Víkurfréttir - 06.04.1995, Blaðsíða 11
Wkwrfréttir
6. APRIL 1995
11
Sérstaða Þjóðvaka
FaUeinkunn
w #• •• / I
i qogur f117
Yfirstandandi kjörtímabil
hefur einkennst af atvinnuleysi,
svartsýni, aðgerðarleysi ríkis-
stjórnarinnar til að leysa þau
vandamál sem upp hafa komið.
Innan rfkisstjórnarinnar hefur
verið alvarlegt
ósamkomulag
s.s. um Evrópu-
málin. Innan
Sjálfsstæðis-
flokksins eru
skiptar skoðanir
um inngöngu í
Evrópusam-
bandið en Al-
þýðuflokkurinn
vill afhenda
Evrópulöndunum stjórnun fisk-
veiða með því að ganga inn í
Evrópusambandið. Hvernig í ó-
sköpunum er hægt að treysta
þessuni aðilum til að fara með
fjöregg okkar, þjóðum sem
stundað hafa rányrkju og yfir-
gang eins og t.d. Bretum og
Spánverjum. Framsóknarflokk-
urinn hafnar inngöngu í ESB.
Við teljum hag landsins betur
borgið með aukinni samvinnu
Norrænu landanna, samningum
við ESB og aukinni áherslu á
viðskipti við Bandaríkin.
Um tvíhöfða þurs
og þyrlukaup
Ríkisstjórnin hefur liaft tvo
formenn í sjávarútvegsnefnd.
Þessir tveir formenn hafa róið í
sitt hvora áttina og niðurstaðan
er engin. Margar mikilvægar á-
kvarðanir hafa beðið af-
greiðslu. í þeim aflasamdrætti
sem glímt er við þarf trausta
stjórn og menn sem þora að
taka ákvaðanir. Annað dæmi
um aðgerðarleysi ríkisstjórnar-
innar er að allt kjörtímabilið
hafa sjómenn mátt bíða eftir á-
kvörðun um þyrlukaup. Það
mál er ríkisstjórninni til
skammar.
Vandræðagangur
Vandræðagangur í ríkis-
stjórninni hefur einnig stöðvað
alla ákvörðunartöku varðandi
frísvæðið. Samband sveitarfé-
laga á Suðurnesjum hefur
margítrekað óskað eftir svörum
ríkisstjórnarinnar vegna máls-
ins en enn hafa engin svör
borist. Eg hef enga trú á að þeir
flokkar sem nú sitja í ríkis-
stjórn nái sanian í þessu mikil-
væga máli okkar Suðurnesja-
manna.
Atvinnuleysisdraugurinn
gerði einna fyrst vart við sig á
okkar svæði. Stjórn SSS leitaði
til forsætisráðherra og þar setti
ég fram ósk um sértækar að-
gerðir fyrir okkar svæði. En
forsætisráð-
herra þótti
engin ástæða
til að taka at-
vinnuleysi á
Suðurnesjum
mjög alvarlega
og sá engar
forsendur fyrir
slíkri aðstoð.
Það kom því
mjög á óvart
þegar Vestfirðir fengu sértækar
aðgerðir. Af hverju er atvinnu-
leysi fyrir vestan litið alvarlegri
augum en á Suðurnesjum?
Siðferðisbrestir
Á kjörtímabilinu hafa verið
miklar umræður um siðferði í
stjórnmálum. Sumar efmbætt-
isfærslur einstakra ráðherra
hafa vakið mikla athygli og
ekki að ástæðulausu. I Ijósi
þessa tel ég nauðsynlegt að
mótaðar verði tillögur t.d. um
ráðningar opinberra starfs-
manna. Það getur á engan hátt
talist skynsamlegt að t.d. utan-
ríkisráðherra sé að eyða tíma
sínum í að ráða starfsmenn í
ýmis störf á Keflavíkurflug-
velli, s.s. í Fríhöfn, tollverði
eða lögregluþjóna. Það væri
mun eðlilegra að viðkomandi
yfirmenn tækju þessar ákvarð-
anir og bæru ríkari ábyrgð á
rekstri viðkomandi stofnunar.
X-B: Einfaldlega betra
Það er nauðsynlegt að koma
ríkisstjórninni frá og hefja nýja
sókn í atvinnumálum. Þjóðin
þekkir störf Halldórs Ásgríms-
sonar, formanns Framsóknar-
flokksins. Hann er heiðarlegur
og traustur stjórnmálamaður
sem stendur við gefin fyrirheit.
