Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.1995, Qupperneq 9

Víkurfréttir - 06.04.1995, Qupperneq 9
VfKURFRÉTTIR 6. APRIL 1995 9 JORDÆMI REYKJA Það sldptír máli hverjir stjórna Það er sumum einkar lagið að snúa staðreyndum á hvolf. Einn þein'á geystist fram á ritvöllinn í Suðumesjafréttum um daginn. Sá heitir Jón Páll Eyjólfsson. Þar hafði híuin slík endaskipti á hlutun- um, að guðfaðir og lærifaðir hans, tlokkaflakkarinn og kamelljónið, Olafur Ragnar Grimsson, hlýtur að vera stoltur af afkvæminu. Einhvers staðar segir, að menn eigi ekki að nefna snöm í hengds manns húsi og að komminn Jón Páll skuli þora að minnast á álmálið og stóriðnað al- mennt í sam- hengi við Al- þýðubandalag- ið, sýnir ekki einungis þekk- ingarleysi hans, heldur eindæma bamaskap. Hjör- Ieifarnir í Alþýðubandalaginu, goðin hans Jóns Páls, hafa ætíð og alltaf þvælst fyrir og neynt að koma í veg fýrir fjárfestingu erlendra að- ila í íslensku atvinnulífi. Það sama var upp á teningnum þegar Al- þýðutlokkurinn og forystumenn hans unnu að því hörðum höndum að koma upp álveri á Keilisnesi. Hjörleifunum í öllum flokkum tókst að þvæla málinu fram og til baka hér innanlands, að samningar töfðust og við misstum af strætis- vagninum í þetta skiptið. Efnahag- skreppan og verðfall í áliðnaði frestaði þessu stóra hagsmunamáli okkar Suðumesjamanna. En annað bættist við. Það var ekki einungis að kommamir hér heima væru að þvælast fyrir í þessu máli, heldur varð niðurstað- an sú að skoðanabræður þeirra í Austur-Evrópu gerðu einnig sitt. Með falli múrsins, sem við lýð- ræðissinnar fögnuðum af heilum hug, þá leiddi það til verðfalls á áli, því yfir Veslur-Evrópu rann nú svartálið í stríðum straumum á nið- ursettu verði. Þeir gátu selt það á undraverði vegna þess að komm- amir í austri höfðu haldið starfs- mönnum f þrælabúðum við fram- leiðsluna. Við það var ekki hægt að keppa. Staðreyndin er sú að kommar hér á Suðumesjum ættu að hafa sig hæga þegar atvinnumál ber á góma, hvort held- ur það er álmálið eða önnur mál. Hvað þá sam- skiptin við vam- arliðið. Var það ekki „glókollur- inn“ Olafur Ragnar, sem vildi vamarliðið á brott í hvelli og breyta vamarsvæðinu í kvikmyndaver?! Mætti út af fyrir sig búa til góða grínmynd um kommana og atvinnumálin. Nei, ágætu Suðurnesjamenn. Þegar kemur að skynsamlegri og framsækinni atvinnumálastefnu, þá vita það allir sem vita vilja, að Alþýðuflokkurinn er sá flokkur sem veit hvað hann vill og hann lætur verkin tala. Munum það í kjörklefanum 8. apríl næstkomandi. Við höfum nóg af blaðurskjóð- um í pólitíkinni en of fáa stjóm- málamenn sem taka til hendi. Gef- um þeim fymiefndu frí í þessum kosningum, en þá síðamefndu má finna í forystuhópi Alþýðuflokks- ins. Rannveig, Guðmundur Ámi, Petrína og Hrafnkell er fólk sem lætur fylgja aðgerðir með orðum. Tökum saman höndum með A- listanum á Reykjanesi. Það skiptir máli hvetjir stjóma. Olafur Thordersen Alþingiskosningar 1995 - Aðsendar Kefla víkurflugvöllur: w Islendinga í öll störf Á Keflavíkurflugvelli starfa nú hundruð erlendra ríkisborg- ara í störfum sem íslendingar gætu sinnt. Hér er átt við borg- araleg störf sem á engan hátt snerta hlutverk varnarliðsins. Islendingar eiga auðvitað að koma ár sinni svo fyrir borð að öll borgaraleg störf á flugvell- inuni verði unnin af Islending- um. Þegar varnarsamningurinn var gerður reyndist næg atvinna fyrir alla hérlendis. Sú staða mótaði auðvitað innihald samn- ingsins. Þannig var skrifað und- ir heimild fyrir bandaríska þegna til að gegna í einhverjum mæli boraralegum störfum. Nú Hjnlmar Árnason er hins vegar öldin önnur. At- vinnuleysi knýr dyra á mörgum heimilum. Þess vegna eiga stjórnvöld að beita öllunt ráð- um til að vinna bug á meinvætti þeim sem atvinnuleysið er. Þingmenn kjördæmisins eiga að koma sér saman um að þrýsta á utanríkisráðherra um að standa fyrir endurskoðun þessa þáttar varnarsamningsins. Markmiðið á að vera það að einungis Islendingar sinni öll- um borgaralegum störfum á Keflavfkurflugvelli. Um er að ræða störf á ntörgum sviðunt, s.s. verslun, iðnaði, skrifstofu- störf o.s.frv. Vilji er allt sem þarf. Frambjóðendur Fram- sóknar lýsa sig reiðubúin til þessa verks. lljálmar Arnason skipar baráttusæti í Revkjanesi. Óvenjulegur stöðugleiki Mig langar í upphafi til að þakka fyrir sendingu sem mér barst frá Sjálfstæðisflokknum, helbláan tví- blöðung sendi hann mér, ásamt fal- legum myndum af frambjóðendum sínum og stuttorðum lysingum á eigin afrekum ásamt hótunum um áframhaldandi affek. Fyrsta málsgrein bæklingsins hljóðaði þannig: „í tíð Davíðs Oddssonar hefur tekist að skapa ó- venjulegan stöðugleika í íslenskum stjómmálum.” Hér finnst mér sérlega vel að orði komist.