Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.01.1998, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 29.01.1998, Blaðsíða 2
Leidari AUKIN FLUGÞJONUSTA Ljóst er að einn mesti vaxtarbroddur í atvinnulífi landsmanna er í flugþjónustu á Suðumesjum sem mun þýða aukna atvinnu á svæð- inu. Suðurflug hefur nú fengið starfsleyfi til afgreiðslu flugvéla á Keflavíkurflugvelli og lýkur þar með langri einokun Flugleiða. Vafalaust mun það eiga sinn þátt í að auka umferð minni flugvéla um Keflavíkurflugvöll og styrkja enn frekar þá skoðun að slíkt flug eigi að færa alfarið frá Reykjavtkurflugvelli. Stækkun Leifstöðvar er fyrirhuguð og mun hún þá geta þjónustað 23 flugvélum samtímis sem er þreföldun á núverandi þjónustu. Jafnframt hafa Flugleiðir bætt einni nýrri vél í flotann, Bryndísi, en henni fylgja 100 ný störf. Það virðist því bjart framundan í flugsamgöngum og Suðumesja- menn njóta góðs af. DÓNALEGIR VARNARLIÐSMENN Sveitarstjómir á Suðumesjum og þá sérstaklega bæjarstjóm Reykja- nesbæjar eru orðin langþreytt á seinagangi og virðingarleysi Vamar- liðssins í samningaviðræðum að undanfömu og hefúr jafnvel Drífa Sigfúsdóttir gengið svo langt að kalla framkomu þeirra hreinan dónaskap. Erfitt er að fá upplýsingar um það hverjir viðsemjendur þeiita séu og lengi hefur verið beðið eftir svörum varðandi hin ýmsu mál sem eru mikilvæg fyrir svæðið eins og nýja sorpbrennslulínu S.S., frárennslismál og afhendingu Nikkelsvæðisins. Grunur leikur á að Vamarliðið sé ósátt við hækkun gjaldskrár Hitaveitu Suðumesja og hyggist þeir þess vegna draga málin á langinn en þolinmæði bæj- aryfirvalda er nú á þrotum og verður dónaskapurinn ekki liðinn lengur. Dagný Gísladóttir LÖGREGLUBILL FOR UTAF OG VALT Á LEIÐ Á SLYSSTAÐ Tveir lögreglumenn slös- uðust þegar bíll þeirra fór útaf á Garðvegi sl. niánu- dag þegar þeir voru á leið á slysstað. Lögreglumennirnir voru á leið á slysstað við Berghóla- beygju á Garðvegi. Þegar þeir voru komnir að beygj- unni vildi ekki betur til en að þeir misstu stjóm á lögreglu- bílnum í hálku og fór hann útaf veginum og valt. Skömmu áður í aðeins um 200-300 metra fjarlægð hafði lítill fólksbfll af Mitsu- bishi gerð ekið á stóran fisk- flutningabíl. Fór fólksbif- reiðin yfir á öfugan vegar- helming og lenti utan í hlið flutningabílsins. Bílstjóri hans sagði að hann hefði verið kominn eins utarlega á sínum vegarhelmingi og hægt var og að litlu hefði mátt muna að hann ylti. Launhált var á Garðvegi og hálkan talin vera orsök slysanna beggja. Þótt ótrúlegt sé urðu meiðsli á ökumönnum ekki mikil. Annar lögreglumannanna viðbeinsbrotnaði en rifbein í hinunr brákaðist. Ökumaður tolksbflsins meiddist líttilega á hné og fékk vægt höfuð- högg. Flutningabíllinn skemmdist nokkuð en hinir tveir em ónýtir. Heiðarlivammur 8, Kcflavík 3ja herb. 78 ferm. íbúð á 3. hæð. Ibúð í góðu ástandi, skipti á stærri eign koma til greina. 5.500.000.- Hciðarbraut 13, Kcflavík 141 ferm. einbýli með 34 ferm. bflskúr. 3-4 svefnh. Fallegur garður. Skipti á minni eign og ódýrari. 13.000.000.- Mávabraut 7b, Keflavík 70 ferm. fbúð á 1. hæð nteð sérinngangi. 2 svefnherb. og öll ný tekin í gegn að innan. Hagstæð lán áhvílandi. 4.300.000.- Birkitcigur 11, Keflavík 120 ferm. einbýli á tveimur hæðum. Bílskúr40 ferni. Húsið er í góðu ástandi. Skipti á niinni fasteign kemur til greina. “ 9.000.000,- Hrckkustígur 8, Njarðvík 118 ferm. einbýli ásamt 32 femt. bílskúr. Nýir gluggar og nýleg skolplögn. Skipti á minni fasteign koma til geina og ódýrari. Tilboð. Fífumói lb. Njarðvík 2ja herb. stúdíóíbúð á annari hæð. Ibúðin er í góðu ástandi. Hagstæð lán áhvílandi. Ýmsir greiðslumöguleikar. 3.650.000,- Heiðartún 4, Garði 252 ferm. verslunar- og iðnaðarhúsnæði á neðri hæð á besta stað í Garðinum. Hægt er að selja í einu eða tvennu lagi. Eign sem gefur niikla möguleika. Upplýsingar um verð og greiðsluskilmála gefnar á skrifstofunni. Fitjabraut 4, Njarðvík 393 ferm. iðnaðarhúsnæði með skrifstofu og kaffistofu á millilofti sem er í hluta hússins. Mjög mikil lofthæð og tvær stórar iðnaðarhurðir á húsinu. Lóðin 2900 ferm. og afgirt. Húsnæðið gefur mikla möguleika. 12.000.000.- Faxabraut 36a, Keflavík 79 ferm. 3ja herb. íbúð á efri hæð. Búið að skipta unt allar lagnir og nýlegir gluggar. Mjög góðir greiðsluskilmálar. Útborgun aðeins 200 þús. Tilboð. Skoðid myndaglugga okkar, þar eru að finna sýnishorn affasteignum, sem eru á söluskrá hjá okkur. 'Sd Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli LAUSAR STÖÐUR Stöður aðaldeildarstjóra og deildarstjóra í tollgæslu embætt- isins eru lausar til umsóknar. Umsóknum er greini menntun og fyrri störf, skal skilað til skrifstofu minnar fyrir 28. febrúar n.k. Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli, 27. janúar 1998. Þorgeir Þorsteinsson. ATVINNA Starfskraft vantar í Blómabúðina Kósý, ekki yngri en 25 ára. Vinnutími: Önnur hver helgi og afleysingar. Upplýsingar í versluninni fimmtu- dag, föstudag og laugardag. BLÓMABÚÐIN K(P Hafnargötu 6 - Keflavík 2 V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.