Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.04.1997, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 03.04.1997, Blaðsíða 19
s -þegar UMFG tryggði sér Islandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna eftir sigur á KR í þriðju viðureigninni. Frækinn árangur Grindavíkurstúlkna! Grindavík varð íslandsmeistari í körfuknattleik kvcnna í fvrsta skipti þegar liðið lagði KR í Hagaskóla í þriðja úrslitaleik liðanna fvrir fullu húsi sl. fimintudag, skírdag. Lokatölur urðu 55- 62 eftir framlengingu en staðan eftir venjulegan leiktíma var 49-49. Sigurganga Grindavíkur í úrslilakeppninni er lyginni líkast.en þær vom í fjórða sæti í deildarkeppninni Þær mættu Islandsmeist- umm Keflavíkur í undanúrslitum og flestir áttu von á öruggum sigri Keflavíkur en stelpumar í Grindavík vom á öðm máli og sigruðu 2:0. Því næst beið þeirra slagur gegn KR um Islandsmeistaratitilinn. Þá sýndu þær að sigur þeirra gegn Keflavík var engin tilviljun með því að sigra 3:0 og töpuðu þannig ekki leik í allri úrslitakeppn- inni. Þetta er sérlega glæsilegur árangur og ekki síst vegna þess að fyrir úrslitakeppnina vom Keflavík og KR talinn vera langbestu lið deildarinnar. „Þetta var ólýsanlegt og frábært að ná að snúa þessu svona okkur í hag eftir að hafa verið lagnt undir. Það em búin að vera mik- il hátíðahöld í bænum og fleiri hundruð manns tóku á móti stelpunum þegar þær komu heim með blysum og flautublæstri alveg eins og gert var við karlana í fyrra. Það er alveg óráðið með næsta tímabil. Einhverjar stelpur fara sjálfsagt í skóla og þá jafnvel eitthvað annað en í Fjölbrauta- skóla Suðumesja. Hvað sjálfan mig varðar hefur ekki verið tekin nein ákvörðun en ég reikna frekar með að ég verði ekki þjálfari næsta ár,“ sagði Ellert Sigurður Magnússon siguireifur þjálfari Grindavíkurstúlkna. „Þetta er alveg frábært og ennþá betra held- ur en þegar ég varð Islandsmeistari með Breiðablik. Þetta em svo ungar stelpur og það gerir þetta enn skemmtilegra. Eg er al- veg yfir mig hrifin af Grindavík og hef kærastan minn hér hjá mér. Einnig hef ég fína vinnu. Það er alveg óráðið tneð næsta ár. Eg vil ekki einu sinni hugsa um þaö núna. Þetta er ótrúlegt að hafa lagt þessi tvö lið 5:0 samanlagt í úrslitakeppninni. Kefla- vík og KR mynda saman um 70% af lands- liðinu þannig að þetta em mjög góð Iið. Við undirbjuggum okkur vel fyrir þessar viður- eignir og skoðuðum andstæðingana vand- lega á myndbandi áður þannig að við t.d. kunnum öll þeirra kerfi. Þetta hafði mikið að segja og þjálfarinn okkar hann EIli gerði góða hluti með liðið en það vom þó leik- mennimir sem framkvæmdu hlutina eins og alltaf í íþróttum", sagði Penny Peppas fyrirliði Grindavíkur. „Þetla var eftirminnilegur og stór dagur í lífi mínu. Dagurinn var tekinn snemma með því að fara í hárgreiðslu kl. 08.00 um morguninn síðan í myndatöku í Keflavík svo var aftur farið til Grindavíkur og látið ferma sig. Það gáfust síðan þrjár klukkus- tundir til að vera með gestunum í veislunni og þá þurfti að bruna í Reykjavík inn í Hagaskóla og var þar mætt|20 mín. fyrir leik. Foreldrar mínír gátu ekki fylgst með leiknum en það gerðu afi, systir mín og frændi" sagði Hekla Maídís Sigurðardóttir, leikmaður Grindavíkur sem lét femia sig á Skírdag. líinnum el við spilum svona -sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keílavíkur eftir öruggan sigur í fyrsta úrslitaleiknum gegn Grindavík Keflvíkingar sigruðu Grindvík- inga í Keflavík á þriðjudaginn í fyrsta leik liðanna um hvort liðið hampar Islandsmeistaratitlinum í körfuknattleik karla. Lokaölur urðu 107-91 eftir að staðan í hálf- 1 leik hafði verið 61-42. Liðin fóm varlega af stað og mik- ið var um mistök á báða bóga, virtist sem taugatitrings gætti á meðal manna. Keflvíkingar hristu þó slenið af sér og náðu strax góðu forskoti sem þeir náðu upp í 19 stig fyrir leikhlé. í seinni hálf- leik héldu heimamenn fengnum hlut en náðu þó að auka muninn mest í 21 stig. Um miðjan hálf- leikinn náðu gestimir að minnka muninn niður í átta stig og virtust til alls líklegir en Keflvíkingar reyndust sterkari á endasprettinum sem og í öllum leiknum og sigur þeirra var sanngjam. „Við vorum að spila mjög vel í dag og ef við spilum svona áfrarn þá vinnum við. Við leyfðum jreiin ekki að komast lengra og það er mjög gott mál. A fimmtudaginn munum við halda okkar striki enda ástæðulaust að fara breyta góðum hlut,“ sagði Sigurður Ingi- mundarson þjálfari Keflavikur eft- ir leikinn. Hjá Keflavík var það liðsheildin sem skóp sigurinn, hvergi var veikan hlekk að finna og hittnin var í lagi. Þetta var greinilega ekki dagur Grindvíkinga og þeir áttu mjög erfitt með að finna leið að körfu Keflvíkinga, þó ber að hafa í huga að lið spilar ekki betur en andstæðingurinn leyfir. Sú varð rauninn í þessum leik þótt þar á ofan hafi bæst lánleysi Grindvík- inga. Skyttur jreirra fóm aldrei í gang nema Unndór og þótt Herm- an Myers hafi gert 33 stig missti hann marga bolta í góðum færam. „Við voram að spila illa og langt undir getu í þessum leik bæði í vöm og sókn. Vamarlega var ekki gert það sem áður hafði verið ákveðið og Keflvíkingar réðu hraðanum. Þeir fengu allt of mörg fn' skot og það gengur ekki á móti Keflavík og reyndar ekki á móti neinu liði. Menn eiga að þurfa hafa fyrir hlutunum. Þetta eru rnjög lík lið og þetta var þeirra dagur. Það sem við þurfum nú að gera er að stöðva liðsheildina hjá þeim og við komum vel tilbúnir til þess í næsta leik, því get ég lof- aðsagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Grindavíkur eftir leikinn. Stigahæstu menn Keflavíkur: Damon Johnson 24, Falur Harðar- son 22, Albert Oskarsson 15. Stigahæstu menn Grindavíkur: Herman Myers 33, Unndór Sig- urðsson 17, Helgi Jónas Guð- fmnsson 13. Keflvikingurinn FalurHardarson gefur merki um stöðuna eftirfyrsta leikinn, 1:0. Að ofan má sjá Kristinn Friðrikssoní bar- áttu við tvo Grind- víkinga. Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.