Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 25

Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 25
VfKIJHFRÉTTIR 2. NÓVEMBER 1995 25 Heraðsfrettablöð á Selfossi Útgefendur héraðsfréttablaða héldu sinn árlega aðalfund á Selfossi nýlega. Fulltrúar frá tólf blöðum mættu á fundinn. Ný stjórn samtakanna var kjörin, en hana skipa Alma Guðmundsdóttir, formaður, frá blaðinu Austurlandi, Kristján Jóhannsson frá Nesfréttum á Seltjarnarnesi og Hólmfríður Þórisdóttir frá Sunnlenska fréttablaðinu. Auk hefðbundinna aðalfund- arstarfa flutti Hjálmtýr Haf- steinsson frá Endunnenntunar- stofnun Háskólans erindi um Internetið, eða Alnetið, en tvö héraðsfréttablöð eru komin á netið. Það eru Víkurfréttir sem hafa verið á netinu frá því í vor og Fréttir úr Vestmannaeyjum sem eru nýkomnar á verald- arvefinn sem stækkar örar en nokkur getur ímyndað sér. Sú hugmynd var rædd að samtök héraðsfréttablaða setji upp sameiginlega heimasíðu á net- inu og verður unnið að því á næstunni. Þá samþykkti aðalfundurinn að taka upp þá nýbreytni innan samtakanna að veita þeim aðila sem að mati samtakanna hefði unnið landsbyggðinni mest til heilla, og útnefna „Héraðs- höfðingja íslands". Er stefnt að því að gera það í fyrsta skipti á næsta aðalfundi. Dr. Sigrún Stefánsdóttir, fréttamaður og forstöðumaður hagnýtrar fjölmiðladeildar í Háskóla Islands flutti fyrir- lestur sem hún gerði einnig í fyrra. Nú ræddi hún um við- talstæknina. Hugmynd kom upp um að Sigrún standi fyrir námskeiði einhvern tíma yfir vetrarmánuðina, sérstaklega fyrir héraðsfréttablöðin. Tók hún vel í erindið og er stefnt að þvf að hún verði með helgar- námskeið í janúar eða febrúar næstkomandi. Eins og venja er var farin skoðunarferð með aðalfund- argesti. Þór Vigfússon, fyrr- verandi skólameistari Fjöl- brautaskóla Suðurlands vísaði mönnum leið um Selfoss og nágrenni. M.a. var Fjölbrauta- skólinn skoðaður en það er mjög sérstæð bygging og var umdeild á sínum tíma. Þá var komið við á heimili þeirra hjóna Margrétar Frímanns- dóttur og Jóns Gunnars Ottós- sonar á Stokkseyri en þau eiga sérlega fallegan garð, með mörg hundruð plöntum og fá þau margar heimsóknir af því tilefni. Fulltrúar Sunnlenska frétta- blaðsins og Dagskrárinnar á Selfossi höfðu veg og vanda af skipulagningu fundarins og gerðu þeir það af myndarskap. Hópurinn heimsótti aðalstöðvar beggja blaðanna en þess má geta að Suðurnesjamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson er skríbent hjá Dagskránni en hann hefur búið á Selfossi undanfarin ár. ♦ Fulltrtíar bæjar- og héraðsfréttablaða á aðalfundi samtakanna á Selfossi. NÝBÚAR SELJA AUSTURLENSKAN MAT Nýbúar á Suðurnesjum munu á laugardaginn selja austurlenskan mat á tveimur stöðum í bænum til styrktar Hamfarasjóði R.K.Í vegna hörmunganna á Flateyri. Maturinn verður seldur við S.B.K. í Keflavík og einnig við verslunina Miðbæ. Salan hefst kl. 11 á laugardagsmorgun og er áætlað að vera að fram undir kl. 17:00. Fjölmennt í sunnudagaskóla Það hefur verið vel mætt t sunnudagaskóla í Kcflavíkurkirkju undanfama sunnudaga. Um tvöhundmð böm mæta iðulega á sunnudögum kl. 11, ýmistein eða með foreldrum sínum oghlusta, syngja og taka þátt t þessari skemmtilegu stund sem þama ferfram, ttndir stjóm þeirra Sigfúsar aðstoðarprests og Málfríðar, sem hefur unnið við sunnudagaskóla mörg undattfarin ár. Meðfylgjandi myndir vom teknar eintt sunnudag fyrir stuttu. VF-mynd/pket. ATVINNA Óskum að ráða starfskraft í 1/2 starf. Nánari upplýsingar í síma 421-2604. GLUGGAHREINSUNf /\. MMm ia Immm-mm imnm- THboðsdagar á notuðum bílum standa fram yfir helgi eða til 6. nóvember 1995. Fyrstir koma, fyrstir fá! MMC LANCER GLXi ÁRGERÐ 1992 EKINN 56 ÞÚS. KM. VERÐ ÁÐUR: 920.000,- VERÐ NÚ: 820.000,- MMC LANCER GLXi ÁRGERÐ 1988 EKINN 134 ÞÚS. KM. VERÐ ÁÐUR: 470.000 - VERÐ NÚ: 820.000,- SUBARU 1600GL ÁRGERÐ 1990 EKINN 87 ÞÚS. KM. VERÐ ÁÐUR: 590:000,- VERÐ NÚ: 470.000.- ehf 421 1200

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.