Morgunblaðið - 14.03.2016, Blaðsíða 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
DAVID FARR
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fim 17/3 kl. 19:30 Aukasýn Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn Sun 24/4 kl. 15:00 68.sýn
Lau 19/3 kl. 15:00 57.sýn Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn Fim 28/4 kl. 19:30 69.sýn
Lau 19/3 kl. 19:30 58.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn Fös 29/4 kl. 19:30 70.sýn
Mið 30/3 kl. 19:30 61.sýn Fim 14/4 kl. 19:30 66.sýn
Fim 31/3 kl. 19:30 62.sýn Fös 15/4 kl. 19:30 67.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið)
Sun 20/3 kl. 19:30 Lokasýn
"Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..."
Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið)
Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 8/4 kl. 19:30 10.sýn Fös 22/4 kl. 19:30 12.sýn
Lau 2/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 16/4 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/4 kl. 19:30 13.sýn
Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu.
Um það bil (Kassinn)
Fös 18/3 kl. 19:30 19.sýn Sun 3/4 kl. 19:30 21.sýn
Sun 20/3 kl. 19:30 20.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 22.sýn
"...ein af bestu sýningum þessa leikárs."
Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið)
Sun 20/3 kl. 13:00 9.sýn Sun 3/4 kl. 13:00 10.sýn Sun 10/4 kl. 13:00 11.sýn
Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst!
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Fös 18/3 kl. 20:00 23.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 25.sýn
Sun 3/4 kl. 19:30 24.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 26.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari)
Fim 17/3 kl. 20:00 49.sýn Fös 18/3 kl. 22:30 51.sýn Lau 19/3 kl. 22:30 53.sýn
Fös 18/3 kl. 20:00 50.sýn Lau 19/3 kl. 20:00 52.sýn Fös 8/4 kl. 20:00 54.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 9.sýn Mið 20/4 kl. 19:30 11.sýn
Mið 30/3 kl. 19:30 8.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 10.sýn Mið 27/4 kl. 19:30 12.sýn
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Kvika (Kassinn)
Þri 15/3 kl. 21:00 5.sýn
Dansverk eftir Katrínu Gunnarsdóttur
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Þri 15/3 kl. 20:00 aukas. Fös 15/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/5 kl. 20:00
Mið 16/3 kl. 20:00 aukas. Lau 16/4 kl. 20:00 12.k Fös 13/5 kl. 20:00
Fim 17/3 kl. 20:00 3.k. Mið 20/4 kl. 20:00 13.k Lau 14/5 kl. 14:00
Fös 18/3 kl. 20:00 4.k. Fim 21/4 kl. 20:00 14.k Þri 17/5 kl. 20:00
Lau 19/3 kl. 20:00 aukas. Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/5 kl. 20:00
Sun 20/3 kl. 14:00 aukas. Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00
Þri 22/3 kl. 20:00 5.k Sun 24/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00
Mið 30/3 kl. 20:00 6.k Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 14:00
Fim 31/3 kl. 20:00 aukas. Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 20:00
Fös 1/4 kl. 20:00 aukas. Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Sun 22/5 kl. 20:00
Lau 2/4 kl. 20:00 7.k Þri 3/5 kl. 20:00 Þri 24/5 kl. 20:00
Sun 3/4 kl. 14:00 aukas. Mið 4/5 kl. 20:00 Mið 25/5 kl. 20:00
Mið 6/4 kl. 20:00 8.k Fim 5/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00
Fim 7/4 kl. 20:00 aukas. Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Fös 27/5 kl. 20:00
Fös 8/4 kl. 20:00 9.k Lau 7/5 kl. 14:00 Lau 28/5 kl. 20:00
Lau 9/4 kl. 20:00 aukas. Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Sun 29/5 kl. 20:00
Sun 10/4 kl. 14:00 aukas. Sun 8/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00
Mið 13/4 kl. 20:00 10.k Þri 10/5 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00
Fim 14/4 kl. 20:00 11.k Mið 11/5 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00
Lifandi tónlist og leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum
Njála (Stóra sviðið)
Sun 20/3 kl. 20:00 28.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 30..sýn
Sun 3/4 kl. 20:00 29.sýn Sun 17/4 kl. 20:00 31.sýn
Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu
Flóð (Litla sviðið)
Mið 16/3 kl. 20:00
Styrktarsýning
Allra síðustu sýningar
Vegbúar (Litla sviðið)
Fös 18/3 kl. 20:00 34.sýn Fös 8/4 kl. 20:00 36.sýn
Lau 2/4 kl. 20:00 35.sýn Lau 16/4 kl. 20:00 37.sýn
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 19/3 kl. 20:00 105.sýn Fim 12/5 kl. 20:00 106.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Illska (Litla sviðið)
Fim 17/3 kl. 20:00 Lau 9/4 kl. 20:00 Mið 20/4 kl. 20:00
Sun 20/3 kl. 20:00 Fim 14/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Made in Children (Litla sviðið)
Fös 1/4 kl. 20:00 frums. Fim 7/4 kl. 20:00 3.sýn Fös 15/4 kl. 20:00 5.sýn
Sun 3/4 kl. 20:00 2.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 4.sýn
Hvernig gera börnin heiminn betri?