Það er mikilvægt að hann verði
í næstu ríkisstjórn og því skora
ég á þig ágæti lesandi, að
merkja X við B á kjördag.
Drífa Sigfúsdóttir
y
Þjóðvaki er ekki hefðbundin
stjórnmálahreyfing. Þjóðvaki
er félagshyggjuhreyfing sem
vill sameiningu félagshyggju-
aflanna í næstu ríkisstjórn en
Þjóðvaki vill meira. Þjóðvaki
berst fyrir uppstokkun gamals
og spillts flokkakerfis.
Hvaða ríkisstjórn?
Flokkakerfið hérlendis er
áratuga gamalt og staðnað og
flækt í vörslu eigin hagsmuna.
Áhrif kjósenda eru ekki mikil
þegar það er haft í huga að þeir
fá ekki að vita hvernig ríkis-
stjóm gömlu flokkarnir ætla að
mynda í kosningum.
Þjóðvaki er eina stjórnmála-
hreyfingin hérlendis sem segir
skýrt hvað hún ætlar að gera að
loknum kosningum, ekki ein-
ungis í skýrt orðuðum málefn-
um heldur einnig hvers konar
ríkisstjórn á að mynda.
Stefna Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn er for-
ystuafl flokkakerfisins og
laustengt hagsmunabandalag.
Þegar á reynir veit Sjálfstæðis-
flokkurinn alltaf með hverjum
hann tekur afstöðu. Hann ver
hagsmuni stórfyrirtækjanna,
hátekjumanna og stóreigna-
fólks enda styðja flestir úr
þeim stéttum Sjálfstæðisflokk-
inn. Það er í mótsögn í sjálfu
sér að fjölmargt launafólk
Kæri kjósandi.
Nú að lokinni loðnuvertíð,
gefst loks tækifæri til þess að
setjast niður og hugsa svolítið
til framtíðar með tilliti til þess
sem gerst hefur síðustu fjögur
árin. Þann S.apríl nk. gefst þér
kostur á breytingum til hins
betra á öllum þeim þáttum sem
viðkoma þér og þínum.
Síðustu fjögur ár hafa verið
miklar frosthörkur. Við völd
hefur verið ríkisstjórn sem hef-
ur Iagt mikið á sig til þess að
rétta hlut fyrirtækja og fjár-
magnseigenda og ekki verið
vanþörf á, þar sem sultaról
þeirra hefur verið að herðast
um of.
Álögur á sjúklinga
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks hefur að sjálf-
sögðu sótt fjármagn til þeirra
þar sem “of mikið” hefur verið
til af því, en það er hjá öldruð-
um, öryrkjum, atvinnulausum,
barnafjölskyldum og þeim
lægst launuðu í þjóðfélaginu.
Þetta fjármagn hafa þeir náð í
með lækkun vaxtabóta, barna-
bóta, skattfrelsismarka og með
auknum álögum á sjúklinga.
Sem dæmi um sjúklingaskatt
get ég sagt þér að samkvæmt
upplýsingum frá Sjúkrahúsi
Keflavíkur er mjög algengt að
konur sem fara í smáaðgerð, s.s
speglun, þurfi að greiða reikn-
inga á bilinu 10-13.000, en kon-
ur þurfa oft á svona aðgerð að
halda. Þetta eru nánast heil
vikulaun verkakonu í frysti-
húsi. Jafnhliða bættri stöðu fyr-
irtækja og úthlutunar arðs til
fjármagnseigenda hefur at-
vinnuleysi farið stigvaxandi en
styðji Sjálfstæðisflokkinn í
kosningum.
Það er augljós staðreynd að
tekju- og eignaskiptingin er
ranglát hérlendis. Sjálfstæðis-
flokkurinn vill ekki breyta
Agúst Einarssou
þessu fyrirkomulagi. Það er
Sjálfstæðisflokkurinn sem hef-
ur barist gegn fjármagnstekju-
skatti, lækkun skattfrelsis-
marka lágtekjufólks og afnámi
eftirágreiðslu námslána.
Það skal að niati Sjálfstæðis-
flokksins setja verðmiða á
flestalla félagslega þjónustu.
Hægri flokkar í Evrópu eins og
Sjálfstæðisflokkurinn njóta þar
10-15% fylgi og það svarar til
hagsmuna þess fólks sem þeir
eru í forsvari fyrir.
