Víkurfréttir - 11.09.1997, Síða 15
Vetnishagkerfi á íslandi:
Hugmyndin er
nálæg framtíðinni
Breska tímaritið The
Economist fjallaði nýverið
um hugmyndir á Islandi um
að nota vetni unnið úr jarðhita
sem eldsneyti og vísaði þar
m.a. til framtaks þingmanns
Suðurnesjamanna Hjálmars
Árnasonar sem á sér þann
draum að Island verði fyrsta
„vetnishagkerfið“ þar sem
vetni kæmi í stað kolefn-
iseldsneytis eins og díselolíu
og bensín.
í greininni er vilji Islendinga
til þess að nýta vetni m.a. rak-
in til þess að ástæða sé til að
auka fjölbreytni i hagkerfi
sem byggir að mestu leyti á
ftski auk þess sem mikill vilji
sé hér á landi fyrir því að upp-
fylla skilmála Río-sáttmálans
um að draga úr útgufun
koltvíildis.
Að sögn Hjálmars hefur
greinin vakið mikla athygli og
áhuga og þegar hefur verið
haft samband við hann frá
Bandaríkjunum og Bretlandi
auk þess sem að japönsk sjón-
varpstöð er á leiðinni til lands-
ins til þess að fjalla um málið.
Boltinn fór að rúlla eftir
þingsálvktunartillögu
„Það er ekki oft sem að Is-
lands er getið í einu virtasta
tímariti heims og hefur það
greinilega vakið mikinn
áhuga. Ástæða þess að ég er
bendlaður við þetta er sú að
ég flutti þingsályktunartillögu
Ný herrafataverslun opnar á
morun við Hafnargötu 25 í
Keflavík og ber nafnið TÖFE Það
er ungur Keflvíkingur, Jakob
Hermannsson sem er eigandi
hennar. Jakob er sonur Hermanns
Guðjónssonar annars eiganda
verslunarinnar Miðbæjar í
Keflavík.
Tveir Keflvíkingar em í bankaráði
Landsbankans hf. en honum var
breytt í hlutafélag í bær. Þetta em
kratadrottningin Anna Margrét
Guðmundsdóttir og Itirgir
Runólfson. hagfræðingur og
gjaldkeri Knattspymuráðs Kefla-
víkur. Formaður ráðsins Helgi
Guðmundsson mun einnig vera
ættaður af Suðumesjum.
Harpa Lind Harðardóttir. feg-
urðardrottning sagði í léttum dúr
þegar hún kom heim úr Ungfrú
Evrópu að stúlkurnar sem hættu
við þátttöku hefðu verið í keppn-
inni um „Ungfrú heim!!“.
um þetta mál í vetur og í kjöl-
farið hefur boltinn farið að
rúlla. Upphaftð má rekja til
þess er ég stýrði nefnd á veg-
um iðnaðarráðherra til þess að
skoða möguleika á að vinna
úr magnúsíumáli. Ekki aðeins
flytja það út sem hráefni held-
ur vinna úr því hér. Við feng-
um til þeirrar nefndar inn-
kaupastjóra Wolkswagen
verksmiðjanna í Þýskalandi
sem jafnframt ræddi við Hita-
veitu Suðurnesja í tengslum
við magnúsíumverksmiðju.
„Ég hef verið í sambandi við
framkvæmdastjóra leiðandi
fyrirtækis í Evrópu á þessu
sviði og hefur hann og fulltrú-
ar íyrirtækisins komið hingað
til lands. í haust kemur sendi-
nefnd frá Þýskalandi til þess
að skoða þetta og eru helstu
ástæður fyrir þessum áhuga
tvær. Annars vegar mengun
sem þjóðþing allra landa eru
að glíma við núna eins og
minnkun á kotvíoxíðmengun
en vetni er algjörlega vist-
vænn orkugjafi. Hins vegar sú
Formaður Benz verksmiðjanna hefur lýst því yfir
að vetni verði orkugjafi 21. aldarinnar og flest
önnur bílafyrirtæki eru að þróa þessa hugmynd...
