Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.1995, Síða 16

Víkurfréttir - 06.04.1995, Síða 16
16 6. APRÍL 1995 VlffURFRÉTTIR Heitar umræður á bæjarstjórnarfundi í Keflavík, Njarðvík, Höfnum um nafnamálið: Drííu hótuð meirihlutaslitum -allt í loft upp eftir ummæli forseta bæjarstjómar um nafnamálið. Drífa sökuð um að vera á atkvæðaveiðum! Ummæli DnTu Sigfúsdóttur, förseta bæjarstjómar Keflavíkur, Njarðvíkur og Haftta á Stöð 2 á mánudagskvöld- ið, þar sem hún sagðist m.a. vilja skoða mótmæli hinna sveitarfélaganna vegna nafhakosningarinnar og einnig ræða hugsanlega frestun á málinu inn- an bæjarstjómar, féllu í grýttan jarðveg hjá öðrum bæjarfulltrúum. Létu mttrgir þeirra þung orð falla í hennar garð á bæjarstjómarfundi á þriðjudagskvöldið og sökuðu hana um að vera á at- kvæðaveiðum. Drífa sat ekki bæjarstjómarfund |xgar ákvörðun var tekin um að láta kjósa um nöfnin Reykjanesbær og Suðumesbær. A |reim fiúndi sem var lokaður öðmm en bæjartúlltrúum var einnig kynnt greinargerð sem m.a. snéri sérstaklega að hinum sveitarfé- lögunum en |rau hafa nú mótmælt því að kosið verði um nafnið Suðumes- bær. Anna MargrétGuðmundsdóttir, Al- þýðutlokki opnaði umræðuna á fund- inum á þriðjudttg og gagnrýndi förseta bæjarstjómar fyrir ummæli í fjölmiðl- um um mál sem allir bæjarfulltrúar helðu verið sammála um og margrætt. Jónína Sanders, formaður bæjarráðs ásakaði Drífú að vera á atkvæðaveið- um vegna þingkosninga á laugardag og undir það tók Kristján Gunnarsson, Alþýðullokki. Drífa fór því næst í pontu og skýrði sitt mál. Hún sagðist hafa fúndið fyrir talsverðri óánægju á vinnustaðafund- um sem hún hafi farið á að undantomu meðul bæjarbúa vegna nafnamálsins og minntist á niðurstöður skoðana- könnunar Víkurfiétta sem sýndi mikið fylgi við nafnið Keflavrk-Njarðvík. Drífa sagðist hafa séð áskorun trá hin- um sveitarfélögunum og taldi jxtð eðli- legt að hún yrði skoðuð, eins og hún sagði í viðtali við fiéttamann Stöðvar 2 á mánudag. A bæjarstjómarfúndinum sagði hún síðan: „t dag las ég hins veg- ar greinargerð þar sem sérstaklega er fjallað um þau mál sem snúa að ná- grannasveitarfélögunum vegna nafú- giftar bæjarins. Hún skýrir málið all- vel. Eg hef hins vegar rætt við all marga bæjarfúlltrúa um málið og tel eftir þær viðræður að afstaða bæjar- stjómar sé óbreytt. Eg hef hvergi lagt til að málinu verði ftestað og mun ekki gera |rað", sagði Drífa sem jafhframt benti á að hún leyfði sér að hafit skoð- anir. Hún hefði látið þær koma fiam í viðtalinu á Stöð 2 og þess vegna skildi hún ekki þessa viðkvæmni bæjarfúll- trúa. Hún heföi ekki verið búin að sjá lögfræðiálit vegna hinna sveitarfélag- anna sem hinir bæjarfulltrúar hetðu rætt um á lokaða bæjarstjómarfúndin- um. Því hefði henni fúndist eðlilegt að segja að það ætti að skoða mótmæli sveitarfélaganna. Drífa sagði eftir bæj- arstjómarfúndinn í samtali við blaða- mann að jretta lögfræðiálit heiði verið geymt á skrifstofu bæjarstjóra