Víkurfréttir - 02.11.1995, Blaðsíða 13
LE/KFÉLAG KEFLAVÍKUR
srnni
FRUMSÝNT
Á MORGUN
Leikrit Jim Cartwright, Stræti, verður frumsýnt í
Félagsbíói á morgun, föstudaginn 3. nóvember.
Sýningin hefst kl. 21:00.
Næstu sýningar eru sunnudaginn 5. nóvember,
föstudaginn 10. nóvember, laugardaginn 11. nóvember
og sunnudaginn 12. nóvember. Allar sýningarnar
hefjast kl. 21:00. Miðaverð er 1200 krónur og vakin er
athygli á að sýningin er bönnuð börnum vngri en 14
ára.
Stræti er líflegt og skemmtilegt leikrit og Leikfélagi
Keflavíkur hefur tekist vel til við uppsetninguna og
sviðsmyndin er skemmtileg. Við segjum nánar frá
sýningunni í næsta blaði og birtum þá jafnframt
leikdóma um verkið. Leikstjóri er Pröstur
Guðbjartsson. Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Bragi á
æfingu á Stræti á mánudagskvöldið.
[ifflQDDaQ©
Hagiaœisi
fimmtudag til
mánudags
ÍSLANDSBANKI
Hafnargölu 60 • Keflavík • sírai 421 5553