Víkurfréttir - 27.02.1997, Blaðsíða 18
+
Eískuleg systir okkar, mágkona og frænka,
Magnea Árnadóttir
Kirkjuvegi 11, Keflavík
er lést á Sjúkrahúsi Suðumesja 18. febrúarsl. verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, laugardaginn
1. mars kl. 14:00.
Svava Árnadóttir
Halldóra Árnadóttir
Guðrún Árnadóttir
PállÁrnason Dórothea Friðriksdóttir
Þuríður Halldórsdóttir
og frændsystkini hinnar látnu.
Fimmtán 3ja stiga
II a | ■ /
:lm ■ 4-2-a
Keflvíkingar tóku á móti
Skallagrím í DHL-deildinni í
körfuknattleik karla á sunnudag.
Þeir sýndu enga gestrisni og
völtuðu yfir Borgnesinga
112:86. Keflvíkingar réðu
hraðanum og settu alls fimmtán
þriggja stiga körfur og það var
meira en Borgnesingar réðu við.
Stigahæstu menn Keflavíkur:
Damon 26, Falur 22, Elentínus
15.
Njarðvíkingar virðast vera búnir
að finna taktinn á ný og á
sunnudag unnu þeir ÍR á
heimavelli 94:89. Stigahæstu
menn Njarðvíkur: Torrey 30.
Páll 18, Friðrik 15.
Grindvíkingar biðu sinn fjórða
ósigur í vetur gegn IA á
Skipaskaga á sunnudag 78:64.
Var það fyrst og fremsl góður
varnarleikur IA sem gerði
útslagið. Stigahæstu menn
Grindavíkur: Myers 38, Marel
10, Helgi Jónas 6.
Tækniþjónusta SA, ehf.
Verkfræðingur/T,æknifræðingur
r
Tækniþjónusta SA, ehf., óskar eftir að ráða
byggingaverkfræðing/byggingatæknifræðing
með 3-5 ára starfsreynslu.
Mikil vinna framundan.
Nánari upplýsingar í síma 421-5105.
77/ viðskiptavina Landflutninga hf.
í Grindavík og Vogum.
Ég undirritadur hef selt rekstur flutningabifreidar minnar,
sem þjónad hefur Grindavík og Vogum í meira en 10 ár.
Vil ég þakka öllum vidskiptavinum mínum góð
samskipti í þessi ár.
Þann 1. mars n.k. mun Sigurður Óli Hilmarsson,
Hólavöllum 7, Grindavík, taka við flutningunum og von
mín er að samskipti ykkar við hann verði jafn góð
og við mig.
Einnig mun Sigurður taka við umboði Endurvinnslunnar
hf. og opnunartími verður sá sami og verið hefur, þ.e.
kl. 20-21 á mánudagskvöldum að Tangasundi 1,
Grindavík.
Heimasími hjá Sigurði er 426-8645 og vinnusímar
852-7113 og 892-7113.
Með kveðju og þökk fyrir viðskiptin.
F.h. Brúnir, ehf.
Ólafur Þór Þorgeirsson,
Selsvöllum 7, 240 Grindavík.
Grhidavík NjarðvGi í kvöld
Leikurinn skiptir
okkur engu málí
-sogir Friörik JijálJiiri Grimlitvílíiir.
NjítrávOiingtir stitðráánir í itá vinnti
Njarðvík sækir nágranna sína í
Grindavík heim í kvöld í DHL
deildinni í körfuknattleik karla.
