Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.09.1996, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 26.09.1996, Blaðsíða 9
Guðspekifélag Suðurnesja: Sigunður Bogi ræðir hugrækt- ariðkun Vetrarstarf Guðspekifélags Suðurnesja hefst með fræðslufundi sunnudaginn 29. september kl. 20.00. Þar mun Sigurður Bogi Stef- ánsson ræða hugræktariðkun í kristni. Þó að kenningar kristinnar kirkju séu sá flötur trúarbragðanna sem flestir þekkja hafa frá fumkristni verið notaðar ýmsar leiðir til að öðlast nánara vitundar- samband við guðdóminn t.d. meðal kristinna munka. Fræðslufundurinn er öllum opinn og verður að þessu sinni haldinn í sal Iðnsveina- félags Suðumesja við Tjarn- argötu. Söngklúbburinn Uppsigling: Bypjar aftur Söngklúbburinn Uppsigling sem stofnaður var í fyrra byrjar aftur á morgun, föstu- dagskvöld, eftir langt sumar- frí. Líkt og í fyrra verða sungin ýmis þjóðlög og dægurlög í tjaldmiðstöðinni Stekk við Samkaup annað hveit föstu- dagskvöld frá kl. 20.30 og fram undir kl. 23.00. Hér er tækifæri fyrir þá sem ftnnst gaman að syngja, líka þá sem halda að þeir séu lag- 1 ausi r. HIjóðfæ ralei karar mega gjarna taka með sér hljóðfærið. Heiða og Þorvaldur, s. 421- 3941. Garður: Börn brjóta útivistar- reglur Lögreglan hafi afskipti af nokkrum börnum í Garði í síðustu viku vegna brota á útivistarreglum. Sjö 8 ára börnum var ekið til síns heima rétt fyrir kl. 21:00 og þá var sjö bömum, 7-10 ára ekið heim kl. 21:30 á miðvikudagskvöldið í síð- ustu viku. fféttardagur i Grindavík: Réttað í rigningu Laugardaginn 21. september fjölmenntu Sudurnesjamenn í Þór- kötlustadarrétt í Grindavík og fylgdust meá þvíþegar réttaá var. Nokkuá blautt var í réttunum en létu hvorki menn né kindur þaá á sig fá. Yngra mannfólkid var stóreygt og var ekki annað hægtad sjá en að nokkrir þeirra eldri hyrfu aftur í tíman til þess er þeir voru sjálfir í sveit. Mannfólkið var eilítið fjölmennara en safnið og liöfðu menn á orði að sjaldan hefði séstjafnmikið afdökku fé. Til þess að skapa rétta stemningu var leikið á harmónikkur og var auk þess boðið upp á veitingar á staðnum. VF-myndir: Dagný En mamma kóngirmn er ekki í Leikþáttur molahöfundar. Að undanfömu hefur átt sér stað stómnd- anleg umfjöllun um meintar viðræður um nýjan meirihluta í Reykjanesbæ og fór þar fremstur í flokki molahöfundur. Mér fannst þá að það væri einungis hægt að brosa að hugmynda- flugi viðkomandi. Það taka sem betur fer ekki allir mark á þessum slúðurdálkum enda setur molahöfundur þar fram eign álit á fólki og málefnum. Ég gef lftið fyrir umfjöllun hans um mig enda gæti ég ekki borið virðingu fyrir manneskju sem er jafn hlaðin neikvæðum kenndum og molahöfundur heldur fram. Ég hef ekki enn náð að skilja hvað ég hef gert á hlut viðkomandi - nema ef vera skyldi að ég er ófús að slúðra í viðkom- andi! Ef hann skrifar oftar en einu sinni á kjörtímabili vel um mig þá fyllist hann vanlíðan og verður að „þæta fyrir það“. Sérstaklega nær hann sér vel á strik rétt fyrir prófkjör flokkanna og í kosningabaráttunni. Fyrstu tvö áiin sem ég var bæjarfulltrúi fékk ég einungis neikvæð skrif en dag einn hringdi vinur minn í mig og sagði mér að Emil Páll hefði rekið höfuði í! Ég spurði hvort hann hefði meiðst mikið? Nei, var svar- ið. Hann skrifaði vel um þig! Gróa á Leiti. Þessi svokallaði „fréttaflutningur" af