Víkurfréttir - 23.04.1997, Qupperneq 5
Björgunarsveitarfólk af
Suðurnesjum og höfuð-
borgarsvæðinu æfði rústa-
björgun á Keflavíkurflug-
velli um síðustu helgi.
Kanadískur sérfræðingur
kom hingað til lands til að
leiðbeina íslensku björgu-
narfólki. Æfingin um síðus-
tu helgi er liður í undir-
búningi fyrir risastóra æf-
ingu sem haldin verður hér
á landi í sumar. Þar verða
m.a. æfð viðbrögð við
Suðurlandsskjálfta og
fleiru. Þá verðurmikil
æfing í Grindavík þarsem
bæjarbúarmunu taka
virkan þátt. Meðfylgjandi
myndir tók Hilmar Bragi á
æfingunni um síðustu helgi.
-hafa kært yfirtöku á landskikum og krefjast opinberrar rannsóknar
Lögð hefur verið frani kæra og krafist
opinberrar rannsóknar ríkissaksóknara
á meintri vfirtöku Varnarmálaskrifstofu
Utanríkisráðuneytisinslands á lendum í
og frá Helguvík en þar hefur m.a. risið
fiskimjölsverksniiðja og tleira.
Eigendur jarðanna Litla Hólms í Leiru,
Gerðahreppi og meðeigendur að jörðunum
Kötluhóli og Sólbakka í Gerðahreppi, að
óskiptri sameign áðumefhdra jarða að land-
ræmu meðfram ströndinni í Leirulandi, telja
að ríkisvaldið hafi slegið eign sinni á
umræddar lendur í óleyfi.
Jón Oddsson, hæstaréttalögmaður fer með
mál eins af landeigendunum sem eru Fisk-
þurrkun efh. í Garði. Hann segir að fyrir
bragðið sé hluti af svonefndum Helguvíkur-
framkvæmdum nú á landi, sem ofangreindir
bæir eiga í óskiptri sameign. Þá hafi ríkið
afsalað landi Fiskþurrkunar ehf. til
Keflavíkurbæjar. nú Reykjanesbæjar sem
síðan hefur úthlutað lóðum og öðru til
einkaaðila á því svæði.
I greinargerð lögmannsins kemur fram að
ráðist hafi verið í stórfelld eignaspjöll á
umræddu landi, ma. með malar- og hafna-
framkvæmdum og fleiru en í Helguvík er
risinn fiskimjölsverksmiðja, malbikunarstöð
sem og olíustöð á vegum varnarliðsins.
Umræddu landssvæði a.m.k. að hluta til, s.s.
í Helguvík, virðist ríkissjóður hafa ráðstafað
án heimildar landeigenda, þ.á.m. til
Hafhasamlags Suðumesja, sem síðan hefur
gert lóðarleigusamninga varðandi umrætt
land við t.d. Helguvíkurmjöl hf. og SR mjöl
hf. Telur hann að umbjóðandi hans hafi
orðið fyrir miklu fjárhagstjóni og eigna-
spjöllum sem hann telur varða við ákvæði
26. kafla almennra hegningarlaga. „Þetta
varðandi er brýn nauðsyn á opinberri
rannsókn enda hafa gagnaðilar vísað frá sér
erindum umbjóðanda míns um upplýsingar
vegna þessa og vinna þar áframhaldandi
eignaspjöll og svipta umbjóðanda minn
umráðum eigna hans“, segir Jón í greinarg-
erð sinni. Krafist er bæði refsinga lögum
samkvæmt gagnvart þeim er sekir kunna að
vera í þessu máli sem og fébóta, sem ekki er
ólíklegt að verði háar tölur.
Seint á fimmta áratugnum og á þeim sjötta
afsöluðu ýrnsir landeigendur í Gerðahreppi
landskikum meðfram ströndinni til
ríkissjóðs og fengu fyrir það verulegar
upphæðir. Lögmaðurinn hefur lagt fram
uppdrætti af landinu frá þeim tíma sem
Agúst Böðvarsson heitinn. forstjóri
Landmælinga Islands á þeim tínia gerði og
telur að þar komi greinilega fram að land-
ræman meðfram ströndinni þar sem m.a.
Helguvíkurhöfn sem og grjót- og malarnám
er í dag, sé utan þess svæðis sem tekið var
eignamámi. A þessari landræmu er einnig
golfvöllur Golfklúbbs Suðurnesja en um
það land var gerður samningur á sínum
tíma.
Eins og fyrr greinir hefur Reykjanesbær
úthlutað lóðum í umræddu landi til annana
aðila. Forráðamenn bæjarins telja sig i full-
um rétti til [ress og benda á afsal frá 1. maí
1971 þar sem þá Keflavíkurbær kaupir af
ríkissjóði land það er um er fjallað á Hólms-
bergi. I bréfi bæjarins segir að það hafi
verið skilningur aðila og fyrir honum séu
mörg skjalfest rök að eignamám og síðan
sala lands á Hólmsbergi nái allsstaðar til
sjávar og þess sé hvergi getið í gögnum að
strandlengjan sé að hluta eða öllu leiti
undanskilin og eignarréttur bæjaifélagsins
sé ótvíræður.
V íkiirfréttír