Morgunblaðið - 14.03.2016, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
Birna Þórsdóttir, sem á þrjátíu ára afmæli í dag, situr í bæjar-stjórn Vestmannaeyja fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún er á sínufyrsta kjörtímabili en sem kunnugt er vann Sjálfstæðisflokk-
urinn glæstan sigur í síðustu sveitarstjórnarkosningum og hlaut fimm
fulltrúa í bæjarstjórn af sjö. „Þetta er mjög þroskandi og skemmtilegt
að vera í bæjarstjórn og búið að kenna manni margt,“ segir Birna.
„Ég sit í fjölskyldu- og tómstundaráði en við skiptumst á og sinnum
öllum málum. Það er endalaust verið bíða eftir lausn á Landeyjahöfn.
Við erum með hana á heilanum, en engar siglingar hafa verið þaðan
lengi. Vonandi fara siglingarnar að hefjast og þá færist líf í Eyjarnar
en það er ekki hægt að líkja þessu saman þegar ferðir frá Landeyja-
höfn liggja niðri.“
Birna er hreinræktaður Vestmannaeyingur, er snyrtifræðingur að
mennt og vinnur hjá Aroma sem er önnur tveggja snyrtistofa í bæn-
um. Þegar hún er ekki að vinna eða sinna fjölskyldu stundar hún
cross-fit.
Eiginmaður Birnu er Davíð Þór Óskarsson lögreglumaður og sonur
þeirra er Hreggviður Jens.
Fjölskyldan var að kaupa sér einbýlishús á Höfðaveg 43. „Það er
hálfpartinn uppi í sveit. Við ákváðum að slá saman afmælisveislu og
innflutningspartíi um helgina. Svo ætla ég í dag að plata eiginmann-
inn til að elda fyrir mig.
Fjölskyldan Birna, Davíð Þór, Hreggviður Jens og hundurinn Perla.
Þroskandi og gaman
að sitja í bæjarstjórn
Birna Þórsdóttir er þrítug í dag
B
irna fæddist í Reykjavík
14.2. 1966 og ólst upp á
Háaleitinu. Hún gekk í
Álftamýrarskóla, lauk
stúdentsprófi frá MS
1986 og BA-gráðu í fjölmiðlafræði og
sálfræði frá University of Wash-
ington í Seattle í Bandaríkjunum
1992. Nú leggur hún stund á meist-
aranám í þýðingafræði við HÍ.
Birna var fréttamaður á RÚV
1992-94, fréttaritari RÚV í Noregi
1994-97, leiðbeinandi við Grunnskól-
ann á Þingeyri 1997-99, sinnti blaða-
mennsku og ristjórnarstörfum í
lausamennsku frá 1998, sinnti mark-
aðsmálum, skýrslugerð og fleiru hjá
Álfsfelli ehf. – Sjávareldi ehf. 2009-
2013 og hefur verið verkefnastjóri
hjá Háskólasetri Vestfjarða frá 2014.
Birna var bæjarfulltrúi í Ísafjarð-
arbæ 1998-2010, sat þá í bæjarráði
og ýmsum nefndum og vinnuhópum
á vegum bæjarfélagsins og var for-
seti bæjarstjórnar nær öll árin.
Birna var fulltrúi fjármálaráð-
herra í stjórn Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins 2001-2011, formaður
skólanefndar Menntaskólans á Ísa-
firði 2001-2012, varamaður í stjórn
Birna Lárusdóttir fjölmiðlafræðingur – 50 ára
Hjónin Birna og Hallgrímur í skemmtilegum myndaramma þar sem þau voru í vélsleðaferð skammt frá Ísafirði.
Hleður batteríin og
hvílist vel í Grunnavík
Myndarleg Börn Birnu og Hallgríms: Hekla, Heiður, Hilmir og Hugi.
Sunneva Rut Skaale, Guðlaug María Hallgrímsdóttir og Sigríður Vala Ólafs-
dóttir héldu tombólu á Akranesi og söfnuðu 2.498 krónum til styrktar Rauða
krossinum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár