Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.12.1996, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 12.12.1996, Blaðsíða 20
Fiskmarkaður Suðurnesja gengur vel: í fypstu 9 mánuði arsins Samkvæmt bráðabirgða- uppgjöri Fiskmarkaðs Suður- nesja fyrstu níu ntánuði ársins voru tekjur 113 milljónir króna. Hagnaður frá rekstri var 30 milljónir króna en eftir fjármagnsliði og skatta var hagnaðurinn 22 milljónir króna. í bráðabirgðauppgjörinu er ekki tekið tilit til reksturs hlut- deildarfélaga. Allt árið í fyiTa skilaði reksturinn 24ra milljón króna hagnaði. Reksturinn er lítið eitt betri en gert hafði verið ráð fyrir í áætlun. Eiginfjárhlutfall er 73% og veltufjárhlutfall 1.76 skv. uppgjörinu. Salan fyrstu ellefu mánuðina var 32 þúsund tonn fyrir 2,2 milljarða. Allt árið í fyrra seldust tæp 28 þúsund tonn fyrir 2,1 milljarð. Horfur fyrir næsta ár eru góðar. Er þá einkum litið til aukins þorskkvóta sem skilar sér væntanlega í aukinni sölu, en á árunum !993-'95 hefur sala á FMS ntinnkað úr 48% í 27%. Það sem af er þessu ári er þorskur 30% af sölu bolfisks. Þrátt fyrir þessa minnkun á þorski hefur heild- arsala aukist lítið sem kemur til vegna aukningu í sölu tegunda sem lítið eða ekki voru nýttar áður. Sumarhúsabyggð víkur fyrir magnesíum Þegar unnið var að niati á umhverfísáhrifum fyrir byggingu magnesíumverksmiðju við norðanvert Hafnarbeig á Reykjanesi kom í ljós að gert er ráð fyrir orlofs- og sumarhúsabyggð á því svæði samvæmt aðal- og svæðisskipulagi. Skipulags- og tækninefnd samþykkti því nýverið að breyta að- alskipulagi þannig að landnotkun á þessu svæði verði iðnaður í stað sumarhúsabyggðar. Gróf líkams- árás kærð Stakk af eftir árekstur -fórnarlambið lenti á ljósastaur Bifreiðin snérist og lenti með afturhlutann á einum afnýjum Ijósastaurum sem nýlega voru settir upp við Reykjanesbrautina. Ráðist var á karlmann við skemmtistaðinn Strikið við Hafnar- götu aðfartuiótt sunnudagsins. Arásarmaðurinn veittist að manninum og sparkaði síðan í höfuð hans þar sem hann lá. Maðurinn hlaut talsverða áverka á andliti og var fluttur á sjúkrahús. Að sögn Lögreglunnar í Keflavík er ekki ljóst með hvaða liætti atvikið bar að en þó virðist árásin hafa verið af tilefnislausu og hefur hún verið kærð til rannsókn- ardeildar lögreglunnar í Kellavík. Umferðarslys varð á Reykjanesbraut rétt fyrir klukkan átta föstudagskvöldið 29. nóvember sl. Slysið varð rétt innan við Vogaafleggjara og voru tildrög þess að ekið var utan í bíl í framúrakstri í áttina til Keflavíkur. Ung stúlka var í bílnum sem ekið var á og lenti hann á einum af nýjum ljósastaurum á brautinni. Ekkert sást á staumum en sagt j hefur verið að þeir brotni lendi bílar á jreim. Konan sem ók bílnum kvaitaði undan eymslum í hálsi. Sá sem olli slysinu flúði af vettvangi. Þeir sem einhverjar upp- lýsingar geta veitt um málið eru því beðnir um að hafa samband við Lögregluna í Keflavík. Víðismenn bjóöa upp á skötu Unglingaráð Knattspymudeildar Víðis ætlar að bjóða upp á skötu og meðlæti (saltfisk) í liúsi Verkalýðsfélagsins (Sæborgu) föstu- daginn 20.12.1996 frá kl. 11:00 til 14:00 og frá kl. 18:00 6121:00. Máltíðin kostar 800,- krónur. Þeir sem hafa áhuga á að koma og boröa hjá okkur, vinsantlega hafið samband við undirritaða fyrir 15. des. 1996 og láti skrá sig. Hrönn Edvinsdóttir s. 422-7269 Sigurjón Kristinsson s. 422-7152 Sóley Kristinsdóttir s. 422-7031 Walter Borgar s. 422-7222 Með íþróttakveðju: Unglingaráð Víðis. Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.