Víkurfréttir - 27.02.1997, Page 7
Stórþorskur eltir loðuntorfur við Reykjanes:
flílahrota í Gríndavík
Sannkölluð aflahrota hefur verið hjá bdtum
gerðum út frá Grindavík sfðustu daga.
Mokveiði hefur verið hjá netabátum og
hafa þeir verið að koma með mikinn og
góðan afla í hverri veiðiferð.
Aflahrotuna má rekja til þess að stór-
þorskur gengur nteð loðnutorfununt sem
verið hafa við Reykjanes síðustu daga.
Áttu sjómenn í Sandgerði von á að fara að
sjá stórþorsk. enda loðna úti fyrir
Sandgerði.
Nú hin síðari ár hafa menn og
konur verið mjög andlega þenkj-
andi. Spíritisminn hefur verið
vinsælt áhugamál margra um
langt árabil. áltugi á innhverfri
íhugun. yoga. nýöld og öðrum
austrænum trúarbrögðum hefur
gripið hugi og hjörtu fólks. Fyrir
fáeinum dögum heyrðist í fréttum
að til stæði að byggja
Buddamusteri hér á landi, eða
nánar tiltekið á Álftanesi. í næsta
nágreni við bústað forseta
lýðveldisins. Múhameðstrú er
einnig að hefja innreið sína inn í
landið okkar og virðist nokkur
áhugi vera fyrir því, en ætla má
að þar séu innflytjendur í meirih-
luta. Þegar maður lítur til þess
sem er að gerast í hinum andlegu
málefnum, á þessum sviðum, er
manni spurn: Hvað hefur orðið
um hin gömlu góðu gildi hinnar
Kristinnar trúar? Við minnumst
þess unt aldamótin að þúsund ár
em Iiðin frá því að íslenska þjóðin
tók Kristna trú og að tvöþúsund ár
eru liðin frá fæðingu frelsara
okkar Jesú Krists. A sama tíma
sér maður að fólk virðist í
auknum mæli snúa sér frá liinum
Kristnu gildum til að eltast við
trúarbrögð ættuð frá austurlönd-
um fjær og hafa ekkert með þann
Guð að gera sem er skapari
alheimsins og hefur gefið okkur
hina vestrænu siðmenningu, sem
reyndar fer nú ört hnignandi.
Getur verið að Guð sé orðinn svo
gamall að það taki því ekki að
hlusta á Hann lengur, eða ætli
Guð hafi breyst. kannski Hann
hafi skipt um skoðun, eða Honum
orðið ljóst að Hann Itafði liaft
rangl fyrir sér? Guðs orð svarar
jressu mjög skýrt í Jesaja 45.kafia,
versi 21 og 22: „Enginn Guð er til
nema ég. Fyrir utan mig er enginn
sannur Guð og hjálpari til. Snúið
yður til mín og látið frelsast, þér
gjörvöll endimörk jarðarinnar, því
að ég cr Guð og enginn annar." I
annarri Mósebók í 20.kafia og í
fimmtu Mósebók 5. kafia getum
við lesið unt boðorðin tíu. Frá því
ég fyrst fór að lesa boðorðin eins
og þau koma fyrir í Biblíunni,
veitti ég því athygli að |rar er eitt
boðorð sem ekki var til staðar í
boðorðunum sent ég lærði í
Kristnifræði þegar ég var í skóla.
Annað boðorðið Itafði verið fellt
niður og tíunda boðorðinu hafði
verið skipt í tvennt. En skv. Guðs
orði hljóðar annað boðorðið
þannig: „Þú skall engar líkneskjur
gjöra þér né nokkrar myndir eftir
því, sem er á himnum uppi, eður
því, sem er á jörðu niðri, eður því,
sem er í vötnunum undir jörðinni.
Þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki
dýrka þær, því að ég Drottinn
Guð þinn, er vandlátur Guð,.....“.
Með öðrum orðum, við eigum
ekki að búa okkur til guði úr
steinum, trjánt eða öðrum hlutum
og ekki einu sinni í hugum okkar,
því Drottinn Guð, Hann einn er
Guð. En Itver skyldi vera ástæða
þess að mennimir hafa fellt annað
boðorðið niður og látið hjá líða að
kenna það. Jú til að mynda þá er
þetta akkúrat boðorðið sem t.d.
kaþólska kirkjan þverbrýtur, því
þar em tilbeðnar myndir og stylt-
ur sem eiga að vera af Maríu
móður Jesú og ntönnum sem
teknir hafa verið í dýrlinga tölu,
þetta er gegn öllu því sem Biblían
boðar. Nú þó svo að íslenska
þjóðin teljist Kristin, þá hefur
hjátrúin haft sterk ítök t' fólki.
Fólk telur að einhver kraftur sé í
krossinum. en Itann er bara tákn
um það að Jesús var negldur á
kross þar sem Hann tók á sig
sektirnar sem voru afleiðingar
synda okkar. Krossinn eða kross-
markið í sjálfu sér gerir ekkert,
heldur er það trúin á Jesú Krist,
að tilbiðja Hann og tigna, sem
skiptir máli. Vígt vatn, hvað er
það? Það gerir ekkert, nema að
svala þorsta ef |)ú drekkur það,
eða hreinsar þig, ef þú þværð þér
upp úr því. allt annaö er hjátrú og
er það Guði andstyggð. Fyrst við
teljum okkur Kristin, hví skyldunt
við þá ekki leita Guðs, tilbiðja
Hann á þann liátt sem okkur ber,
lesa Hans orð og láta það fræða
okkur í stað þess að láta aðra
segja okkur hvemig við eigum að
trúa. Að fara í kirkju er ekki endi-
lega að fara í eitthvað tiltekið hús,
heldur að koma saman með fólki
sem vill eiga samfélag við Guð,
því að kirkjan er ekki hús heldur
fólk, húsið gerir ekkerl. það er
bara notað til að koma saman til
samfélags við Guð, en það getur
þú líka gert hvar sem er og
hvenær sem er. Ef við viljum
vera kristin, gætum þess þá að
gefa Guði það sem Honum ber,
svo sem virðingu okkar og tíma,
og láta allt annað eiga sig.
/ GiiSsfriði,
Tómas Ibsen.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður og afa,
Gústavs Adolfs Bergmann
aðalvarðstjóra
Mávabraut 8d, Keflavík.
Gunnar Gústavsson
Sigurbjörn S. Gústavsson LaufeyA. Kristjánsdóttir
Hjalti Gústavsson Margrét Þ. Einarsdóttir
Ásdís Gústavsdóttir Helgi Bragason
og barnabörn.
«1
REYKNESINGAR!
Skrifstofur Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og
Hafnargötu 57 eru opnar mánudaga til föstudaga
kl. 08:30 - 15:30. ~
Upplýsingar um viðtals- og símatíma starfsmanna eru
veittar hjá símaþjónustu.
SÍMI421 6700
ATHUGIÐ! Biðstöðvar almenningsvagna
eru við báðar skrifstofurnar.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ,
Ellert Eiríksson.
1
Árshátíð Stangveidiféiags Keflavíkur verdur haidin laugardaginn 8. mars
kl. 19 í KK-salnum í Keflavík.
Þar verður söngur, grín og gleði, bikarafhending, happdrætti
og dansleikur með dúettnum SUNNAN TVEIR.
Matarlyst sér um Ijúffengar veitingar. Veislustjóri Jóhann Líndal.
Miðaverð kr. 2.900.- Miðarseldir í húsi félagsins að Hafnargötu 15.
Félagar fjölmennið á uppskeruhátíð ársins.
Víkurfréttir
7