Það verður án efa hart barist ef
marka má fyrri leiki jressara liða
og því ckki úr vegi að fá þjálfara
liðanna þá Astþór Ingason,
Njarðvík og Friðrik I. Rúnarsson
Grindavík til að spá í spilin. Þess
má geta að þeir Astþór og Friðrik
spiluðu áður saman með Njarðvík
og eru því að góðu kunnir. Þetta
ætti þó ekki að spilla fyrir enda
báðir frægir baráttujaxlar og munu
eflaust tjalda öllu til að bera sigur
úr býtum. Fyrir utan ánægjuna af
því að vinna er nokkuð í húfi því
bæði lið eru að reyna tryggja sér
þægilegt sæti fyrir úrslitakeppnina
en Njarðvíkingar sem nú sitja í
fimmta sæti eiga örlitla möguleika
á því fjórða og Grindavík sem nú
er í öðru sæti á enn möguleika á
fyrsta sæti. Til þess þurfa bæði
liðin þó að treysta á töp annarra
liða.
„Eg er allavega búinn að kaupa
mér ný fot, því ef svo óheppilega
fer að við töpum þá ætla ég að
salta hann í klæðaburðinum",
sagði Aslþór og hló en keppnis-
skapið sýndi sig greinilega þar
sem Astþór var ákveðin í að
„sigra" Friðrik í kvöld annaö hvort
í körfuknattleik eða fatastíl. ,J>etta
verður „Derby" leikur eins og
vant er þegar Suðurnesjaliðin
mætast og þá skiptir ekki máli þótt
okkur hafi gengið vel í síðustu
tveimur leikjum og Grindavík hafi
tapað síðasta leik. Það sem skiptir
máli er hvom liðinu langar meira
að vinna. Við erum vel stemmdir
og tilbúnir í þennan leik og höfum
engu að tapa heldur allt að vinna.
„Þetta er langt mót og það koma
alltaf slakir leikir inná milli og satt
best að segja er ég ekkert ósáttur
við þetta tap upp á Skaga. Sagan
sýnir nefnilega að velgengni er
ekki endalaus og það kemur að
því að sigursæl lið tapi og þá er
betra að gera það rétt fyrir úrsli-
takeppnina heldur en í henni
svona rétt til að komast aflur á
jörðina. Staða okkar er ráðinn, við
verðum í öðru sæti eftir deildark-
eppnina og leikimir sem eftir em
skipta þar engu máli. Við mætum
að sjálfsögðu í kvöld til að vinna
eins og alltaf en ég veit ekki
hvernig stemmingin verður í
liðinu þar sem við emm famir að
undirbúa okkur undir úrslita-
keppnina. Það er hún sem skiptir
öllu máli núna,“ sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson þjálfari Grindavíkur.
KBS mót í snóker
KBS mótið í snóker verður
haldið um helgina., 27.
febrúar til 2. mars. Spilað
verður í riðlum á fimmtudag,
föstudag og á laugardag.
Sextán og átta manna úrslit
verða síðan á laugardag og
sunnudag.. Undanúrslit verða
laugardaginn 6. mars og úr-
slitaleikurinn föstudags-
kvöldið 7. mars kl. 20:30.
Spilað verður með forgjöf og
keppendur verði í snyrtilegum
klæðnaði. Þátttökugjald er kr.
1500.- Veitt verða verðlaun
fyrir fjögur efstu sætin ásarnt
hæsta stuði í öllunt flokkum.
Þátttaka tilkynnist í síma 421
3822 á snókerstofunni.
ALLIR MEÐ.
Margrét Ósk. Til hamingju elsku
Margrét okkar með 16 ára
afmælið. Frá ömmu og afa.
Þessi gella varð 17 ára þann 23.
febrúar sl. Til hamingju með bíl-
prófið Asta. Rauðhetta.
Halldór Ragnarsson verður 40 ára
5. mars nk. Hann og kona hans
Helga Siguröardóttir taka á móti
vinurh og vandamönnuirr lau-
gardaginn I. mars frá kl. 20:30 í
sal Frímúrara. Bakkastíg,
Njarðvík.
María Baldursdóttir verður 50
ára þann 28. feb. Hún og Rúnar
taka á móti ættingjum og vinum
á Glóðinni kl. 20-22 á afmælis-
daginn.
18
Víkurfréttir