Víkurfréttir - 30.04.1997, Blaðsíða 16
♦ Itölsku nemendurnir frá Taranto voru hrifnir af útisundlaugum istendinga og varSundmiðstödin í Keflavík vinsæll áningastadur.
Fannst skrítið að fara í útisundlaug um „miðjan vetur"
Um 30 nemendur frá
Aristosseno Lyceum í Taranto á
Ítalíu hafa heimsótt nemendur
og sótt tíma í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja undanfarnar tvær
vikur.
Heimsókn þeirra er liður í evrópskum
nemendaskiptum er nefnast „Socrates
program „Language E“ og að sögn
Eileen Masterson enskukennara skólans í
Taranto varð Island fyrir valinu þar sem
nemendum var ætlað að læra um hreyf-
ingu jarðskorpunnar og jarðsaga Islands
enn í mótun. Einn liður í verkefninu var
að öll samskipti færu fram á ensku.
Nemendumir hafa farið í ýmsar ferðir um
landið og skoðað Vatnajökul og
ummerkin eftir nýafstaðið gos. Einnig
hafa þeir heimsótt Gullfoss og Geysi og
Bláa lónið vakti mikla lukku.
Með þeim í för eru auk Eileen; Antonia
Torcello, Mirella Memmola og Francesca
Curci sem kenna við skólann í Taranto.
Vildu þær koma á framfæri þakklæti til
Olafs Jóns Ambjömssonar skólameistara
FS og þeina kennara sem þar starfa og þá
sérstaklega til Önnu Leu Björnsdóttur
fyrir skipulagningu nemendaskiptanna
hér á íslandi.
Nenidurnir gistu hjá fjölskyldum á
Suðumesjum á meðan á dvölinni stóð og
að sögn kennara þeirra þótti þeim Island
um margt ólíkt Italíu. Veðrið vakti mikla
athygli nemendanna sem hefur verið
mjög fjölbreytt að undanfömu og einnig
voru þeir hrifnir af norðurljósunum. Þeim
þótti umhverfið mjög ólíkt því sem þeir
eiga að venjast og fannst sumum sem
þeir væru að lenda á tunglinu þegar þeir
komu til Keflavíkur. Sundmiðstöðin í
Keflavík var vinsæl hjá ítölsku nemend-
unum og hitti ljósmyndari VF þau þar
fyrir sl. föstudag. Þótti þeim það mjög
sérstakt að fara í útisundlaug um „miðjan
vetur“.
Nemendur Fjölbrautaskóla Suðumesja
munu síðan sækja nemendurna í
Aristosseno Lyceum í Taranto heim í
september eða í mars á næsta ári. þau
munu gista hjá fjölskyldum á Ítalíu og
taka þátt í skólastarfi þar í tvær vikur.
Svart
oq sykurlaust
Ragnar Örn ráðinn
Samkvæmt heimildum
blaðsins ákvað bæjarráð
Reykjanesbæjar á nýlegum
fundi sínum að ráða Ragnar
Öm Pétursson í stöðu skóla-
stjóra vinnuskólans í sumar.
Tómstundaráð hafði áður
mælt með Ragnari Marinós-
yni í stöðuna og klofnaði
meirihlutinn í ráðinu við af-
greiðsluna. Jafnframt var
hart deilt á bókun íþrótta- og
tómstundafulltrúa um málið
sem tveir nefndarmenn tóm-
stundaráðs tóku undir.
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar
mun taka málið til afgreiðslu
á fundi sínum þann 6. maí
n.k.
Hefði verið hœgt að
bjarga Þorsteini GK frá
strandi?
Björgunarsveitin Þorbjörn
hélt aðalfund sinn á dög-
unum og kom þar fram að
sveitin hefur haft augastað á
öflugutn björgunarbát frá
Bretlandi í stað þess báts
sem sveitin hefur nú. Er það
mat björgunarsveitarmanna í
Grindavík að ef slíkur bátur
hefði verið til staðar þegar
Þorsteinn GK rak upp í
Krýsuvíkurberg í mars sl.
hefði verið hægt að bjarga
honurn frá strandi.
Súpa datfsim
m/ nýbökuðu brauöi allan daginn
Q.vfí kr.350.-
Fri fflma eða stækktmT
með hverri framköUttii
i
MVfKlLÐVMJGCíDQlX
I________________I
Hafnargötu 52 - Keflavík - sími 4214290
NÆTUR
SÖGUR
9052828
Samvinnuferðir
Landsýn
mm m sm
VESTURBRAUT17
MATARLYST
BQQS KEFLAVIK
Itll'llM
SIMI421 4797
Simcistcji mmhtiM I
Viltu varanlegt samhand
l^áttn dagch'anmana eða kitlandi ævintýri?
m rætast og hringdit v í síma... 1770
GULLHUÐ
cri-ríís
Rafgull
Grófin 8 Keflavík
símar421 5020,8968255
16
Víkurfréttir