Víkurfréttir - 12.12.1996, Síða 27
KARLAKÓR KEFLAVÍKUR
KVENNAKÓR SUÐURNESJA
TÓNLEIKAR
Munið jólatónleika Karlakórs
Keflavíkur 03 Kvennakórs
Suðurnesja sem haldnir
verða sunnudaginn 15.
desember kl. 20:30 í Ytri
Njarðvíkurkirkju.
Keflvíkingar
óstöðvandi
Keflvíkingar innsigluðu enn
einn sigur á sunnudaginn í
DHL deildinni í körfuknattleik
karla og lágu þá ísfirðingar
108-91.
Fátt er um þennan leik að segja
annað en það að þetta var leik-
ur kattarins að músinni og sigur
Keflvíkinga var aldrei í hættu.
KFÍ mun áreiðanlega komast
aftur niður á jörðina eftir þenn-
an leik en liðið vann sigur á
Haukum fyrir vestan í miklum
baráttuleik nýlega. Keflavík er
á mikilli siglingu þessa dagana
og vinnur nú hvem sigurinn á
eftir öðrum. Minnir liðið nú
einna helst á Keflavíkurhrað-
lestina sigursælu sem var og
hét. Damon Johnson er í stöð-
ugum vexti og fellur mjög vel
inn í liðið enda er drengurinn
mjög snöggur og vandfundinn
er sá maður í deildinni sem get-
ur stöðvað hann án þess að fá
hjálp a.m.k. eins samherja.
Sömu sögu er að segja um hin
Suðumesjaliðin tvö sem hafa
einnig mjög góða erlenda leik-
menn þótt mörgum þyki að
Torrey John hjá Njarðvík leiki
oft ekki af fullri getu.
Átta liða
bikarúrslit
Á sunnudaginn var mikið að
gerast í körfunni því auk þess
sem leikin var heil umferð í
DHL deildinni var dregið í 8-
liða úrslit í bikarkeppni KKI,
karla- og kvennaflokki.
Karlar
Selfuss - Grindavík fini. 12. des. kl.
20.00
ÍR - Keflavik fim. 12. des. kl. 20.00
KR - Njarðvík fiis. 13. des. kl. 20.00
KFÍ - UMSB 13. des. kl. 20.00
Konur
Keflavík - UMFG 12. des. kl. 20.00
ÍS - KR 12. des. kl. 20.00
UMFN - SkallaKrimur 12. des. kl.
20.00
ÍR - KFÍ12. des. kl. 21.30.
Aukin þjónusta
hjá Bónco
Þeir hjá Bónco hafa nú aukið
við þjónustu sína og bjóða nú
sjálfsþjónustu í húsakynnum
sínum Grófinni 8. Þar geta
menn farið nreð bíla sína inn í
hlýtt og bjart húsnæði til þess
að þrífa þá og haft aðgang að
öllum tækjum og tólum til
verksins einnig er þar hægt
sinna minniháttar viðgerðum.
í>etta er kærkomin þjónusta nú
þegar allra veðra er von og
dinrmt mestan hluta dagsins og
því erfitt unt vik úti við. Strák-
amir í Bónco gefa allar nánari
upplýsingar í síma 421-2604.
Bónco hefur einnig til sölu allar
bílahreingerningarvörur frá
SONAX og ARMORALL.
Þannig að það er nóg að panta
tíma og mæta á staðinn því í
Bónco er allt til alls til bíla-
hreingeminga.
Grindavík lagöi áhuga-
lausa IMjanðvíkinga
Á sunnudaginn signrðu Grind-
víkingar Njarðvík á jreirra eigin
heimavelli 81-92 í DHL deild-
inni í körfuknattleik. Leikurinn
var sýndur í beinni útsendingu
á Stöð 2 en það verður að segj-
ast eins og er að það var varla
góð kynning fyrir körfuboltann.
Mjög fáir áhorfendur voru
mættir og ótrúlegt að þama hafi
tvö af toppliðum deildarinnar
verið að leiða saman hesta sína.
En það voru ekki einungis
áhorfendur sem voru áhuga-
lausir því leikmenn Njarðvíkur
voru mjög slakir og eyddu á
tímabili meiri orku í að dæma
leikinn og röfla í dómurum,
sem reyndar vom mjög slakir,
heldur en að spila körfuknatt-
leik.
Grindavík byrjaði með miklum
látum og náði 17 stiga forystu í
byrjun og það var meira en
Njarðvík réði við og segja má
að Grindavík hafi lagt gmnninn
að sigrinum strax í upphafi
leiks. Um miðjan síðari hálfleik
komst Njarðvík skyndilega inn
í leikinn, m.a. með fallegri
troðslu Torrey John og var
muninn minnstur þrjú stig en
nær komust Njarðvíkingar ekki
og Grindvíkingar innbyrgðu
eins og áður segir 11 stiga siaur
81-92.
Aðspurður eftir leikinn sagði
Hrannar Hólm þjálfari Njarð-
víkur að þeir væm ekki komnir
í jólafrí en með smá heppni
hefði þetta getað komið hjá
þeim í seinni hálfleik þegar þeir
náðu að minnka muninn í þrjú
stig. Hann sagði ennfremur að
dómgæslan hafi ekki verið góð
og vafasamt hafi verið að dæma
skref á Torrey þegar Njarðvtk
var þremur stigum undir og
Grindavík hafi í framhaldi skor-
að 3ja stiga körfu.
Trérimlagluggatjöld
Sníðum þœr í gluggann þinn
Verð frá kr. 3.060
Margar stœrðir - mikið úrval
yki?
mahogany,
hirsuberja
r
dropinn ‘ar°
Hafnargötu 90, 230 Keflavík, sími 421-4790
Góö jólagjöf!
Víkurfréttir