Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 22
22 2. NÓVEMBER 1995 VllfUPFRÉTTIR Eftirtalin tilDoö gilda gegn framvísun TILBOÐSMIÐA sem verða afhentir í flestum verslunum sem taka þátt í Haustdögum - sé verslað fyrir 3.000 kr. eða meira. ATH.: Þessi tilboð gilda einungis gegn framvísun tilboðsmiða. Tilboð: Gildir 2.-8. nóvember 16 tommu pizza og önnur eins fylgir meö. Aðeins ef borðað er á staðnum. Tilboð: Gildir 2.-6. nóvember Hamborgari m/osti, franskar og PEPSI superdós Tilboðsverð kr. 425.- Tilboð: Gildir sunnudaginn 5. nóvember 16 tommu pizza, 3 ólegg, 1 2 tommu hvítlauksbrauð, 1 skammtur franskar, salat, 4 stór kókglös Rétt verö 2.665.- Tilboósveró aóeins 1.890.- Gildir í veitingasal, ekki heimsendingu eða sótt Tilboð: Fjölskyldudagur á Glóöinni Sunnudag 5. nóvember og alla sunnudaga í nóvember Íex-Mex fjúflinjshinga mel fiitíhiin, sslati, sslsa,kartöfb 05 kryddgrjóiiym.kr. 999,- Lamfca-jrillsteik Bernaise mel salati, 05 bakalri Itartöflu..................kr. 999,- Frítt fyrir börnin frá kl. 17-20, eitt barn á hi/ern fullorðinn. Opið frá kl. 17:00 á sunnudögum alla aára daga frá kl. 11:30. Blysför í Sandgerði Grunnskólanemar í Sandgerði stóðu fyrir bhjsför sl. mánudags- kvöld vegna atburðanna á Flateyri. Gengu þeir saman íhóp frá grunnskólanum að minnismerkinu „Álög“ þar sem flutt var lag og texti Hallbjöms V. Rúnarssonar og Jórunnar Bjarkar scm heitir „Andrá". Fjölmenntu grunnskólanemar í þessa athöfn og sýndu þannig samhug í vcrki. VF-mynd Oddgeir. Suðurnesjamenn í F rammara-ráðuney ti Helgarpósturinn greindi frá því á dögunum að Halldór Ás- grímsson, utanríkisráðherra væri búinn að vera duglegur í mannaráðningum undanfarna daga og vikur. Þrír þessara fimm starfsmanna sem ráðnir hafa verið í ráðuneyti Halldórs ♦ Axel Nikulásson eru Suðurnesjamenn. Sá fyrsti sem ráðinn var er Njarðvíking- urinn Hilmar Þór Hilmarsson. Hann er aðstoðarmaður Hall- dórs. Anna Ósk Kolbeinsdótt- ir, einn af frambjóðendum Framsóknarflokksins fyrir síð- ustu bæjarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ var ráðin til að sinna skrifstofustörfum í ráðu- neyti Halldórs. Þá réði Halldór Axel Nikulásson, sem er betur þekktur fyrir afskipti sín af körfuknattleik, sem deildarsér- fræðing á viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins. Axel er sá eini af þessum þremur sem ekki hefur haft afskipti af pólitík. Þau Hilmar og Anna hafa verið virk í Framsóknarflokknum í mörg ár. Hilmar starfaði undanfarin ár í Alþjóða bankanum í Was- hington en Anna var í aðeins minni bankastofnun; Spari- sjóðnum í Keflavík... Úr gjaldþroti í Leifsstöð Einn þeirra starfsmanna sem ráðnir hafa verið til sérverkefna í Utanríkisráðuneytinu er Þórð- ur Ingvi Guðmundsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri fjár- mögnunarfyrirtækisins Lindar. Það fyrirtæki rann sitt skeið á enda fyrr á þessu ári og það með nokkrum skell, eða 700 milljón kr. gjaldþroti. Þórður er með það sérverkefni að gera úttekt á rekstri og skipulagn- ingu Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar en rekstur stöðvarinnar hefur verið í mínus frá fyrsta degi og lilaðið upp verulegum skuldahala. Hluti skýringa sem yfirmenn stöðvarinnar liafa bent á er að hluti tekna stöðvar- innar hefur verið látinn renna í önnur verkefni tengd fluginu annars staðar á landinu. Menn bíða síðan spenntir eftir nýrri úttekt á Leifsstöðinni...

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.