Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.12.1996, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 12.12.1996, Blaðsíða 22
Veitingastaður til sölu Rekstur veitingastadarins Kaffi Keflavík er til sölu. Góður tími framundan. Allar nánari upplýsingar hjá Bókhaldsþjónustu Sævars Reynissonar, Hafnargötu 15. Upplýsingar ekki veittar í síma. MJDD- OG SOLBAÐSTOFA EYGLÓÆR Gjafakort frá okkur. Tilvalin jólagjöffyrir mömmu og pabba eða ömmu og afa. Jólagjöf sem kemur á óvart! lu Nuddfræðingur Brekkubraut 11 Keflavík sími 421 2639 NUDD - TRIMFORM - LJOS Neyðarflutninganámskeið fyrir Brunavarnir Suðurnesja: 80% starfsmanna fá löggildingu Sjúkraflutningamenn hjá Brunavörnum Suðurnesja útskrifuðust nýlega af neyðarflutninganámskeiði sem haldið var sérstaklega fyrir sjúkrafluminga- og slökkviliðs- menn hjá BS. Námskeiðið sem er unnið samkvæmt amerískum stöðlum frá Pittsburg er sam- starfsverkefni Brunavarna Suðurnesja og Rauða kross deildar á Suðurnesjum og er fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Námskeiðið er viðbó- tarnám við grunnnám Borgar- spítalans og er um 270 klukku- stunda langt, mun ítarlegra en önnur námskeið sem haldin hafa verið hér á landi. Fyrri hluti þess er mesmegnis bóklegt og lauk með prófi 22. nóv. sl. og útskrifuðust tíu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn. Seinni hluti námskeiðis hefst eftir áramót og er hann aðallega verklegur. Þá munu þátttak- endur fá að fylgjast með á bráðamóttökum og slysadeild- um Sjúkrahúsa Suðurnesja, Sjúkrahúsa Reykjavíkur og Neyðarbíls Slökkviliðs Reykja- víkur. Námskeiðið er mikill gæðastimpill á Brunavarnir Suðurnesja þar sem 80% af fastaliði BS hlýtur löggildingu og mun það vera einsdæmi á landsvísu. Umdæmi BS í sjúkraflutn- ingum eru öll Suðurnes að Hvassahrauni utan Grindavíkur. Þrír sjúkraflutningabílar eru staðsettir í Reykjanesbæ. A síðasta ári voru um 1100 sjúkraflutningar á svæðinu. Þar af voru 113 tilfelli þar sem tveir og þrír sjúkrabílar voru úti í einu. Jolasyning hjá Fimleikadeíld Hin árlega jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur verður huldin n.k. sunnudag 15. desember í íþróttahúsinu við Sunnubraut, og hefst kl. 17:00. Allir iðkendur hjá deildinni munu koma fram á sýningunni. Kaffihlaðborð og jólaball er í boði fyrir áhorfendur að sýningu lok- inni. Allur ágóði af sýningunni fer til áhaldakaupa. Tónlistarskólinn í Keflavík Jólatónleikar fara fram í Keflavíkurkirkju sem hér segir: Föstudaginn 13. des. Id.20.00 Forskóli 6-8 ára barna og Suzuki fiðlunemendur Stjórnendur: Helle Alhol, Steinunn Karlsdóttir og Kjartan Már Kjartansson Mánudaginn 16. des. kl.20.00 Eldri deild lúðrasveitarinnar, léttsveit og djasssveit Stjórnendur: Karen Sturlaugsson og Ólafur Jónsson Þriðjudaginn 17. des. kl.20.00 Yngri deildir lúðrasveitarinnar, strenqjasveit og kórar Stjórnendur: Sigrún Sævarsdóttir, Áki Ásgeirsson og Óliver J.Kentish Aðgangur að öllum tónleikunum er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Skólastjóri Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum: Styöup tillögu um hugs- anlegt veiðileyfagjald Stjóm Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum telur tillögu um hugsanlegt veiðileyfagjald athyglisverða og nauðsynlegt innlegg í heildarendurskoðun á fiskiveiðistjórnarkerfinu. Var málið til umræðu á fundi stjómarinnar sl. fimmtudag. Stjómin tekur undir hugmynd um skipan nefndar til skoðunar þar sem sæti eiga fulltrúar frá öllurn þingflokkum og helstu samtökum útgerðar, sjómanna, fiskvinnslu ogannarra aðila atvinnulífsins. „Okkur ofbýður það sem hefur verið að koma upp á yfirborðið og teljum að þurfi að gera bragarbót á þvi sem fyrir er“, sagði Drífa Sigfúsdóttir, formaður SSS í samtali við Víkurfréttir um þessa ályktun stjórnarinnar um veiðileyfagjald. Leitað var álits stjómarinnar vegna þingsályktunartillögu á Alþingi um þetta mál. Tónlistarskólinn í Sandgerði: Jólatónleikar Tónlistarskóla Sandgerðis verða laugardaginn 14. desember kl. 14:00 í sal Grunnskólans. Allir velkomnir. Skólastjóri. V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.