Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 2
2 2. NÓVEMBER 1995 vIkurpréttir MMMMMIM tjlÍJMmiM MMMMMMMMMiMMMMMMM Nóvember-tilboð! Gegn framvísun þessa miða er 10% kynningarafsláttur á „HEIMSBYGGDIN" Sóhabúi HefífaVíkur - daglega í leiíinri! Sólvallagölu 2 • Kellavlk • 8ími 4211102 Tilboð Aðalstöðin óskar eftir tilboðum í snjómokstur. Nánari upplýsingar á skrifstofu Aðalstöðvarinnar í síma 421-1518 Bjartar horfur í verktaka og varnarliðsmálum á Keflavíkurflugvelli: FLUGHER FER EKKIOG AUKNAR FRAMKVÆMDIR -Vamarliðsþyrlur áfram á vellinum og mörg hundruð varnarliðsmenn fara ekki eins og áætlað var Hciðarholt 4, Kcflavík 65 ferm. 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu ástandi. Hagstæð byggingarsj. lán áhvílandi. Laus strax. Lækkað verð. 4.300.000,- Smáratún 31, Keflavík 125 ferm. 4ra herbergja efri hæð, ásamt 55 ferm. bílskúr. Sérinngangur. Skipti á ódýrari fasteign koma til greina. Vönduð eignágóðumstað. 8.700.000.- Heiðarból 10, Keflavík 3ja herbergja íbúð á I. hæð í góðu ástandi. Losnar fljótlega. Lækkað verð. Nánari upplýsingar á skrif- stofunni. Tilboð Vallargata 26, Keflavík 3ja herbergja íbúð á neðstu hæð. íbúðin er í góðu ástandi. Endumýjað þak o.fl.. 4.800.000,- Kirkjuvegur 34, Keflavík 3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Hagstæðir greiðsluskilmálar. 3.600.000.- Mávabraut 2G, Keflavík 2ja herbergja íbúð á 1. hæð. íbúðin er í góðu ástandi. Góður staður. 4.100.000,- Heiðarbraut 5F, Keflavík 134 ferm. raðhús, með bílskúr. Vönduð eign. Hagstæð lán áhvflandi. Góðir greiðsluskilmálar. Lækkað verð. Heiðarból 43, Keflavík 134 ferm. einbýlishús ásamt 30 ferm. bílskúr. Húsið er í góðu ástandi. Skipti á minni fasteign koma til greina. 12.300.000,- Vatnsholt 0 (B,C,D), Kcflavík 136 og 139 femi. raðhús. Glæsileg hús á góðum stað. Húsunum verður skilað fullfrágengnum að utan með frágenginni lóð. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Endaraðhús: 7.300.000.- Miðhúsin: 7.100.000.- Mjög jákvæðar niðurstöður urðu á fundi íslenskra ráðamanna og bandarískra á árlegum fundi í Norfolk í Bandaríkjunum í síð- ustu viku. Þær eru í megindrátt- um þær að flugher vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður áfram á vellinum en geftð hafði verið út að hann flyttist allur burt. Þá er framlag til framkvæmda á Kefla- víkurflugvelli á árinu 1996 hærra en á þessu ári. Viðmælandi blaðsins sagði að það væri allt annar og jákvæðari „tónn“ í Bandríkjamönnum nú en áður. Framtíð flughers vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli hefur gífur- lega þýðingu fyrir Suðurnesja- menn sem eru tjölmennir í starfs- liði hans. Þá hefur þetta einnig mikið að segja fyrir rekstur og viðhald flugbrauta á vellinum, en það er alfarið í höndum flughers og starfsmenn í snjóruðnings- deild og öðrum deildum flughers em að lang stærstum hluta Suður- nesjamenn. Þá tryggir áframhaldandi vera flughers að björgunarþyrlur vam- arliðsins verða áfram staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Umræða um fækkun í sjóher vamarliðsins hef- ur einnig verið lögð til hliðar. Á fundinum í Norfolk var einnig gengið frá framlagi til verklegra framkvæmda á Kefla- víkurflugvelli á árinu 1996. Ekki verður mikið um nýframkvæmdir en þeimur meira um viðhalds- framkvæmdir. Gengið var frá framkvæmdasamningi við Is- lenska aðalverktaka fyrir um tvo milljarða króna og við Keflavík- urverktaka fyrir tæpan milljarð. Þar fyrir utan fá aðrir verktakar að bjóða í verkefni fyrir háifan annan milljarð króna. Meðal verkefna á vellinum er endurbygging flugskýlis fyrir P3 Orion kafbátarleitarflugvélamar, og bústaða fyrir einhleypa vam- arliðsmenn og fleira. Ráðamenn vamarliðsins hafa verið í samningaviðræðum við sveitarstjómir á Suðumesjum að undanfömu um ýmis stór mál, s.s. um sorphreinsi- og holræsa- mál og fleira. I öllum tilfellum hefur umræðan snúist á undan- fömum vikum og mánuðum úr því að semja til skamms tíma í það að semja til margra tuga ára. Það eitt er talið gefa vísbendingu um hug vamarliðsins um framtíð- arvem sína hér á Keflavíkurflug- velli. ♦ Ekki verður um miklar nýframkvæmdir en viðlialdsverkefni eru fleiri á KeflavíkurflugveUi á næsta ári.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.