Njála – „Unaðslegt leikhús“ – ★★★★ , S.J. Fbl.
tók nærri 6 klst. Þar lék ég Loka
sögumann og Þórhildur Þorleifs-
dóttir leikstýrði. Á þessum árum
vann ég líka með Íslenska dans-
flokknum og lék auk þess í bæði sjón-
varpi og útvarpi.“
Síðan er ég ráðinn á samning hjá
Leikfélagi Reykjavíkur af Þórhildi
Þorleifsdóttur og ætli það megi ekki
segja að Borgarleikhúsið hafi verið
þungamiðjan í mínum leiklistarferli
en þar starfaði ég frá 1996 til 2008 eða
í tólf ár.“
Tími til að prófa eitthvað nýtt
Líkt og hjá mörgum Íslendingum
varð breyting á starfsháttum Björns
árið 2008. Hrun bankakerfisins kom
niður á öllum sviðum samfélagsins og
fundu leikhúsin og menningarlífið allt
fyrir samdrættinum. Björn segir þó
tímamótin frekar vera nýtt upphaf en
endi á gömlu starfi.
„Konan mín, Hlín Helga, er mennt-
aður hönnuður og hún fékk tilboð um
starf í Svíþjóð árið 2010. Árin á undan
höfðu verið viðburðarík í okkar lífi en
strákurinn okkar, hann Bjartur, kom
í heiminn árið 2007, Hlín útskrifast
sem hönnuður 2008 og sama ár missi
ég vinnuna í Borgarleikhúsinu. Það
var því kominn tími á að leita á önnur
mið, prófa eitthvað nýtt og finna okk-
ur á nýjum stað. Listaháskólinn í
Stokkhólmi hafði boðið Hlín Helgu
starf við skólann sem kennari í mast-
ersnámi og við létum slag standa.“
Allir þurfa einhvern tíman að end-
urmeta stöðu sína og spyrja sig heim-
spekilegra spurninga. Björn segir
flutninginn til Svíþjóðar hafa verið til-
valið tækifæri til að hugleiða sína
stöðu.
„Ég var á þessum tíma búinn að
vera viðloðandi leiklistina í nærri því
25 ár og helminginn af þeim tíma á
samning í Borgarleikhúsinu. Kannski
var hreinlega kominn tími til að gera
eitthvað annað. Þess vegna ákvað ég
að leita ekkert sérstaklega eftir því
að fara að leika í Svíþjóð. Ég var
kominn í nýtt umhverfi og vildi því
prófa eitthvað nýtt.“
Gamall vinur í Stokkhólmi
Leiklistin er aldrei langt undan og
þrátt fyrir fyrirheit um annað tók það
Björn ekki langan tíma að finna gaml-
an vin úr leikhúslífinu og stíga aftur á
svið.
„Ég kynntist Peter Engkvist á
leiklistarhátíð fyrir mörgum árum í
Kristiansand, en það má kannski
skjóta því hér inn í að hann kynntist
konunni sinni þarna á sama tíma en
hún er íslensk og heitir Bára Lyngdal
Magnúsdóttir leikkona. Kynni okkar
Peters þróuðust þannig að hann leik-
stýrði mér fyrst í einleik sem heitir
Lofthræddi örninn hann Örvar.
Þennan einleik lék ég í Þjóðleikhús-
inu og við frumsýndum hann 1994 ef
ég man rétt. Síðan átti Peter Eng-
kvist eftir að vinna talsvert meira hér
á Íslandi, hann leikstýrði meðal ann-
ars Ormstungu, Mr. Skallagrímsson,
og fleiri verkum. Við hittumst næst í
Beðið eftir Godot sem hann leikstýrði
og var opnunarsýning Nýja Sviðsins í
Borgarleikhúsinu. Þannig að þegar
ég kom til Stokkhólms var hann að
sjálfsögðu þar og náttúrulega Bára
konan hans líka og þau reyndust okk-
ur ákaflega vel allan þann tíma sem
við vorum í Stokkhólmi,“ segir Björn.
Peter starfrækir, ásamt fleirum,
leikhúsið Teater Pero, í Stokkhólmi,
þar er hann allt í senn leikhússtjóri,
listrænn leiðtogi og leikstjóri, segir
Björn en þess má geta að Bára er ein
af fastráðnum leikurum sem þar
starfa.