það er nefnilega mála sann- ast að stöðugleiki sá sem að hér hef- ur verið skapaður er um margt afar óvenjulegur. Hann felst meðal annars í því að miklir fjármunir, líklega milli 5 og 7 milljarðar hafa með ýmsum brell- um verið fluttir frá launþegum til fjármagnseigenda. Persónuafsláttur hefur verið stórlega lækkaður. Vaxtabætur og bamabætur voru skertar. Vextir hækkuðu gríðarlega strax í upphafi kjörtímabilsins. Skattur var lagður á sjúklinga, skólagjöld á framhaldsskólanema, námslaunakerfið var skorið niður um rúm 40%. Erlendar skuldir rík- isins hafa vaxið og þjóðarsáttar- samningum, sem gerðir hafa verið í j þeirri tní að sátt væri um sanngjöm skipú þjóðartekna hefur verið mis- beitt þannig að launakjör em orðin slík að fullvinnandi fólk vinnurekki fýrirnauðþurffum. I hverju ætli hann sé þá fólginn þessi stöðugleiki sem Sjálfstæðis- flokkurinn bendir réttilega á að sé Sigríður Jóliawwsdóttir afar óvenjulegur. Genginu hefur verið haldið stöð- ugu og verðbólgu hefur verið hald- ið í skefjum. Á það er hins vegar ekki oft minnst að þegar núverandi ríkisstjóm tók við völdum 1991 var verðbólgan aðeins 4%. Verðbólgu- skrýmslið sem hér engu eirði ára- tugum saman var orðið að ntein- lausri búrtík á hlaðinu hjá Ólafi Ragnari meðan hann var fjármála- ráðherra. Glundroðakenningin. Það er hárrétt mat hjá Sjálfstæð- isflokknum að hér er um afar óvenjulegan stöðugleika að ræða. Hitt er að sjálfsögðu fjarstæða að venjulegu launafólki sé akkur í því að varðveita slíkan stöðugleika til frambúðar. því er nú gripið til gömlu glundroðakenningarinnar. þeir hafa löngum þann steininn klappað Sjálfstæðismenn með sorg- legum árangri. Aftur og afitur hefur verið reynt að sameina vinstri menn og ævin- lega með sömu aðferðinni. |teirri aðferð að stofna enn einn vinstri tlokkinn. Slíkir flokkæ' hafa farið af stað með miklum væntingum, reytt til sín fýlgi af vinstra væng stjóm- málanna en síðan hjaðnað niður og loks er eins og ekkert hafi gerst. Nýjasta uppákoman í þessa vem er að vfsu nteð hjákátlegra móti þar sem fyrrum ráðherra í ríkisstjóm Davíðs Oddssonar,- ráðherra sem stóð að öllum þeim hervirkjum sem ég lysti hér að framan.-ætlar nú að sameina alla vinstri menn nteð þessari sömu gömlu aðferð. Hefði Jóhanna Sigurðardóttir verið valin formaður Alþýðuflokksins eftir að hafa lýst því fjálglega livað hún liafi alltaf átt gott samstarf við Davíð Oddsson Irefði hennar tími komið strax og Þjóðvaki aldæi orðið úl. Sjálfstæðisflokkurinn lýsir því nú yftr að hann leggi allt kapp á að varðveita sinn „óvenjulega stöðug- leika”. Það er okkar hlutverk að sjá til þess að það takist ekki. Von laun- þega þessa lands er því sú að hér verði þingstyrkur úl þess að mynda þriggja flokka vinstri stjóm. Hvort Haíldór eða Jón Baldvin hallast til vinstri eða hægri er undir því komið ] að Alþýðubandalagið fái nægilegt kjörfýlgi til þess að halda í vinstri höndina á þeim,- og halda fast. Atkvæði greitt G-listanum er at- kvæði greitt vinstri stefnu; greitt jafnrétti og mannlegri reisn gegn þeim gróðaöflum sem nú eru á góðri leið með að leggja íslenskt velferðarkerfi í rúst. Sigríður .lóhannesdútfir skipar nnnað sæti G- listans á Reykjanesi Guðmundur Sigurðssou Kratar fá fjóra Guðmundur Sigurðsson, Vogabæjarbóndi, var viss um að kratar fengju fjóra nienn inni, hafði auðsjáanlega trölla- trú á yfirlækninum. „Eg spái íhaldinu fimm mönnum, krötum fjórum, alla- böllum einum og framsókn tveimur. ** 4íé®l * REYKJANtSKJORDÆMI íhaldið fær sex Ásgeir Jónsson hjá Lögbók var viss um að Sjálfstæðis- flokkur fengi sex menn inni og ætti það að gefa Viktori byr undir báða vængi. „Ég hugsa að Alþýðuflokk- ur fái tvo menn, Framsókn tvo, Sjálfstæðisflokkur sex menn. G-listi einn og Kvennalisti einn. Ég alveg hlutlaus í nafnamálinu." Asgeir Jónsson

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.