda við er að margs konar miðstýrðar aðgerðir og stefnur taki yfir og stýri um of stefnumótun í menntamálum. Hann nefnir til dæmis Pisa-mælingar og Bo- logna-samþykktina sem að hans mati miða að því að gera nemendur að tannhjólum í vélvæddu menntakerfi sem verður sífellt uppteknara af samræmdum mælikvörðum. Ég hef unnið innan skólakerfisins í 20 ár og hef ekki orðið vör við að kerfið sé sérstaklega upp- tekið af því að drepa niður sköpunarkraftinn. Þvert á móti dáist ég að grunnskólakennurum sem sumir hafa kennt í næstum hálfa öld en mæta þó með glampa í augum í vinnuna á hverj- um degi og eru sífellt tilbúnir að taka næsta skref og bæta við sig þekkingu og gera eitthvað nýtt. Í íslensku skólakerfi er fjölbreytt og öflugt listnám og tækifæri til skapandi nálgunar í flest- um námsgreinum. Við höfum borið gæfu til að standa vörð um og í raun sækja fram með áherslu á vægi greina sem efla sköpunarkraft nemenda og auka samkennd og tilfinninga- þroska. Við höfum að mestu staðist þá freistingu að fjölga kennslustundum í greinum þar sem ár- angur er auðmælanlegur, á kostnað listnáms, samfélagsgreina eða jafnvel heimspeki. Börnum okkar stendur margs konar list- nám til boða, innan grunnskóla, framhaldsskóla, listaskóla og lista- safna. Í nýrri menntastefnu Reykjavíkurborgar fær list- og tækninám aukið vægi. Í síðustu að- alnámsskrá er lögð aukin áhersla á listnám og skapandi nálgun í námi. Við eigum frábæra tónlistarskóla, vel menntaða listgreinakennara sem eru eldhugar, taka áhættu og smita nemendur af vinnugleði. Að- staða til listnáms innan grunnskól- anna er almennt góð. Á hverjum degi koma börn og ungt fólk mér á óvart með skapandi, gagnrýnni og frumlegri tónlist, myndlist, leiklist, dansi, sög- um og myndböndum. Í gær hlustaði ég á 11 ára nemendur spila frumsamda tónlist af mikilli inn- lifun og leikni og fjölluðu textarnir meðal annars um ástandið í Sýrlandi. Ekki er langt síðan ungar stúlkur heilluðu landsmenn með frábæru Skrekksatriði sem gagnrýndi afstöðu samfélags- ins til kvenna. Á morgun fer ég á frumsýningu söngleiks í grunnskóla dóttur minnar og í vikunni mun ég sjá frumsamið leikrit fimm ára barna um risaeðlur. Skólastarf á Íslandi er skapandi og kraftmikið. Við þurfum að hampa því sem vel er gert, örva og þakka því frábæra fólki sem á hverjum degi gengur til vinnu sinnar í skólum landsins fyrir vel unnin störf. Við þurfum að hvetja kennara til dáða og þannig sækja fram og gera betur. Annars er hætt við að við drepum sköpunarkraft þeirra! Eftir Ingibjörgu Jóhannsdóttur Ingibjörg Jóhannsdóttir Sköpunar- krafturinn drepinn? » Á hverjum degi koma börn og ungt fólk mér á óvart með skapandi, gagnrýnni og frum- legri tónlist, myndlist, leiklist, dansi, sögum og myndböndum. Höfundur er skólastjóri Landakotsskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.