Víkurfréttir - 27.02.1997, Qupperneq 2
Suzuki-
tónleikar
Laugardaginn 1. mars, á
„degi tónlistarskólanna" stendur
Tónlistarskóli Njarðvíkur fyrir
tónleikum í Ytri-Njarðvíkurkirkju
kl. 15:00.
Fram koma þeir nemendur skólans
sem stunda fiðlunám samkvæmt
aðferð S. Suzukis. Sérstakir gestir á
tónleikunum verða Suzuki-nemendur
frá Tónlistarskólanum í Keflavík og frá
Tónskóla íslenska Suzukisambandsins.
Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir.
Skólastjóri.
Atröskun veitt citliygU í gmnnskólum ci Suðumesjum:
Átröslcun hjá
unglingum
áhyggjuefni?
Átröskun unglinga er ávallt
áhyggjuefni og í dag er henni
veitt nieiri athygli í grunn-
skólum á Suðumesjum. Vitað
er til þess að nokkrir einstak-
lingar á Suðurnesjum hafi
greinst með lystarstol og er
talið mikilvægt að umræða
verði unt málið.
Börn og unglingar eru vigt-
aðir og mældir árlega í
skólum og ef frávik eru frá
eðlilegri vaxtarkúrfu er haft
samband heim til foreldra og
oft vísað til læknis f framhaldi
hvort heldur börnin eru of
þung eða of létt. Þetta er eitt
af mörgum störfum skóla-
hjúkrunarfræðinga í skólum
og getur það í sumum til-
vikum leitt átröskun í Ijós.
Þeir unglingar sem finnst þeir
verða að vera það grannir að
eðlileg líkamsstarfsemi er í
hættu þurfa hjálp. Foreldrar
taka þá eftir að áhugamálin
snúast um mat. hitaeiningar,
brennslu, æfingar og hafa þeir
áhyggjur eða samviskubit yfir
hverju því sem þeir setja ofan
í sig. Þrátt fyrir að líkaminn
hafi ekki fiilla orku í daglegt
amstur þá keyra þeir sig
áfram. Þetta eru hættumerki
um Lystarstol frekar en lotu-
græðgi sem er tengdur sjúk-
dómur.
Lystastol er algengara meðal
kvenna og samkvæmt rann-
sóknum í Bretlandi og
Bandaríkjunum eiga 1 - 2%
stúlkna á aldrinum 12 - 18 ára
við lystarstol að stríða. Er
talið að þar sem lystarstol geti
gert vart við sig hjá svo
ungum einstaklingum sé
ástæða til þess að gefa málinu
gaum í skólum.
Fastei vnasalan
HAFNARGÖTU 27 - KEFLAVÍK SÍMAR 421 1420 OG 4214288
Álsvellir 10, Keflavík
126 ferm. einbýli ásamt 24
ferm. bílskýli. Mjög hagstæð
Húsnæðislán áhvílandi kr. 5,í
millj. mcð 5% vöxtum.
8.500.000,-
Borgarvegur 25, Njarðvík
188 ferm. einbýli ásamt 41
ferm. bílskúr. Hús og lóð eru í
mjög góðu ástandi. Glæsileg
eign á eftirsóttum stað.
16.000.000,-
Fífumói 3c, Njarðvík
2ja herb. íbúð á 2. hæð í góðu
ástandi. Sérgeynrsla á 1. hæð.
Ibúðin er í góðu ástandi.
Góðir greiðsluskilmálar.
3.900.000,-
Túngata 23, Sandgerði
106 ferm. e.h. ásamt 44 ferm.
bílskúr. Ibúðin er mikið endur-
nýjuð og í góðu ástandi. Skipti
á íbúð í Keflavík koma til
greina.
6.500.000,-
Whbf*
G- isij' ‘““Sl *» :■ BU“nKl“
. li 1115’ •= i'pJí^aisL
' ’ - ■ vs
Cirænás lb, Njarðvík
109 ferm. 4ra herb. íbúð í
góðu ástandi. Hagstæð lán
áhvílandi mcð 5% vöxtum
6.200.000.-
Hringbraut 96, Keflavík
Videóleiga til sölu ásamt hús-
næði á 1. hæð með inn-
réttingum og öðrum búnaði.
Ymsir greiðslumöguleikar
fyrir hendi. Allar nánari uppl.
gefnar á skrifstofunni.
Brekkustígur 33b, Njarðvík
Rúmg. 3jn herb. íbúð á 2. hæð
m/sérgeymslu í kjall. og
mikilli sameign. íbúðin er í
góðu úslandi. I.aus slrax.
Hagst. lán m/lágum vöxtum
áhvílandi. Útborgun aðeins kr.
300 þús. Tilboð.
iW'"
mmp.v.vzj
Hringbraut 70, Keflavík
72 ferm íbúð á 2. hæð. Ýmsir
greiðslumöguleikar eru fyrir
hendi. Laus strax.
4.900.000.-
Heiðarholt 16, Keflavík
2ja herb. íbúð á 2. hæð ásamt
sérgeymslu í kjallara. Glæsi-
leg eign á góðu verði.
4.600.000.-
Skodið myndaglugga okkar, þar eru að finna sýnishorn
af fasteignum, sem eru á söluskrá hjá okkur.
■ Reykjcmesbœr:
Samningur um
D-álmu kemur seint
Samningur um viðbyggingu
við Sjúkrahús Suðumesja sem
samþykktur var 11. nóvember
á síðasta ári hefur enn ekki
verið afhentur og að tillögu
meirihluta hefur Bæjarstjóm
Reykjanesbæjar bókað um
málið þar sem óskað er eftir
að fjármála- og heilbrigðis-
ráðuneyti hraði afgreiðslu
hans svo hægt verði að hefja
framkvæmdir sem fyrst. Tóku
fulltrúar minnihluta undir
bókunina.
II Oldmncirnefíid Suðumesjci:
Skipuö verði nefnd
til aö vinna aö
framtíðarskipulagi
öldrunarmála
Öldrunarnefnd Suðurnesja
hefur lagt til við stjóm S.S.S.
að skipuð verði nefnd sem
vinna eigi að heildstæðu
framtíðarskipulagi öldrunar-
mála á Suðurnesjum. Þar
verði m.a. haft í huga fjölgun
aldraðra á svæðinu á komandi
árum og breyttar kröfur senr
fyrirsjáanlegar eru til
öldrunarþjónustu.
Segir svo í greinargerð
öldrunarnefndar:-„Má þar
gera ráð fyrir auknunr kröfunr
um hámarksgæði þjónustu.
kostnaðarsjónanniða og þörf
á fleiri valkostum í þjónustu
fyrir aldraða og fjölskyldur
jreirra11.
Nefndinni er einnig ætlað í
samráði við sveitarfélögin að
skilgreina hvaða þjónusta
verði samþætt og rekin
sameiginlega af sveitarfélög-
unum. Einnig hvaða þættir
verði sérverkefni hvers
sve;itarfélags og hver verði
þáttur ríkisins í'þjónustu og
uppbyggingu stofnana og
heilsugæslu á svæðinu.
2
Víkurfréttir