sem trúnaðarskjal og því hefði hún ekki verið búin að sjá jrað. Jóhann Geirdal, Alþýðubandalagi sagðist ekki ánægður með skýringar forseta. Það væri auðvelt fyrir hvem og einn að standa upp rétt fyrir kosningar og segja Itvað hann vildi og rétt væri að skoða. Mjög mikil umræða væri búin að eiga sér stað í bæjanáði og bæjarstjóm og því væri jretta eins og rýtingsstunga í bak annarra bæjarfúll- trúa fiá forseta bæjarstjómar. Jóhann sagði trúnað við forseta brostinn. „Við erum kosin til að taka ákvarðanir og getum ekki hlaupist undan merkjum". Drífa spurði í framhaldi af máli Jó- hanns hvort bæjarfulltrúar væm ekki alltaf tilbúnir að skoða mál sem jreim bæmst í hendur og endurtók að hún hefði ekki verið búin að sjá umrætt lögfræðiálit sem lagt var fram á lokaða bæjarstjómarfundinum. Anna Margrét sagði að það væri krafa allra að forseti bæjarstjómar vissi um jafh mikilvæg mál og lögfræðiálit vegna hinna sveitarfélaganna. Ekki væri hægt að segja að hún hafi ekki skoðað jxtð. Umræðum um fretta mál lauk án nokkurra tillögu eða annarrar af- Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæj- arstjómar. greiðslu. Málið stendur eins og ákveð- iðhefúrverið. Drífa sagði á mr'tnudag við Stöð 2 að hún ætlaði að ræða við bæjarfull- trúa um þann möguleika að fresta kosningunni vegna mikillar óánægju og jreirra mótmæla sem borist liafa. ,J2fúr að hafa rætt jressi mál við hina bæjarfulltrúana fyrir bæjarstjómar- fundinn fann ég að málinu varð ekki haggað", sagði Drífa eftir fundinn. -Nú var bæjarfulltrúum heitt í hamsi á bæjarstjómarfúndinum og því ljdst að jreir hafa ekki rætt við þig fyrir hann á ljúfum nótum. Varðstu fyrir verulegum óþægindum vegna jress sem þú sagðir í fréttum Stöðvar 2. Fékkstu kannski hótanir? „Eg get ekki neitað því að það hreinlega sauð uppúr og jú, ég fékk að heyra hótanir". -Um slit á meirihluta? „Það vom ýmis orð látin falla undir rós í hita leiksins. Meðal annars var minnst á hugsanlegan nýjan meiri- hluta. En ég tók jtessum ummælum ekki alvarlega. Ég tel sjálfsagt að bæj- arstjóm ræði jafh mikilvægt mál og nafhamálið er fyrir bæjarbúa, jx5 svo að ákvörðun hafi legið fýrir í rnálinu, í Ijósi jteirrar óánægju sem fram hefur koniið." Leiðari: Um gefín loforð Enn er gengið til kosninga á Suðurnesjum. A undanförnum tveimur árunt hafa mörg atkvæði verið greidd í sveitarstjórnar- kosningum, sameiningar-, nafna og safnaðarheimiliskosningum. Næstkomandi laugardag verður kosið um hverjir komi til nteð að ráða ríkjum á alþingi voru. Einnig verður kosið um nafn á sameinaða bæjarfélagið. Óhætt er að segja að nafnamálið hafi skyggt á liina kosningabaráttuna og frambjóðendur hafa óspart fengið að heyra óánægju nteð framgang nafnaklúðurs í samein- uðu sveitarfélagi. Forseti bæjarstjómar fékk einnig orð í eyra frá félögum sínum í bæjarstjórn á þriðjudaginn, fyrir það eill að leyfa sér að hafa þá skoðun að hugsanlega niætti ræða betur framgang ntálsins. Allir vissu að