Víkurfréttir - 12.12.1996, Qupperneq 19
Strœtó í Reykjanesbœ af stað nk. laugardag 14. des:
Vona af fólk æf i sig
í að nota strætó
-segir Þórunn Benediktsdóttir, formabur
Almenningsvagnanefndar Reykjanesbœjar
Strætóferðir hefjast í Reykja-
nesbæ laugardaginn 14. des-
ember nk. Að sögn Þórunnar
Benediktsdóttur, formanns al-
menningsvagnanefndar
Reykjanesbæjar, gengur und-
irbúningur vel þótt seint hafi
verið farið af stað.
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
ákvað að hefja rekstur al-
menningsvagna á fundi sínum
15. október sl. þannig að það
hefur verið mikið að gera og
tími til undirbúnings naum-
ur“, sagði Þórunn en almenn-
ingsvagnanefnd hefur verið
að kynna kennurum í skólum
á svæðinu leiðarkerfi og tíma-
töflu AVR að undanfömu.
„Nú er fyrst og fremst verið
að vinna að tengingu á milli
Heiðarholts og Sjafnarvalla
en þar verður 3 -4 metra lang-
ur bráðabirgða malarvegur
sem einungis er ætlaður AVR.
Hafa íbúar við Heiðarholtið
verið látnir vita af þeim fram-
kvæmdum. Einnig er unnið
að því að setja upp skilti á
biðstöðvum og færa sumar
þeirra til. Við notumst einnig
við þær biðstöðvar sem fyrir
eru en rennunt þó blint í sjó-
inn livað varðar staðsetningu
þeirra. Við munum því þreifa
okkur áfram en til gamans má
geta að í dag eru biðstöðvam-
ar 72 talsins í Njarðvíkur-
Keflavíkur og Hafnahverfí".
A næstunni verður mynd af
leiðarkerfi AVR ásamt tíma-
töflu dreift á öll heimili í
Reykjanesbæ. Auk þess fylgja
skriflegar upplýsingar um allt
það sem varðar leiðarkerfið.
Strætó verður appelsínugulur
og grænn á litinn og eru bíl-
amir væntanlegir til landsins í
vikunni. Þeir verða 5 talsins
þar af einn liðvagn og vegna
þeirra er nauðsynlegt að
lækka allar hraðahindranir í
Reykjanesbæ um 10 cm.
Þórunn vildi taka það fram
vegna misskilnings sem gætt
hafi að það er ekki almenn-
ingsvagnanefnd sem kaupir
vagnana heldur er það hluta-
félagið S.B.K. „Fyrirtækið
kaupir vagnana og við mun-
um síðan kaupa þjónustuna af
því“, sagði Þórunn.
Fyrsta ferð AVR verður farin
kl. 10.10 frá S.B.K. laugar-
daginn 14. desember við há-
tíðlega athöfn. Það verður fn'tt
í stætó í desembermánuði og
að sögn Þórunnar getur fólk
nýtt sér þann tíma til þess að
æfa sig á stætó.
Eftir áramót mun kosta kr.
100 fyrir fullorðna og kr. 50
fyrir börn frá 6 ára aldri að
ferðast með strætó.
Nemendur 1,- 3. bekkjar og
grunnskólar í jaðarbyggðum
þurfa ekki að greiða gjald
vegna skólaaksturs. Mánaðar-
kort fyrir fullorðna mun kosta
kr. 2.500.
jólakermik
í úrvali
tilvalin jólagjöf!
Jólaföndrið í
pakkningum.
f/^öndui'/u’i/na/1
Iðavöllum 3b Keflavík sími 421-5959
Skartgripa-
kyrtning
Skartgripakynning laugardag
kl. 10:00 -16:00.
Glœsileg gjafavara - gott verð.
Athugið: Munið vinsælu
gjafakortin okkar.
^yrtisto^
lTndu
Hafnargötu 29 - 2.hæð - Keflavík -Sími 421-4068
iStrætó-karlinn minnir bæjarbúa á nýtt strætisvagnakerfi í
fíeykjanesbæ. Karlinn hannaði Þorfinnur Sigurgeirsson, mynd-
listarmaður og auglýsingateiknari.
Jólablað Víkurfrétta
er í næstu viku!
Verið tímanlega með auglýsingar og efni.
Opið alla helgina á skrifstofunni.
VÍKURFRÉTTIR
Geíii fflfúJuni pakkt í ór!
Norsku peysurnar eru komnar
- verð kr. 2990.- og 3400.-
Mjög fallegar og vandaðar
bómullarpeysur í mörgum lítum.
Útígallar stærðír 104-152 - 4 lítír verð
kr. 3990.- og 4490.-
Aldreí meíra úrval af AMICO fatnaðí!
Víkurfréttir