Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 27

Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 27
VlffURFRÉTTIR 2. NÓVEMBER 1995 27 DHL-deildin í körfu: r n Suðurnesjaliöin í toppslagnum Öruggt hjá UMFN Njarðvíkingar unnu öruggan sigur á Valsmönnum í Ljóna- gryfjunni í Njarðvík á þriðju- dagskvöldið. Lokatölur urðu 90-72 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 38-31. Valsmenn sáu aldrei til sólar gegn íslandsmeisturunum og urðu að sætta sig við enn eitt tapið en liðið er nú það eina sem ekki hefur unnið leik á mótinu. Stigahæstir Njarðvík- ur: Teitur 30. Ronday 15, Frið- rik 15, Páll 14. Valur: Bergur Emils 21, Bjarki 17. Sannfærandi sigur Keflavíkur Keflvíkingar sigruðu Borg- nesinga í Keflavík í fyrrakvöld með 25 stiga mun 99-74. Stað- an í leikhlé var 42-39 fyrir heimamenn. Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik og þá tókst gest- unum að halda niðri hraða Keflvfkinga. í þeim síðari völt- uðu heimamenn hreinlega yfir Skallagrímsmenn. Stigahæstir Keflavíkur: Al- bert 19, Lenear 18, Guðjón 17. Skallagrímur: Ermolinskij 24, Bragi 14 og Gunnar 11. Naumt tap hjá Bikarmeisturum Grindvíkingar máttu þola tap gegn ÍR-ingum í hinum erfiða Seljaskóla í fyrrakvöld. Aðeins munaði tveimur stigum í lokin 82:80 fyrir ÍR. Staðan í hálfleik var 42-40 fyrir heimamenn. Lokamínúturnar og sekúnd- umar voru æsispennandi. Liðin skiptust á að halda forystunni lokamínúturnar. Þegar hálf mín. var eftir voru IR-ingar yfir 82-80. Hjörtur Harðarson fékk boltann þegar 15 sek. voru til leiksloka og hafði möguleika á að jafna eða kom- ast yfir en mistókst skottilraun- in. Stigahæstir UMFG: Myers 28, Guðmundur Br. 15, Helgi Jónas 13. ÍR: Herbert 25, Eiríkur og Jón Öm 16 hvor. Toppleikur í Njarðvík Það verður hörkuviðureign í Njarðvík þegar heimamenn mæta Grindvíkingum í kvöld kl. 20. Njarðvíkingar hafa ver- ið á siglingu eftir slæma byrjun í mótinu. Grindvíkingar eru líka í ágætri stöðu í B-riðli og vilja örugglega ekki fara neðar en þeir eru. Keflvíkingar fá botnlið Vals í heimsókn. Báðir leikimir hefjast kl. 20. ♦ Þeir Ronday Robinson, UMFN og LA Bums verða í eld- línunni í kvöld. UMFN mætir UMFG og Keflavtk leikur við Val. HÁDEGISTILBOÐ I NÓVEMBER! 6.-10. NOV - ITALSKT 13.-17. NÓV - MEXÍKANSKT 20.-24. NÓV - INDVERSKT 27. NÓV. -1. DES - AMERSÍSKT SÍMINN ER 421 1777 Jón Kr. tekur við landsliðinu Jón Kr. Gíslason, þjálfari I og leikmaður Keflavíkurliðs- | ins í körfuknattleik var í vik- | unni ráðinn landsliðsþjálfari. Hann mun sjá um undir- I búning og þjálfun landsliðsins : fram yfir Evrópukeppnina í ■ körfuknattleik sem verður í I lok maí 1996. Eftir þann tíma I mun landsliðsnefnd og þjálf- | ari setjast niður og meta ■ möguleikana á framlengingu ■ samningsins. Stefna landsliðsnefndar og ' þjálfara hefur verið sett á að I sigra í aukakeppni Evrópu- I keppninnar „Preliminary | Round“ sem haldin verður í ■ lok maí en þátt taka sex þjóð- I 'r- Jón Kr. Gíslason hefur leik- 1 ið 158 landsleiki fyrir íslands • hönd og verið fyrirliði liðsins I síðustu fimm árin. Tvisvar | hefur Jón verið valinn körfu- I knattleiksmaður ársins af KKI ■ og einu sinni valinn sem slík- ■ ur af leikmönnum úrvals- ! deildar. Þrisvar hefur Jón I hlotið nafnbótina „íþrótta- I maður Keflavíkur" og tvisvar | „Iþróttamaður Suðurnesja". | Jón hefur auk þess að leika I______________________________ með Keflavík þjálfað liðið undanfarin fimm ár. Undir hans stjórn hefur Keflavfk þrisvar orðið íslansmeistari og tvisvar Bikarmeistari. Hann þjálfaði kvennalið Keflavíkur árin 1986-89 og leiddi liðið til sigurs á ís- landsmóti tvisvar og í bikar þrisvar sinnum. * filll til ticimavíngerðt ir í sérvcnliin • ♦ víngeiðarmannsins EJ ' ét o ,w -*x „ - >i° l/ Opið kl. 13-18 í mónudaga til föstudago PÉ3p®ffilÉ \ mm íþróttahúsið í Keflavík: DHL deildin Fimmtudagur 2. nóvember kl. 20:00 KEFLAVÍK - VALUR Frítt fyrir grunnskólabörn og yngri & /i Landsbanki íslands Útibúin á Suðurnesjunum ÁFRAM KEFLAVÍK!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.