ákvörðun hafði verið tekin en að bæjarfulltrúi skuli fá þvílíka útreið frá kollegum sínum, jafnt í rneiri- sem minnihluta er ekki eðlilegt í Ijósi þess að mikill meirihluti bæjarbúa hefði stutt það að fresta rnálinu, - og freista þess að finna flöt sem fleiri hefðu sæst á en að velja á milli tveggja nafna sem lílil sátt er um. Bæjarfulltrúar ræddu um gefið loforð í nafnamálinu og að við það ætti að standa. Margir hafa efast um |rað hvernig fulltrúar fyrri bæjarstjórna gátu gefið slíkt loforð. Fara svo með rnálið fyrir atkvæðagreiðslu hjá bæjarbúum sem síðan kolfella loforðið sem bæjarfulltrúarnir voru búnir að gefa, þ.e. að leyfa ekki gömlu bæjamöfnin. í skoðanakönnuninni í fyrravor samhliða bæjarstjórnarkosningum fengu nöfnin Suðurnes og Reykjanes samtals 11% atkvæða. I skoðanakönnun Víkurfrétta fyrir skömmu var mikill meirihluti fyrir því að halda gömlu bæjar- nöfnunum. En það virðisf ekki skipta bæjarstjórn neinu máli hvað bæjarbúar vilja. Bæjarfulltrúar eru búnir að ræða málið svo mikið og skoða að nú skal bara kjósa um það sem þeim finnst,- ekki það sem bæjarbúa vilja. Sameiningin hefur skilað árangri í rekstri bæjarfélagsins en að leggja það fyrir mikinn meirihluta bæjarbúa að „loforð" um að nota ekki gömlu bæjarnöfnin skipti meira máli en hagkvæmni sameiningar, er út í hött. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvað frambjóðendur sem nú komast á þing sem og starfandi bæjarfulltrúar í sameinuðu sveitarfélagi, - ná að efna mörg lof- orð sem þeir hafa gefið. l’áll Ketilsson. VOND Bæjarstjóm Keflavíkur, Njarð- víkur og Hafna er ákveðin í að at- kvæðagreiðsla um nýtt nafn á sveitarfélagið fari fram 8. apríl nk. samhliða kosningum til al- þingis. Atkvæðagreiðslan skal vera um nöfnin Reykjanesbæ og Suðurnesbæ, þrátt fyrir að í tvígang megi leiða líkur að því að meira en 80% bæjarbúa vilji |rau ekki. Fyrir tæpu ári síðan, eða 16. apríl í fyrra fóru fram kosningar um nafn á sveitarfélagið. Þá var kosið um fimm nöfn, Suðumes, Reykjanes, Hafnavík, Nesbæ og Fitjar. Einnig var auð lína á at- kvæðaseðlinum þar sem kjósend- ur máttu skrifa inn annað nafn en þessi sem í boði voru. Nöfn bæj- arfélaganna þriggja komu þó ekki til greina skv. ákvörðun sveitar- stjómarmanna. Þau vom bönnuð. Alls greiddu 2199 bæjarbúa at- kvæði. Af nöfnunum fimm fékk Suðumes flest atkvæði, eða 631 sem var nálægt 9% íbúa á kjör- skrá. Önnur nöfn á atkvæðaseðl- inum fengu fá atkvæði. 1088 bæjarbúa lýstu óánægju sinni með þau nöfn sem í boði voru og rituðu nafnið Keflavík í auðu lín- una og 77 gerðu atkvæðaseðla sína ógilda. Nálægt 4000 manns sýndu kosningunum áhugaleysi eða andúð og tóku ekki þátt í þeim. Bæjarstjórnin ákvað eftir þessar kosningar að Suðumesja- bær skyldi vera nafnið á sveitar- félaginu, en var gerð afturreka með þá ákvörðun sína eins og menn muna. Félagsvfsindastofnun Háskól- ans framkvæmdi skoðanakönnun fyrir Víkurfréttir fyrir stuttu. í henni fengu þessi tvö nöfn, Reykjanesbær