Með honum í var lögfræðing-
ur fyrir þýska bílaframleið-
endur og það er hann sem fer
að nefna áhuga á framleiðslu
á vetni. I kjölfarið fór ég síðan
að grugga í þessu og hef núna
verið skipaður formaður
nefndar sem að á að gera til-
lögur varðandi nýtingu inn-
lendra orkugjafa".
Vemi er unnið úr vami og raf-
magni sem er eitthvað sem Is-
lendingar eiga nóg af og að
sögn Hjálmars vekur sú stað-
reynd rnikinn áhuga útlend-
inga.
Olíulindir jarðar fara að
minnka
staðreynd að því hefur verið
spáð að upp úr 2015 farið ol-
íulindir jarðar að minnka sem
þýðir að verðið rýkur upp úr
öllu. Þetta gerir það að verk-
um að tækniþróunin á þessu
sviði er svo hröð að menn
hafa varla undan að fylgjast
með. En menn einblína á ís-
land vegna vatnsins og raf-
magnsins auk þess sem að
spennandi er að gera tilraunir
hér. Einnig er landið svo lítið
að auðvelt er að halda utan
um slíkar tilraunir og þá er
hægt að yftrfæra reynsluna til
annarra þjóða“.
Þekkist slík nýting á vetni er-
lendis?
Bíll knúinn vetni.
„Menn eru að gera tilraunir og
hefur BMW t.d. nýlokið
smíðum á bíl sem knúinn er
vetni. Hann kemst upp f 170
km. hraða og fer 400 km. á
fyllingunni. Formaður Benz
verksmiðjanna hefur lýst því
yftr að vetni verði orkugjaft
21. aldarinnar og flest önnur
bílafyrirtæki eins og Benz og
Chrysler eru að þróa þessa
hugmynd. Þessi hugmynd er
ekki íjarlæg framtíð heldur er
hún mjög nálægt okkur og því
er lag að byrja slíkar tilraunir.
Nefndin sem Hjálmar veitir
forstöðu ntun skila áfanga-
skýrslu í september en stefnt
-segir Hjálmar
Árnason alþing-
ismaðuren
vitnað er í hann
í síðasta tölu-
blaði The
Economist
er að því að hún ljúki endan-
lega störfum í febrúar.
„Með áfangaskýrslunni von-
umst við til þess að fyrstu
skrefm verði stigin enda vinn-
an þegar hafin. Vtð flytjum 10
milljarða út á ári út úr efna-
hagskefi okkar við það að
kaupa olíu og bensín. Með því
að halda þessu hér erum við
að spara gjaldeyri, skapa störf
og getum jafnvel farið að
flytja út“.
Telur þú þetta raunhæfan
möguleika?
,Já, og þeim mun meira sem
ég kynni mér málið því raun-
hæfara er þetta“, sagði
Hjálmar Ámason, þingmaður
að lokum.
Viðskip ta vinir
athugið!
Höfum bætt við okkur þjónustuna.
Nú bjóðum við upp á pústviðgerðir
og ísetningar í allar gerðir bila.
10% afsláttur af pústviðgerðum
út september '97.
Sjáumst!
Hjólbarðaþjónusta Guðmundar
Hafnargötu 86 - Aðalstöðin • Keflavík - Sími 421-1516
* T* T ^
...viltu dansa?
$
Ð
• Samkvæmisdansar
• Gömlu dansarnir
• Tjútt og Rock 'n Roll
• Kántrý (Línudans)
• Barnadansar, yngst 4 ára.
Upplýsingar og innritun
ísíma 421 4082, kl. 17-20
Fjölskyldn- og systkinaafsláttur.
10 tíma dansnámskeið
hefst 16. september
Innritun hefst í dag
og stendur til 14. sept.
na yiidií
Víknrfráttir
15