Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.1995, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 06.04.1995, Blaðsíða 12
12 6. APRÍL 1995 VllOIPFRÉTTIR Þjóðvaki í sjávarútvegi Nú þegar styttist í kosningar hafa línur orðið skýrari í stefnu flokkanna í sjávarútvegsmál- um. Formaður Framsóknar- flokksins segir í Tímanum, 11. mars, að flokkurinn hafi sam- þykkt aflamarkskerfi á tlokks- þingi sínu síðastliðið haust . Þetta er rétt. Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt að stefna Sjálfstæð- isflokksins sé aflamarkskerfi. Ekki minnast þeir á undantekn- ingar frá aflamarkskerfinu. enda er það skoðun Kristjáns Ragnarssonar formanns L.I.Ú., að aflamarkskerfi þýði aðeins eitt kerfi. Þeir bátar sem róa á sóknarmarki í dag, krókaleyfis- bátar, skuli l'ara á aflamark sem þýðir aðeins eitt; að þeir skuli brenndir eða niðurgreiddir sem gjöf til annarra þjóða. Hvorki formaður Framsóknar né Sjálf- stæðisflokksins minnast á verð- lagningu á fiski, enda er það stefna alræðis aflamarkskerfis- ins, að þeir sem hafa einkarétt á að veiða fisk skuli líka hafa einkarétt á að selja sjálfum sér hann á spottprís eftir að hann kemur á land. Skipti þá engu þótt aðrir geti boðið hærra verð og fái hærra verð fyrir hann við sölu úr landi. Alræðið og ein- okunin skuli gilda. Alræði eða þ jóðræði í næstu kosningum mun það ráðast livort alræði í sjávarút- vegsmálum verður fullfrágeng- ið, með tilheyrandi fátækt og misrétti undir forystu núverandi sjávarútvegsráðherra. Óbreytt stjórn þýðir það. Líka stjórn Sjálfstæðisflokksins með öðr- um. Aðeins með styrk Þjóð- vaka mun þjóðin fá meiri hagn- að af auðlegð sinni með auknu frjálslyndi. I stefnuskrá Þjóð- vaka segir: "Kannað verði ítar- lega m.a. með samanburði við fiskveiðistjórnunarkerfi í öðr- um löndum, hvort annað fyrir- komulag veiðistýringar, svo sem svæðakvóti, veiðifærakvóti eða kvóti á einstakar gerðir fiskiskipa sé heppilegt og hag- kvæmt við íslenskar aðstæður." Eins og fram kemur í stefnu- skrá Þjóðvaka, er þar engum sérstökum skipum né fiski- mönnum hafnað. Næg verkefni á að vera að finna fyrir þau skip sem fyrir hendi eru í dag og koma þar veiðar fyrir utan landhelgina helst til greina samhliða tilfærslu á veiðiheim- ildum með veiðileyfagjaldi. í stefnuskrá Þjóðvaka er réttur þeirra báta sem engum fiski henda, né landa framhjá vigt, krókaleyfisbátanna, viður- kenndur. Lagt er til að öðrum smábátum og dagróðrabátum verði gefinn kostur á króka- leyfi. Það er alkunna að hag- vöxtur eykst oft þegar ný ríkis- stjórn tekur við. Bjartsýni eykst, fyrirtæki fjárfesta. Það besta fyrir hagvöxtinn í þessu landi er að nýtt fólk taki við. Það mun aðeins gerast með styrk Þjóðvaka. Sigurgeir Jónsson, sjómaður Sandgerði Viktor á þing N.k. laugardag höfum við ungir kjósendur í fyrsta skipti tækifæri á að velja okkar niann á alþingi. Viktor er eini frambjóðand- inn undir þrjá- tíu ára aldri sem á mögu- leika á því að komast á þing. Hann skipar barát t u sæ t i Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi fyrir þess- ar kosningar. Viktor er á þeim aldri að hann þekkir vandamál ungs fólks sem hefur lokið námi, er að stofna til fjölskyldu og að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Við getum því nýtt okkur þekkingu og reynslu hans til að berjast fyrir okkar málurn. Okkur hefur oft fundist að ekki væri nægjanlega mikið hlustað á unga fólkið af þeim sem eldri eru, kannski vegna þess að eldra fólk er að fást við önnur vandamál en við unga fólkið. Nú er komið að því að við tökum höndum saman og komum okk- ar málefnum á alþingi. Ég þekki Viktor vel og veit að hann mun af öllum sínum krafti vinna vel fyrir okkur. A laugardaginn kemur, kæri kjósandi, getum við staðið sam- an og merkt x við D og þannig komið okkar manni á þing. Kristmundur Carter stjórnarmaður í Heimi, félagi ungra sjálfstæðis- nianna í Keflavík, Njarðvík og Höfnum r dfopiiin Hafnargötu 90 -1 47 90 Páskatilboð 20% afsl. af innimálningu Birgir Guðnnson Ánægður með Keflavík-Njarðvík Birgir Guðnason úldeildi þing- mönnunum af miklu jafnaðargeði og gaf þeim öllum sinn skerf. „Eg spái Sjálfstæðisflokknum 4 þingsætum, kommum tveimur, framsókn tveimur og krötum tveimur en Þjóðvaki fær eitt og Kvennalisti eitt. I nafnamálinu er ég sáttastur við Keflavík-Njarðvík og myndi ég styðja það ef það yrði í boði. Eg held að það yrði heppi- legasta niðurstaðan í málinu, alla- vega þægilegasta lendingin. Eg vil ekki sjá þessi sem eru í boði.