Víkurfréttir - 06.04.1995, Blaðsíða 14
14
6. APRÍL 1995
VÍKURFHÉTTm
SVAR TIL ÞORSTEINS
VALS BALDVINSSONAR
Ágæti Þorsteinn!
Það er engan veginn auð-
velt að svara opinberlega
grein eins og þeirri sem þú
kaust að birta í Víkurfréttum
þann 30.mars. Bak við slíka
grein liggur mikill sársauki
og sorg sem enginn getur sett
sig inn í nema sá sem reynir
sömu atburðarás. Að reyna
að réttlæta að fólk þurfi að
horfast í augu við lát barns-
ins síns væri ósæmandi og
sennilega væri okkur best að
þegja þunnu liljóði. Hins-
vegar finnst okkur það
skylda að skýra frá þeim að-
stæðum sem við búum við og
þeirri atburðarás sem kann að
leiða til þess sem þið reynd-
uð.
Sjúkrahúsið býr við þær
aðstæður að skurðstofa er hér
opin fimm daga í viku með
bakvaktir eftir skurðdaga en
ekki yfir helgar. Auk þess er
henni lokað átta vikur á
sumrin og tvær vikur yfir
páska og jól. Það hefur verið
árviss rulla hjá okkur að
benda á þetta misræmi. Við
rekum hér þriðju stærstu
fæðingardeild landsins en
búum þó við þessar aðstæð-
ur. Þetta hefur slundum sett
óhóflegar kröfur á starfsfólk
Sjúkrahússins, því við stönd-
um stöðugt frammi fyrir því
að reyna að útiloka á þessum
lokunardögum öll þau bráða- ;
tilvik sem geta komið upp og
gera ráð fyrir að þau fari lil
Reykjavíkur áður en í óefni
er komið. Einkum geta þess-
ar aðstæður verið erfiðar
þegar skurðstofan er lokuð í
lengri tíma eins og á sumrin
og yfir stórhátaðir. En við
þetta höfum við búið allan
þann tíma sem sérfræðingar í
fæðingahjálp hafa starfað við
Sjúkrahúsið, það er s.l. 11
ár. Upphaflega var ástandið
þó enn verra þar sem leita
þurfti ásjár svæfingalækna í
Reykjavík fyrir hvern skurð-
dag og voru þeir þá á bak-
vakt heima hjá sér í Reykja-
vík. í dag erum við þó svo
lánsöm að til okkar er fluttur
svæfingalæknir þannig að
bakvaktir eru til taks á staðn-
uni þá daga sem skurðstofu-
vakt er. Innan fæðingafræð-
innar eru ákveðin sjaldgæf
tilvik sem allir óttast. Ef
naflastrengur fellur fram í
fæðingu eða fylgja losnar,
rofnar lífæðin milli móður og
fósturs, súrefnisskortur verð-
ur og ef ekki tekst að bregð-
ast réttilega við deyr fóstrið.
Ef fylgja losnar getur ástand-
ið verið mis alvarlegt allt frá
því að lítill hluti hennar losni
frá legveggnum í það að hún
losni öll skyndilega. Þetta á-
stand gerir stundum boð á
undan sér, en alls ekki alltaf.
Það skiptir að sjálfsögðu
miklu máli að hægt sé að
grípa inn í slíka atburðarás I
eins hratt og mögulegt er. En
jafnvel við bestu aðstæður
þegar allt er til reiðu þegar ó-
lánið skellur á, tekst manni
samt ekki að bregðast nógu
skjótt við. Barnið getur mis-
farist á leið frá fæðingastofu
inn á skurðstofu jafnvel þótt
engin bið verði. Oftast tekst
þó vel til ef aðstæður eru
réttar. Það getur enginn
staðhæft hver útkoman hefði
orðið í ykkar tilviki hefði
bakvakt verið til staðar þeg-
ar atvikið átti sér stað. Mín-
útur jafnvel sekúndur skipta
hér máli. Það kann líka að
vera að það tilvik sem þú
vitnar í hafi borið að á annan
hátt en þú telur, jafnvel að
móðirin sjálf hafi verið í lífs-
hættu. Þessi orð réttlæta þó
á engan hátt þá staðreynd að
við skulum ekki hafa efni á
bakvakt á skurðstofu um
helgar eða þurfa að loka
henni á sumrin.
Hér er um að ræða póli-
tíska ákvörðun sem starfs-
fólkið fær lítið gert við annað
en að benda á misræmið sem
í þessu felst. Þeir sem á-
kvarða fjármagnið til stofn-
unar okkar telja nýtingu á
bakvöktum á skurðstofu svo
litla að það svari ekki kostn-
aði að Itafa liana opna yfir
helgar. Auk þess megi spara
fjárútlát með því að loka
skurðstofu á sumrin og um
stórhátfðir. Við sem störfum
hér benduni iðulega á að
þrátt fyrir nánd við Stór-
Reykjavíkursvæðið geta
komið upp tilvik sem þessi.
Það særir óneitanlega að
þú skulir upplifa að Sjúkra-
húsið geti ekki veitt aðra þá
þjónustu en að gefa plástur
þá daga sem skurðstofa er
lokuð. Skurðstofa er hér opin
170-190 daga á ári en ekki
70 eins og þú heldur fram.
Við liöfum sérstaklega reynt
að leggja okkur fram við að
auka þjónustustig við íbúa á
Suðurnesjum. Um 92% af
konum á Suðurnesjum fæða
hér á deildinni þrátt fyrir allt
og margar konur utan af
landi. Ungbarnadauði er á ís-
landi hvað lægstur í öllum
heiminum. Hann er ekki
hærri hér hjá okkur en annars
staðar á landinu. Það skal
einnig tekið fram, að þrátt
fyrir allt gerast einnig slys og
tilvik sem þú upplifðir innan
veggja hátæknistofana. Það
réttlætir þó ekki þá staðreynd
að þið misstuð barn ykkar,
hugsanlega sem afleiðingu
þess að hér var ekki bakvakt
á skurðstofu. Það væri mik-
ill sigur fyrir heilbrigðisþjón-
ustu svæðisins ef við hefðum
efni á stöðugri bakvakt á
skurðstofu, þjónustu sem við
teljum að við getum veitt ó-
dýrari hér en í Reykjavík.
Osk okkar væri að geta stað-
hæft að slíkt kæmi í veg fyrir
svo voveifleg atvik sem þú
hefur lýst, því miður er það
ekki hægt.
Keflavík, 04.04.95.
Konráð Lúðvíksson,
yfirlæknir fæðingardeild-
ar Sjúkrahúss Suðurnesja
Oddný Guðjónsdóttir
skipar 1G. sæti á A-lista
í liúsi Verkalýðsfélagsins að TjarnargöÉu 8
á kosiiiiigadagiiin, 8. apríl nk.
Opið allan dagiiin.
Kosiiiiigasímar 37725 og 985-34110
Akstursþjónusta á kjörslaó.
Alþýöiiflokkurinn, Sandgorði.