Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.01.1998, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 29.01.1998, Blaðsíða 8
A ÞJOÐLEGUM NOTUM í STAPA GUNNAR SVEINSSON SKRIFAR Breytingar á yfirstjórn heilsugæslu og sjúkrahúss Gunnar Sveinsson skrífar 'toorrrtblót Kvenfélags Njarðvíkur í Stapa Eitt kunnasta þonablótið sem haldið er á Suðumesjum hvert ár er án efa þorrablót Kvenfélags Njarðvíkur. Það fór fram í stapa um síðustu helgi og eins og búast mátti við var hús- fyllir. Borðin voru hlaðin Ijúffengum þorramat og skemmti- dagskrá þótti takast vel. Hilmar Bragi, myndasmiður blaðsins, var á þorrablótinu og tók þá meðfylgjandi myndir. Veitingahúsið Veitingastaður fyrir þig W Leikfálag Keflavíkur. Námskeið afi hefjast Leikfélag Keflavíkur er nú að hefja starf- semi sína að nýju eftir að sýningum lauk á söng- og gleðileiknum „Leikhúslíf1, sem Hulda Olafsdóttir leikstýrði. Unglingadeild var stofnuð innan félagsins um miðjan janúar og er deildin þegar byrjuð að starfa undir leikstjóm Mörtu Eiríksdóttur leik- listarleiðbeinanda sem ráðin hefur verið til fé- lagsins til vors. Leikfélagið hefur einnig ráðið til starfa leik- stjórann Þorstein Bachmann og mun hann byrja með leiklistamámskeið fyrir 17 ára og eldri fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.00 í Fmmleikhúsinu að Vesturbraut 17. Námskeið- ið, sem stendur yfir í tvær vikur, er öllum opið sem áhuga hafa á að kynnast leiklist á einhvem hátt. í framhaldi af námskeiðinu verður ráðist í æf- ingar á leikriti sem fmmsýnt verður í vor. Ekki hefur verið ákveðið hvaða leikrit verður fyrir valinu en það mun m.a. ráðst af þeim mann- skap sem ætlar og vill vera með. Svo núna er tækifærið fyrir alla sem hafa lang- að til að kynnast leiklist á einhvem hátt, en ekki þorað, að láta vaða og skella sér á nám- skeið með hressu fólki í góðum félagsskap. kvæmdastjóri er skilgreindur þannig: Sá sem stjómar fram- kvæmdum fyrirtækis. Sam- kvæmt íslenskri málvenju er því allt tal um marga forstjóra í einni stofnun út í hött. Eftir framkvæmdastjóra koma síð- an deildarstjórar eða forstöðu- menn. Þegar ég var í Svíþjóð fyrir 50 árum var mikið um það að titla menn einu stigi hærra en þeir voru og var t.d. af- greiðslumaður gerður að deildarstjóra og deildarstjóri að framkvæmdastjóra. Al- mennt gerðu útlendingar grín að þessu og ég held það hafi lagst af. Því tel ég að við eig- um ekki að taka slíkt upp. Ekki minninst ég þess að starfsmenn fengu kauphækk- un upp á slíka stöðuhækkun. við eyðum 5 til 10 tímum á viku í grunnskólanum í að kenna börnunum okkar ís- lenskt mál og íslenska mál- notkun. Mér finnst að opin- berar stofnanir eigi að vera til fyrirmyndar í því starfi. Eg óska hinni nýju Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja heilla í nútíð og framtíð. Gunnar Sveinsson. Fimm manna stjórn: Tveir forstjórar, einn framkvæmdastjóri og tveir yfirlæknar þar af er annar forstjóri. Ég las í þar síðasta blaði fréttir um endurskipulagningu á yf- irstjóm heilsugæslu og sjúkra- j húsmála okkar Suðurnesja- j manna og var dálítið hugsi yfir hvemig til hafði tekist. Ég hef oft komið á þessar stofn- anir og hef ávallt fengið mjög góða þjónustu og einstaklega gott viðmót af öllu starfsfólki. Þama er mjög færir læknar og hjúkrunarfólk sem gott er að leita til. j Það sem vakti athygli mína við breytingamar hér á Suður- nesjum var að mér virtist eng- inn einn maður ábyrgur fyrir starfsemi þessara heilbrigði- stofnanna en ég hafði þá skoðun að það hefði staðið heilbrigðiskerfinu í heild mjög fyrir þrifum. Ég hringdi því í fram- kvæmdastjóra og einn stjóm- j armann og leitaði upplýsinga j sem vom fúslega veittar. Otti minn hafði verið ástæðulaus. J Breytingarnar höfðu einmitt j verið í þá átt sem ég hafði talið að þær ættu að vera og til ntikilla bóta, nema hvað starfsheiti em mjög villandi. Ráðherra skipar formann stjórnar, starfsmenn kjósa einn stjómarmann og sveitar- félögin koma sér síðan saman urn þrjá stjómarmenn. Fram- kvæmdastjóri er nú skipaður af heilbrigðismálaráðherra og hann ræður starfsmenn og ber því ábyrgð bæði gagnvart stjóm og ráðherra. Hann ber því raunverulega ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og er því yfirmaður hennar og ætti að bera starfsheitið forstjóri (en ekki framkvæmdastjóri) hvort sem hann heitir Jóhann eða Eyjólfur. Skipuð er fram- kvæmdastjórn þriggja yfir- manna er ættu að bera starfs- heitið lækningaframkvæmda- stjóri eða yfirmaður lækn- ingasviðs (en ekki lækninga- forstjóri, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri eða yfirmaður hjúkmnarsviðs (en ekki hjúkr- unarforstjóri) og síðan for- stjórinn. Framkvæmdastjómin ber síð- an ábyrgð gagnvart stjórn stofnunarinnar. Samkvæmt íslenskri orðabók er orðið forstjóri skilgreint þannig: Stjómandi, yfirmaður fyrirtækis, stofnunnar. Fram- 8 V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.