Víkurfréttir - 30.04.1997, Síða 15
Að markaðsetja Dónaskap
Nú er komið að síðasta
boðorðinu: Þú skalt ekki gimast
hús, konu ....eða nokkuð sem
náungi þinn á . Þungamiðjan í
þessu boðorði er girndin, við
erum vöruð við því sem biblían
kallar girnd, af hverju, jú
girndin fæðir af sér synd og
syndin dauða. Þeir sem ánetjast
girndinni í einhverri mynd
komast að því að hún er óseð-
jandi. I stað þess að njóta lifsins
verða þeir þrælar þess sem þeir
hugðust njóta. Hversu mörg
hjónabönd hefur gimdin ekki
rústað, hversu mörg líf hefur
gimdin ekki tekið, einhver gim-
tist eigur náunga síns og tók
fyrst líf hans og síðan eigur.
Gimdin á ekkert sameiginlegt
með kærleika heldur nærist hún
á eigingimi. Margir mgla samt
saman ást og gimd og ekki að
ástæðulausu, flestar spen-
nubækur , kvikmyndir og
tíðarandinn almennt segir gim-
dina góða og eftirsóknarverða.
Samt er það svo að girndin
sækist eftir lífi þínu. Orðs-
kviðimir 23.31 :„Horf þú ekki á
vínið, hve rautt það er, hversu
það glóir í bikamum og rennur
Ijúflega niður . Að síðustu bítur
það sem höggormur og spýtir
eitri sem naðra. Augu þín munu
sjá kynlega hluti, og hjarta þitt
mæla fláræði...... þeir hafa
barið mig ég varð þess ekki var.
Hvenær mun ég vakna ? Eg vil
meira vrn."
Hér sést vel að ákveðinn lífs-
máti sem virðist aðlaðandi og
spennandi, endar í þrældómi.
Girndin byggist á lygi og
blekkingu, þess vegna varar
biblían okkur við henni.
Nú nýlega hefur bætst við enn
ein aðferðin til að fæða gimd-
ina, eða: „Að markaðsetja
dónaskap.“. „Fæst í öllum
sfmtólum“. „Hún er þín í nótt“.
k.r. 66.50 mfnútan .Ja ,héma,
þeir hljóta að bjóða Visa rað-
greiðslur brátt. Þetta kallast
Daðursögur, Nætursögur,
o.s.frv.en flestir vita þó að
þetta em í raun lygasögur og
dónaskapur.
Ég heyrði nýlega viðtal við
konu í útvarpi sem vann á
dagheimili fýrir böm, sem rekið
var á kristilegum gmnni. Hún
var spurð? Heilaþvoið þið
bömin? Er þetta ekkert ofstæki
að kenna bömunum um Jesú?
Eru þetta ekki merkilegar
spumingar hjá þjóð sem á að
teljast kristin? En það er eins og
mjög fáir hafi áhyggjur af því
að alls konar skemmtikraftar og
fjölmiðlar hreinlega nauðga
bömum okkar með dónaskap
og ósæmilegu hugarfari.
Svo spyrjum við ? Af hverju
leiðast þau út í eiturlyf og
annan ólifnað.Svarið er: „Það
læra bömin sem fyrir þeim er
haft.“
Að lokum langar mig vinsam-
legast að fara þess á leit við
Víkurfréttir að blaðið hlífi
okkur við umræddri markað-
setningu, þó það væri ekki
nema fyrir bömin.
Guð blessi ykkur.
Kristrinn Asgrímsson.
Efni biður
birtingar
Mikið af efni bíður nú birtingar á
ritstjóm blaðsins. í þessari viku kom
mikið af auglýsingum á síðustu
stundu og vegna miðvikudagsútgáfu
var ekki hægt að stækka blaðið til að
koma fyrir meira lesefni. Það verður
að bíða til næstu viku.
Auglýsendur eru hvattir til að vera
tímanlega með auglýsingar í næsta
blað sem er á miðvikudegi.
I___________________________________I
Kvenfálag Keflavíkur:
Hattafundur, Vorferð
og kaffisala
Kvenfélag Keflavíkur lýkur hefðbundnu vetrarstarfi
með hattafundi 5. maf n.k. á Glóðinni kl. 20.00. Ýmis-
legt skemmtilegt verður á fundinum og verður m.a.
Karen Jónsdóttir með tískusýningu og fleira skemmti-
legt verður í boði. Þátttaka tilkynnist til Guðrúnar 421-
2393, Mummu 421-1625 eða Röggu 421-3131 fyrir4.
maí.
Farið verður í hina árlegu vorferð félagsins þann 19.
júní n.k. og verður það auglýst nánar síðar.
Kvenfélagskonur hafa hug á að hafa kaffisölu 17. júní
að þessu sinni í Hvammi við Suðurgötu 15 -17.
A aðalfundi félagsins var stjóm félagsins endurkjörin
og er formaður ína Dóra Jónsdóttir.
dff Siálfstæðteféletg Gerðahrepps:
>5fr Er skólastarf á réttri leið ?
Sjálfstæðisfélag Gerðahrepps boðar til fundar um
skólamál, þriðjudaginn 6. maí kl. 20:30 í Sæborgu.
Framsögumenn verða:
Sigríður Anna Þórðardóttir, alþingismaður,
Eiríkur Hermannsson, skólamálastjóri,
Jónína Bjartmarz, formaður Heimili og skóli.
Eftir stutt framsöguerindi svara þau fyrirspurnum.
Er árangur á samræmdum prófum viðunandi?
Er heimavinna nemenda of mikil eða of lítil?
Hver er ábyrgð foreldra?
Er einsetning skóla nauðsynleg?
Verður skólinn betri í umsjá sveitarfélaga?
Eru bætt kjör kennara forsenda fyrir betri skóla?
Það skiptir miklu máli hvernig til tekst í skólastarfinu.
Allt áhugafólk er hvatt til að mæta á fundinn.
Kaffi og meðlæti verður selt á fundinum. Verð kr. 300.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Gerðahrepps.
VOR-TILBOÐ!
Skol í stutt hár kr. 1.300,-
Skol í millisítt hár kr. 1.500.-
Skolísítthár kr.1.800,-
Gildir 2. ■ 8. maí ■ Verið velkomin!
HÁRSNYRTISTOFAN
ee,
£/L/LQ/
HÖLStMAff1-S677
0 Lúðrasveitar-
tóhusjakskóii toiileikar
NJARÐVÍKUR
Lúðrasveit Tónlistarskóla Njarðvíkur,
eldri deild, heldur sína árlegu
vortónleika fimmtudaginn
1. maí kl. 16:00 í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju. Mjög fjölbreytt efnisskrá.
Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir 12 ára
og eldri. Ókeypis fyrir börn yngri
en 12 ára.
Ágóðinn rennur í ferðasjóð
sveitarinnar.
Allir velkomnir.
Skólastjóri.
Smáauglýsingar í Víkurfréttum
birtast á Internetinu
- ekkert aukagjald!
Varnarliðið
Símsmiður
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
óskar að ráða símsmið til starfa hjá
Fjarskiptastofnun Varnarliðsins.
Umsækjandi sé lærður símsmiður
með reynslu.
Mjög góðrar enskukunnáttu krafist.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar
Varnarmálaskrifstofu, Brekkustíg 39,
260 Reykjanesbæ, sími 421-1973,
eigi síðar en 5. maí 1997.
Víkurfréttir