Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 6
6 2. NÓVEMBER 1995 VlffURPRÉTTIR Bridsfélagið Munin: Karlarnir efstir Karl G. Karlsson og Karl Einarsson fóru með sigur af hólmi í þriggja kvölda haustþrímenningi Bridsfélagsins Munins í Sandgerði sem lauk í síðustu viku. Úrslit urðu annars þessi. Miðlungur er 156 1. Karl G. Karlsson og Karl Einarsson................209 2. Eyþór Jónsson og Garðar Garðarsson.................189 3. Svala Pálsdóttir og Vignir Sigursveinsson..........188 4. Óli Þór Kjartansson og Kjartan Ólason..............178 5. Trausti Þórðarson og Þröstur Þorláksson............164 f gærkvöldi hófst þriggja kvölda sveitakeppni (Monrat) og laug- ardaginn 11. nóvember verður stórmót Samvinnuferða Landsýnar í íþróttahúsinu í Sandgerði. Þegar hafa 50 pör skráð sig til keppni. Skráning er í símum 421 3632 (Garðar), 423 7759 (Magnús) og hjá Bridssambandinu í síma 587 9360. ......................... Líkamsárás kærð Líkamsárás var kærð til lögreglunnar í Keflavík um helgina. Þá var önnur líkamsárás kærð til Grinda- víkurlögreglunnar. Ekki var um alvarlegar árásir að ræða en algengt er orðið að lögreglu berist kærur vegna minniháttar slagsmála. Rúðubrot Tvær rúður voru brotnar í myndbandaleigunni Mynd- list í Hólmgarði um síðustu helgi. Ekki er vitað hver braut rúðurnar. Rúðubrot eru orðin mun færri en áður enda er það ekki „inn“ að brjóta rúður í dag. Fimm með Maríúana Fimm voru handteknir vegna gruns um eiturlyfja- neyslu í Keflavík um síð- ustu helgi. Maríúana fannst í fórum fimmmenningana og óverlulegt magn af öðrum fíkniefnum. Að- ilarnir voru færðir til stöð- var þar sem þeir sváfu úr sér vímuna áður en þeir voru teknir til yfirheyrslu. ♦ Stnrln Eðvarðsson, verslunarstjóri í Samkaup og Sigurjón Héðinsson, bakarameistari fyrir framan nýja bakaríið. Nýtt bakarí í Samkaup Nýtt bakarí opnar í Samkaup á morgun. Rekstur þess verður í höndum Samkaups en allt bakkelsi sem boðið verður upp á kemur frá Sigurjónsbakaríi. „Við erum með þessu að auka enn frekar þjónustuna við viðskiptavini okkar“, sagði Sturla Eðvarðsson, verslunar- stjóri í Samakaup. Nýja bakarí- ið verður staðsett inn í miðri versluninni og vörur sem eru keyptar þar eru síðan greiddar við kassa. Undanfarin ár hefur Sigurjónsbakarí verið með bak- arí við innganginn í Samkaup og viðskiptavinir hafa því þurft að greiða sérstaklega það sem keypt hefur verið þar. f nýja bakaríinu sem er sér- lega glæsilegt, verður boðið upp á fjölbreytt úrval af nýbök- uðum brauðum og kökum á hverjum degi og verðlag mjög hagstætt. „Við munum keyra á tilboðum alla daga“, sagði Sturla og bætti því við að upp- setning bakarís inní versluninni væri lokaliður í umfangsmikl- um breytingum á versluninni sem staðið hafa yfir síðustu mánuði. I tilefni opnunarinnar fá allir viðskiptavinir Samkaups rjómatertusneið í nýja bakarínu á morgun, föstudag. ♦ Frá undirbúningi sprenging- arinnar í Keflavíkurhöfn. VF/mynd: Hilmar Bragi Keflavíkurhöfn: Neöansjávar- sprengingar við gatið Neðarsjávarsprenging var framkvæmd við gatið í Kefla- víkurhöfn sl. mánudag. Tvö stór stykki úr höfninni sem liggja á botni hafnarinnar þurfti að sprengja í þrjá hluta. Til þess verks voru notaðar nokkrar túpur af dýnamíti. Það var síðan í hádeginu á mánudaginn sem sprengingin var framkvæmd. Einungis nokkrar loftbólur sáust á sjávarfletinum en hús í nágrenninu, eins og t.d. pósthúsið, nötruðu í sprengingunni sem var mjög öflug. Ætlunarverkið, að brjóta niður steypustykkini á hafsbotni, tókst vel. ♦ Það voru eingöngu nokkarar loftbólur sem komu upp á yfirborðið við sprenginuna, en sprengjusérfræðingar áttu allt eins von á góðri gusu og vænum reykjarbólstri. Allar BOXÝ dýnur með 15% afslætti. R.B. rúmin með 20% afslætti. Enduniýjaðu gömlu dýnuna og fáðu þér nýja frá R.B. á dýnudögum í Bústoð. Sérpöntmn eftir máli. 15% afsláttur. ATHUGIÐ! Kyniium nýja gerð af amerískuin riimdýnuin. Aýjasta nýit - sem slær öllu við! Verðið kemur þægilega á óvart! nudagar á Haustdögum í Bústoð! ajunc|ilak. Sængur o§ koddar á lilboðsverði! Sængur frá kr. 3.600.- Koddar frá kr. 1.400.- Tjarnargötu 2 - Keflavík - sími 421 3377

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.