og Suðurnesbær háðuglega útreið, því fýrra nafnið fékk 7% atkvæða og það seinna 4% atkvæða. Ef kosið væri um þrjú nöfn. þ.e. Reykjanesbæ, Suðumesbæ og nafnið Keflavík- Njarðvík, fengi Reykjanesbær 17% atkvæða, Suðumesbær 23% atkvæða og Keflavík-Njarðvík 60% atkvæða. Þetta sýnir auðvit- að það að meirihluti íbúanna vill ekki breyta núverandi nöfnunr. Þrátt fyrir þessa eindregnu skoð- anir meirihluta íbúa í þessari skoðanakönnun, þar sem meira en 80% íbúa vilja sjá annað nafn á sveitarfélaginu en Reykjanesbæ eða Suðurnesbæ, ætlar bæjar- stjórnin að hnoða öðru hvoru nafninu á sveitarfélagið. Hann er undarlegur þessi ásetningur bæjarstjórnarinnar að ætla að ganga gegn vilja meiri- hluta bæjarbúa enn á ný f þessu máli. Það hefur heyrst í bæjarfull- trúum að þeir séu að standa við loforð sem þeir gáfu, um að nú- verandi bæjarnöfn yrðu ekki í Keflavík- Njarðvík-Hafnir: Gömlu kjör■ staðirnir notaðir Þar sem kennaraverkfalli hefur verið frestað samþykkti bæjarstjórn Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna á fundi á þriðjudag að nota ekki íþróttahúsin sem kjörstaði heldur „gömlu" kjörstaðina, þ.e. Njarðvíkurskóla og Holtaskóla í Keflavík. í Höfnum verður kosið í hús- næði björgunarsveitarinnar Eldeyjar. A þessum stöðum verður kosið til alþingis sem og í nafnamálinu. Nýr veit- ingastaður fær vínveit- ingaleyfi Nýr veitingastaður verður opnaður að Hafnargötu 30 í næstu viku. Hlutafélagið Gunnarsson hf. sem mun reka staðinn fékk vínveit- ingaleyfi sanrþykkt á bæjar- stjórnarfundi í fyrradag sem og Halldór Sigdórsson, veit- ingamaður á Café flug. A Brosinu í gær kom fram að nýi veitingastaðurinn sem verður til húsa þar sem Edin- borg var áður mun líklega opna 19. apríl nk. Ekki er búið að finna nafn á staðinn. nafni sameinaðs sveitarfélags. Það væri fróðlegt að fá að vita hverjum bæjarfulltrúar hafa lofað að svipta sveitarfélögin núver- andi nöfnum sínum, nöfnum sem þau hafa borið um aldir. Meiri- hluti íbúanna kannast greinilega ekki við að eiga slík loforð inni hjá bæjarfulltrúum. Undirritaður féllst á að taka sæti í kjörstjóm, er bæjarstjóm skipaði í til að sjá unt fram- kvæmd kosningar um nýtt nafn á sveitarfélagið. Þegar ég gerði það datt mér ekki í hug að ég gæti ekki sjálfur tekið þátt í þeirn sömu kosningum vegna ein- strengislegrar ákvörðunar bæjar- stjómar um valkosti. Þetta er hlá- leg staða. Eg hef því ákveðið að minn eini valkostur í kosningun- um sé að gera seðilinn ógildan með því að strika yfir þau tvö nöfn sem í boði eru, og reyna þannig að koma þeim skilaboð- um til bæjarstjórnarinnar að ég vilji ekki breytingar á núverandi nöfnum. Þetta virðist nærtækasti möguleiki minn til að mótmæla því að bæjarstjóm hvikar ekki frá ákvörðun sinni um nafnakosning- una, þrátt fyrir að mikill meiri- hluti bæjarbúa sé andvígur því sem kjósa á um í þessum kosn- ingum. Þetta er vond bæjarstjóm. Magnús Haraldsson.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.