“ Ámi Júlíusson Hallast frekar á að íhaldið fái sex menn Árni Júlíusson spáir íhaldinu sjötta manni frekar en að kratar fái þriðja mann á laugadaginn. „Ég spái krötunum tveimur sæt- um, Framsókn tveimur, kommum og Þjóðvaka einu en Sjálfstæðis- flokkur fær að öllum líkindum sex menn. Nafnakosningin verður ef- laust ógild en þar spái ég því aö Reykjanes verði ofan á. Annars vildi ég hafa Keflavík-Njarðvík. mér finnst það betra.“ Kiddi Dnn Tryggjum Sigríði brautargengi Góðir kjósendur Nú þegar þú gengur að kjör- borðinu til að kjósa þér þing- menn sem eiga að vera um- boðsmenn þínir næstu fjögur árin, vil ég benda þér á kosti fulltrúa Alþýðubandalagsins og óháðra, Sigríði Jóhannesdóttur, sem skipar annað sæti listans. Sigríður Jóhannesdóttir er dugmikil félagshyggjumann- eskja, sem hefur mikla reynslu og hæfileika sem tvímælalaust munu nýtast okkur Suðurnesja- mönnum á Alþingi. Fjölmargir þekkja hana að af góðu sem kennara , en hún hefur ávallt látið hag nemenda sinna miklu skiptu, bæði hvað snertir nám og persónulega hagi þeirra og fjölskyldna þeirra. Sigríður hef- ur mika reynslu af félags- og kjaramálum kennara, en hún sat í stjórn kennarasambandsins f 10 ár og var formaður stjórnar orlofssjóðs kennarasambands- ins þar til á síðastliðnu vori. Árum saman sat Sigríður í stjórn Norræna kennarasam- bandsins og síðastliðin 4 ár hef- ur hún verið formaður skóla- nefndar Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Hún er núna formaður Norræna félagsins í Ketlavík. Einnig hefur hún starfað mikið innan Alþýðubandalagsins, en Sigríður er nú forntaður fram- kvæmdarstjórnar flokksins. Skilningur Sigríðar á samfé- lagi okkar og áhugi hennar á að koma á auknu réttlæti hér á Islandi endurspeglast í helstu á- herslupunktum G-listanna fyrir þessar kosningar. Alþýðu- bandalagið hefur bent á nauð- syn þess að hér á landi verði tekin upp ný atvinnustefna og liafa bent á nyjar leiðir í at- vinnumálum í Grænu Bókinni. Setja á einstaklinginn og fjöl- skylduna í fyrirrúm og ná fram velferð og jöfnuði. Nauðsyn- lega þarf að taka upp í landinu nýtt gagnsætt launakerfi sem feli í sér kjarajöfnun. þessu tengist krafan um réttlátara skattkerfi, að óréttlátum álög- um sé létt af lág- og millitekju fólki og aðgerða er þörf f hús- næðismálum. Gera skal siðbót í stjórnsýslu og fyrirtækjarek- stri.Við þurfum að hverfa frá núverandi fiskveiðistefnu. Fiskistofnarnir eru þjóðareign og þá ber að nýta á skynsam- legan hátt. G-listinn hafnar Sálveig Þórðnrdóttir hugmyndinni um að binda ut- anríkisviðskipti okkar einvörð- ungu við gömlu nýlenduveldin í E.S.B; heldur viljum við einnig hafa viðskipti við fjar- lægari heimshluta. Sigríður er einstaklingur sem ég veit að vel mun gæta hags- muna okkar Suðurnesjamanna ásamt því að vera góður fulltrúi alþýðu þessa lands. Hún mun ávallt taka heildarhagsmuni fram yfir sérhagsmuni. þannig einstaklinga vil ég sjá á Al- þingi. Því skora ég á alla Suð- urnesjamenn, sem leggja á- herslu á jöfnuð, að tryggja Sig- ríði Jóhannesdóttur brautar- gengi í kosningum á laugardag- inn kemur. þetta gerunt við með því að setja X við G. Sólveig Þórðardóttir íhaldið sterkasti flokkurinn Björgvin Lúthersson, símstöðv- arstjóri, spáir Sjálfstæðisflokknum Björgvin Liíthersson íhaldið má þakka fyrir fjóra Kiddi Dan. spáði fyrir okkur um úrslitin og sagðist jafna þessu á flokkana. „Kratar, Framsókn, kommar og Þjóvaki fá tvö þingsæti livert en í- haldið má þakka fyrir ef þeir fá fjóra menn inni að þessu sinni. Ég spái hinsvegar Reykjanesi sigri í nafnakosningunni." sex mönnum og strikar út Kvenna- listann í kjördæminu. „Ég spái Sjálfstæðisflokknum yfirburðasigri eða alls sex þingsæt- um, kratar og Framsókn fá tvo hvor og Alþýðubandalag og Þjóðvaki einn.“ Kristinn Benediktsson Allir fá eitthvað Kristinn Benediktsson í Bláa lóninu var gjafmildur og spáði öll- um þingmönnum. „Alþýðuflokkur og Framsókn fá tvo menn hvor flokkur. Sjálfstæðis- flokkur fær Fimm menn en Alþýðu- bandalag, Þjóðvaki og Kvennalisti fá öll einn þingmann."

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.