Gefum
Sjálfstæðisflokknum frí
Það er markmið Þjóðvaka að
gefa Sjálfstæðisflokknum frí
frá landsstjórninni í næstu rík-
isstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn
þeir sem enga atvinnu hafa geta
þó glaðst yfir því að atvinnu-
leysið er ekki nærri því eins
mikið og spáð hafði verið. At-
vinnulausir geta nú tekið gleði
sína á ný þar sem nú er spáð
meiri hagvexti og uppsveiflu í
atvinnulífinu sem mun koma
þeim sem eiga peningana fyrir,
mjög til góða.
Atvinnuleysi
Framundan er ekkert sem
bíður atvinnulausra nema þá
helst sumarafleysingar og at-
vinnuátak í gegnum þriðja að-
ila eins og það er kallað en þá
geta fyrirtækin,- þessi “illa
stöddu" -fengið greitt með
Ragnhildur L. Giiðinutulsdóttir
starfskraftinum úr atvinnu-
tryggingasjóði. Nær væri að
nota þetta fjármagn til atvinnu-
uppbyggingar sem gæfi fólki
kost á framtíðarvinnu við
aukna verðmætasköpun.
í síðustu viku (23/3-28/3)
voru um 400 einstaklingar at-
vinnulausir í bæjarfélaginu
okkar og má búast við ein-
hverri aukningu á næstunni.
Hvað bíður þessa fólks? EKK-
ERT, ef við berum ekki gæfu
til þess að fella ríkisstjóm Dav-
íðs Oddssonar.
styður fákeppni olíufélaganna,
tryggingafélaganna og annarra
stórfyrirtækja. Minni fyrirtæki
eiga þar ekki málsvara í reynd.
Samkeppni sem er aðals-
merki markaðsbúskaparins er
ekki lykilatriði Sjálfstæðis-
flokksins heldur einungis á
þeim sviðum þar sem ekki er
stuggað við máttarstólpum fyr-
irtækja Sjálfstæðisflokksins.
Trúnaður við fólkiö
Þungamiðja stefnu Þjóðvaka
er vörn fyrir velferð og vel-
megun sem byggist á trúnaði
við fólkið í landinu. Við viljum
atvinnuuppbyggingu sem gerir
kröfu til fyrirtækjanna að bæta
framleiðni sína til að auka
verðmætasköpun og bæta kjör
og útrýma atvinnuleysi.
Það er komið nóg af því að
slegin sé skjaldborg um ís-
lenskt atvinnulíf í formi lágra
launa og langs vinnudags. Það
er ekki þannig þjóðfélag sem
við viljum.
Atkvæði greidd Þjóðvaka í
kjördæminu er ávísun á breytta
stjórnarhætti, tryggari framtíð
og heiðarlegri stjórnmálamenn.
Stjórnmál snúast ekki ein-
ungis um stefnu heldur einnig
um fólk.
Ágúst Einarsson, prófessor,
skipar 1. á lista Þjóðvaka í
Reykjarneskjördæmi.
Annað viðhorf
Alþýðullokkur segir, ísland í
A-flokk ! Eg spyr, eiga þeir við
A-flokk fyrir erlenda tjárfesta,
þar sem búið er að festa í sessi
láglaunasvæði og nægt at-
vinnuleysi til þess að brjóta
niður alla samstöðu verka-
fólks? Þetta er Jafnaðarmanna-
flokkurinn sem segist bera fyrir
brjósti velferð þeirra sem
minna mega sín. Sjálfstæðis-
flokkurinn segir, Betra ísland !
Fyrir hverja? Jú, fjármagnseig-
endur yrðu að sjálfsögðu glaðir
ef þeir gætu orðið áskrifendur
að árlegum arði fyrirtækja.
Villt þú kjósandi góður,
halda áfram að herða sultaról-
ina til þess að fylla buddu fjár-
magnseiganda? Ég er viss um
að svo er ekki. Er ekki komin
tími hlýindaskeiðs og gróanda
með vinstra vori? Alþýðu-
bandalagið og óháðir liafa lagt
fram ítarlega stefnu í atvinnu-
málum, sem felur m.a. f sér
2000 ný störf á næstu 12 mán-
uðum, aukinni markaðsókn í
öllum heimsálfum og jöfnun
lífskjara með skattkerfisbreyt-
ingum og gegnsærra launa-
kerfi.
G-listinn telur brýna þörf á
því að laga skuldastöðu heimil-
anna og endurbæta stöðu hús-
næðismála. Eina trygging þín
kjósandi góður til þess að fá
fram breytingar í átt til betri
framtíðar er með vinstri sigri,
vinstri stefnu og vinstra vori.
Veldu X við G þann 8. apríl nk.
Með kærri kveðju til þín!
Ragnhildur L.
Guðnuindsdóttir
Betri framtíi mei vinstri sigri