„Teater Pero er frábært barnaleik-
hús og hefur hlotið margar viður-
kenningar bæði í Svíþjóð og erlendis
og þegar ég hafði samband við Peter
átti ég ekkert endilega von á því að
hann myndi bjóða mér starf við leik-
húsið en svona geta örlögin verið
áhugaverð. Allt í einu var ég kominn
á svið í Svíþjóð og farinn að leika á
sænsku.“
Hlutverkin hjá Teater Pero urðu
alls sex og sýningarnar eitthvað í
kringum 600 sem Björn lék í meðan
hann bjó ásamt fjölskyldu sinni í Sví-
þjóð.
„Þetta var mjög skemmtilegur tími
því það er hefð fyrir því í Svíþjóð að
leikhús og þá sérstaklega barnaleik-
hús ferðist með sínar sýningar. Þann-
ig að mér gafst tækifæri til að koma
fram á fjölda staða um allt landið.“
Reynslunni ríkari segir Björn ekki
ólíklegt að hann komi á fót einhvers
konar verkefni á Íslandi með svipuðu
sniði og í sama anda og þær sýningar
sem hann tók þátt í hjá Teater Pero.
Aftur til Íslands
Dvölin í Svíþjóð var góð og lær-
dómsrík að sögn Björns en sumarið
2015 fluttu hann og kona hans aftur
heim til Íslands.
„Þá má kannski segja að það hafi
verið verið landið og náttúran sem
kallaði á okkur því ákvörðunin varð til
eitt íslenskt sumarkvöld eins og þau
verða hvað fallegust. Það er líka gam-
an að upplifa það að maður fær oft
aðra sýn á hlutina eftir að hafa verið
búsettur annarstaðar og kann að
meta hlutina á annan hátt og kannski
gerir sér betur grein fyrir því hvað
þetta land hefur upp á marga hluti að
bjóða sem maður tók kannski sem
sjálfsögðum hlut áður en maður flutti
út. Lífsgæðin hér eru svo gífurleg og
íslenska náttúran er vegur þar þungt
og þess vegna finnst mér að okkur
beri skylda til að vernda hana því hún
er algjörlega einstök.“
Sótti á sjóinn og í Kaffi Vest
Draumurinn að gera eitthvað nýtt,
endurskoða sína stöðu og spyrja sig
hvort áhugi væri fyrir einhverju öðru
en leiklistinni varð loks að veruleika
þegar Björn flutti heim með fjöl-
skyldu sinni til Íslands sumarið 2015.
Björn sótti þannig sjóinn um tíma
og starfaði hjá Kaffihúsi Vestur-
bæjar. Hann vissi þó að hann vildi aft-
ur í leiklistina þegar María Ellingsen
hafði við hann samband.
„Eftir að við fluttum heim fannst
mér eðlilegt að spyrja mig hvort ég
vildi halda áfram að vinna sem leik-
ari, enda búinn að vera í þessum
bransa í nærri 30 ár. Hvort ég hefði
þessa löngun, sem mér finnst vera
svo mikilvæg að hafa ef maður ætlar
að vera í þessu starfi. Þannig að þeg-
ar María Ellingsen hringdi í mig
núna um áramótin og spurði hvort ég
hefði áhuga á að vera með í leikriti
sem hún ætlaði að setja upp var svar-
ið já vegna þess að ég finn enn þessa
löngun og þennan neista sem mér
finnst svo mikilvægt að sé fyrir hendi
í listsköpun.“
Enginn hittir einhvern
Verkið sem María og Björn leika í
nefnist Enginn hittir einhvern og var
frumsýnt núna 11. mars og verður
sýnt út apríl í Norræna húsinu.
„Leikritið Enginn hittir einhvern
eftir Peter Asmussen er opnunarsýn-
ing í nýju leikrými Norræna hússins
sem nefnist Black box. Hugmyndin á
bakvið leiksviðið eða öllu heldur leik-
rými Norræna hússins er að kynna
og tryggja sýnileika norrænna höf-
unda fyrir íslenskum almenningi,“
segir Björn en María er búin að fá til
liðs við þau frábæra norræna lista-
menn á borð við leikstjórann Simon
Boberg frá Danmörku, tónlistar-
manninn Andreas Ljones frá Noregi
og höfund sviðshreyfinga, hina
finnsku Raisa Foster. „Þetta er
fyrsta verk Peter Asmussen sem sett
er upp á Íslandi en það hlaut meðal
annars dönsku leiklistarverðlaunin á
sínum tíma. Hér er á ferðinni frábært
leikrit, og allt þetta ferli er búið að
vera stórkostlegt ævintýri og hefur
virkilega sýnt mér fra má hvað það er
magnað starf að vera leikari.“
Morgunblaðið/RAX