Víkurfréttir - 30.04.1997, Side 19
Friðrik til UMFN
Friðrik Ingi Rúnarsson hefur
verið ráðinn þjálfari úrvalsdeild-
arliðs Njarðvíkur í körfuknattleik.
Friðrik gerði UMFN að
fslandsmeisturum 1991 en hefur
undanfarin þrjú ár þjálfað
Grindavík en liðið varð sem
kunnugt er íslandsmeistari 1996.
Aðstoðarmótið í snóker
Aðstoðarmótið í snóker hefst í
kvöld, miðvikudaginn 30. apríl.
Spilað verður í riðlum miðviku-
dag og fimmtudag. Sextán og
átta manna úrslit verða á föstu-
dag og undanúrslit og úrslit á
laugardag.
Spilað verður með forgjöf og er
ætlast til að keppendur mæti
snyrtilega klæddir í þetta síðasta
mót vetrarins. Skráning er hafm
á stofunni eða í síma 421 3822.
Kirkja
Keflavíkurkirkja
Sunnudagur 4. maí: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur: Ólafur Oddur
Jónsson. Ræðuefni: Aldursmis-
rétti og aldursfordómar. Kór
Keflavíkurkirkju syngur. Org-
anisti: EinarÖm Einarsson.
Starfsfólk Keflavíkurkirkju.
NjarðM'kurprestakall
Njarðvíkurkirkja:
Sunnudagur 4. maí: Aðalsafnað-
arfundur Innri-Njarðvíkursafnaðar
verður haldinn kl. 14:00.
Uppstigningardagur 8. maí:
Kirkjudagur aldraðra. Guðsþjón-
usta kl. 11:00. Kirkjukór Njarð-
víkur syngur undir stjóm Steinars
Guðmundssonar. Kleinur og
kaffísopi í safnaðarheimilinu að
athöfn lokinni.
Miövikudagur 7. maí: For-
eldramorgunn kl. 10:30.
Ytri-Njarðvíkurkirkja:
Fimmtudagur 1. maí: Spila-
kvöld aldraðra kl. 20:00. Síðasta
skiptið að þessu sinni.
Sunnudagur 4. maí: Guðsþjón-
usta kl. 11:00 Kirkjukór Njarðvík-
ur syngur undir stjórn Steinars
Guðmundssonar. Áðalsafnaðar-
fundur Ytri-Njarðvíkursafnaðar
verður haldinn að henni lokinni.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Grindavikurkirkja:
Föstudagur 2. maí: Spiladagur
eldri borgara kl. 14-17.
Mánudagur 5. maí: Opið fræðslu-
kvöld í kirkjunni kl. 20:30. .JJug-
leiðingar um sjálfsvíg með hlið-
sjón af áhættuþáttum í lífshátt-
um". Fyrirlesari Wilhelm Norð-
tjörð, sálfræðingur.
Þriðjudagur 6. maí: For-
eldramorgunn kl. 10-12.
Miðvikudagur 7. maí: „Útvarps-
messa" hljóðupptaka kl. 20:30.
Guðsþjónustu frá Grindavíkur-
kirkju verður útvarpað þann 11.
maí nk. Upptakan fer fram að
kvöldi 7. maí. Það skiptir miklu
máli að fjölmenni sé í kirkjunni
og almenn þátttaka í guðsþjónust-
unni. Söfnuðurinn er því hvattur
til að mæta vel og taka þátt í at-
höfninni. Kirkjan verður opnuð
kl. 19:30 og upptaka hefst kl.
20:30. Aðalsafnaðarfundur er
strax að lokinni útvarpsmessunni.
Sá fundur er öllu safnaðarfólki
opinn. Þar eru bæði hin ytri og
innri mál safhaðarins til umræðu,
starfsemi og rekstur kirkjunnar.
Sóknamefndin, sóknarprestur og
samstarfsfólk í safnaðarstarfi.
Lið 8. flokks kvenna hjá Keflavík varð Islandsmeistari í körfu-
bolta nýlega.Liðið sigraði í öllum viðureignum sínum í úrslita-
turneringu sem fram fór í Keflavík.
REYKJANESBÆR
Úti vistartími
barna og ungmenna
Félagsmálastofnun Reykjanesbæjar
vill vekja athygli á að frá 1. maí til
1. september er útivistartími barna
sem hér segir:
Börn á aldrinum 12 ára og yngri mega
ekki vera á almannafæri eftir kl. 22
nema í fylgd með fullorðnum. Börn,
sem eru á aldrinum 13 til 16 ára, skulu
að sama skapi ekki vera á almanna-
færi eftir kl. 24.
Foreldrar eru beðnir að sjá til þess að
börn þeirra virði útivistartímann.
Félagsmálastjóri.
UTBOÐ
Eftirtalin útboðsgögn verða til sölu
á skrifstofu Reykjanesbæjar,
Tjarnargötu 12, Keflavík, frá og með
föstudeginum 2. maí 1997.
„Melavegur, ný rnalargata."
Um er að ræða 370 m malargötu með
öllum lögnum.
Helstu magntölur eru:
Gröftur: 1870 m3.
Fylling: 3300 m3.
Sprengingar í skurði: 450 Im.
Verkinu skal lokið fyrir 20. ágúst 1997.
Verð útboðsgagna er
kr. 2.000.-
Tilboð verða opnuð að Tjarnargötu 12,
mánudaginn 12. maí kl. 11:00.
REYKJA NESBÆR
Auglýsing um breyt-
ingu á aðalskipulagi
Samkvæmt 17. og 18. gr. skipulags-
laga nr. 19/1964 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu af breytin-
gu aðalskipulags fyrir Reykjanesbæ
1995-2015. Breyting fellst í að reitur
fyrir orlofs- og sumarbústaði á Hafn-
arbergi er felldur burt og í stað hans
kemur stóriðjusvæði með haf-
naraðstöðu.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifsto-
funum Tjarnargötu 12, 2. hæð frá 30.
apríltil 11. júní 1997
á skrifstofutíma.
Athugasemdum við tillöguna skal
skila til bæjarstjóra, sama stað fyrir
26. júní 1997 og skulu þær vera skri-
flegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ,
Skipulagsstjóri ríkisins.
Húsnæðisnefnd
auglýsir eftir umsóknum í tvær
íbúðir fyrir aldraða.
Kirkjuvegur 11
2ja herbergja íbúð á 3. hæð,
stærð 67 fermetrar.
íbúðin er félagsleg kaupleiguíbúð
með 15% hlutdeildareign.
Adalgata 5
2ja herbergja íbúð á 1. hæð,
stærð 64,14 fermetrar.
íbúðin er almenn kaupleiguíbúð
með 30%o hlutdeildareign.
íbúðirnar eru til afhendingar í
maí 1997. Umsóknir skulu berast
Húsnæðisnefnd fyrir 10. maí 1997.
Eldri umsóknir óskast
staðfestar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á
skrifstofu Húsnæðisnefndar
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230
Keflavík, sími 421-6700.
Húsnæðisnefnd Reykjanesbæjar.
Víkuifréttir