meintum viðræðum um nýjan meirihluta í bæjarstjóm Reykjanesbæjar em upp- spuni frá rótum. T.d. hefur molahöfundur aldrei spurt mig um þetta málefni enda er það ekki hans vani að leita upplýsinga hjá mér. Það eru ekki og hafa ekki átt sér stað formlegar né óformlegar viðræður við fulltrúa Alþýðuflokks né Alþýðu- bandalags um nýjan meirihluta. A síðasta fundi bæjarstjórnar hentum við gaman að þessari, að okkur fannst spaugillegu umræðu, sem við (þ.e. odd- vitar þessara flokka) áttum að hafa tekið þátt í en hafði gjörsamlega farið fram hjá okkur öllum. Þar fyrir utan vil ég taka fram að hvorugur bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins í bæjarstjórn, né vara- bæjarfulltrúar eða stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna hafa tekið þátt í meintum viðræðum um nýjan meirihluta. Þau mörgu fréttaskot sem DV fékk um málið og sú mikla umræða sem orðið hefur um málið lýsir fremur því að ein- hverjir aðilar fari víða með lognar sögusagnir til að skapa fleyg í samstaif meirihlutaflokkanna í Reykjanesbæ. rraustur meirihluti. Eftir síðustu kosningar beið nýrrar bæjarstjómar ekki einungis hefðbundið hlutverk heldur einnig að semja nýtt skipulag hins sameinaða bæjarfélags, allar reglur þurfti að endurskoða eða smíða nýjar, viða vom breyttar áherslur s.s. í skipulagsmálum og lengi mætti telja. Þessi stöif og mörg önnur sem fylg- du í kjölfar sameiningarinnar eru mjög tímafrek og oftar en ekki þarf mikla lagni Deinum lötum! til að sætta sjónarmið vegna gömlu sveitarfélaganna í Njarðvík, Keflavik og Höfnum. Þrátt fyrir alla þessa vinnu hefur meirihlutanum tekist að leysa hefðbundið hlutverk sitt ágætlega. Ég hygg að yfir 90% að ákvörðunum sem teknar em í bæjarstjórn sé samþykktar með öllum greiddum atkvæðum. Hlutfallið er sennilega enn hæira og ég tel að sú almenna samstaða sem ríkir í bæjarstjórn lýsi best stjórn n.v. meiri- hluta. Énda stendur meirihlutinn traust- um fótum. Við Ellert höfum unnið náið saman í rúmlega 6 ár. Við erum mjög sammála um þá aðferðafræði sem almennt er notuð við stjómun bæjarins. Við meirihlutamyndun er traust rnilli þeirra sem staifa saman mjög mikilvægt og í Ijósi fyrri meirihlutasamstarfs milli flokkanna lýsti ég yfir fullkomnu trausti til samstarf við Ellert Eiríksson sem og annara bæjaifulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Það er einnig mjög mik- ilvægt að við vinnum eftir málefna- santningi sem flokkamir gerðu með sér eftir síðustu kosningar. Við höldum meir- ihlutafundi fyrir alla bæjarráðs- og bæjarstjómarfúndi auk funda um sérstök málefni. Þannig eru ákvarðanir teknar sameiginlega af öllum bæjarfulltrúm meirihlutans. Ég vona að sá draugur sem upp var risinn sé nú niður kveðinn og menn snúi sér að meira aðkallandi verkefnum en spuna í anda Gróu á Leiti um kónginn sem var ekki í neinum fötum. Drífa Sigfúsdóttir Ásta sýnir Quilt í Regnboganum Ásta Sigurðardóttir sýnir nú Quilt myndir og teppi í Gall- erí Regnbogans. Quilting samanstendur af þremur lögum af efnum, toppi, fyllingu og baki. Þau eru svo stungin. eða hnýtt saman og kallast þá Quilt. LJÓSMYNDIN FYRIRSÆTA: FATNAÐUR: FÖRÐUN: HÁRGREIÐSLA: LJÓSMYNDUN: ÁSDÍS EINARSDÓTTIR VERSLUNIN KÓDA RÚNA í GALLERY FÖRÐUN ELEGANS HILMAR RRAGI Víkuifréttir Víkurfréttir 8 9

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.