Víkurfréttir - 29.01.1998, Síða 9
VATNSLEYSUSTRANDARHREPPUR:
Meirihluti vill kjósa
um sameiningu við
Reykjanesbæ
Á borgarafundi sem haldinn
verður í Vogum á Vatnsleysu-
[ strönd í kvöld verður hrepp-
snefndinni afhentur undir-
skriftalisti þar sem óskað er
eftir þvf að fram fari skoða-
nakönnun meðal fbúa um
sameinnigu hreppsins við
Reykjanesbæ.
Á listanum hafa vel á þriðja
hundrað íbúa skrifað nöfn sín
eða um 55% þeirra sem eru á
kjörskrá.
Á fundinum verða fleiri mál
til umfjöllunar, s.s. fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1998.
Að sögn Guðmundar Sig-
urðssonar, atvinnurekanda í
Vogum var gengið í hús í
hreppnum og fólki boðið að
setja nöfn sín á listann. Taldi
hann að mikill vilji væri fyrir
sameiningu og jafnvel meiri
en tölumar gefa til kynna því
margir hefðu lýst yfir já-
kvæðu viðhorfi til sam-
einingar þó svo þeir hafí ekki
látið nafn sitt á listann.
Nýtt bæjarmáa'
félag í Vogum
Nýtt bæjarmálafélag var
stofnað í Vogum þann 17.
janúar sl. og nefnir sig H-
lista, lista óháðra borgara í
Vatnsleysustrandarhreppi.
Stjórn félagsins skipa Guð-
laugur Atlason foimaður, Sig-
urður Kristinsson varaformað-
ur, Þóra Bragadóttir gjaldkeri,
Lára Baldursdóttir ritari og
Andrés Guðmundsson ritari.
Kjömefnd skipa Jóhann Sæv-
ar Símonarson, Sólveig Birg-
isdóttir og Ólafur E. Ólafsson.
Stofnfélagar em 39 talsins og
er þeim sem ætla að gefa kost
á sér til setu á H-listanum í
komandi sveitastjórnarkosn-
ingum bent á að kjörnefnd
hefur staðlað form á fram-
boðstilkynningum og er hægt
að nálgast þær hjá kjömefnd-
armönnum. Tilkynningum til
framboðs skal skilað fyrir
laugardaginn 31. janúar kl.
13.00.
Kór eldri borgara
á leið til Ítalíu
Margþætt starf er framundan
hjá Eldey kór félags eldri
borgara á Suðurnesjum en
stjórnandi kórsins er eins og
mörg undanfarin ár Ágota
Joó.
Kórinn æfir einu sinni í viku
þ.e. á þriðjudögum kl. 14.30 -
16.30 í Ytri- Njarðvíkurkirkju.
Ákveðið hefur verið að halda
tónleika laugardaginn 14.
mars n.k. og em æfingar fyrir
þá að hefjast af fullum krafti.
Alltaf er þörf fyrir fleiri söng-
krafta og er eldra fólk því
hvatt til að mæta á æfingar og
njóta ánægjunnar með þeim
sem fyrir em í kómum.
Þann 24. maí verður haldið
kóramót í Mosfellsbæ. Þar
hittast fimm kórar eldri borg-
ara til að syngja saman og
blanda geði. Þetta er orðinn
árviss viðburður og hefur gef-
ist vel.
Fyrirhuguð er ferð til Italíu 2.
til 12. júní ásamt kór eldri
borgara á Selfossi. Kórinn
hefur vilyrði fyrir ca. 60 sæt-
um þannig að aðrir en kórfé-
lagar geta farið með ef ntenn
hafa áhuga. Nánari upplýsing-
ar verða kynntar síðar þegar
endanlega hefur verið gengið
frá samningi við ferðaskrif-
stofu.
Þetta er nýlunda í starfsemi
kórsins og hefur hann aldrei
tekið þátt í slíkri ferð áður.
Ferðin verður auglýst sfðar en
upplýsingar fást hjá kórfor-
manni í síma 421-2180.
Peysur kr. 1.990.-
Sparibuxur kr. 2.500.-
Stakir jakkar kr. 5.900.-
Skyrtur kr. 1.900.-
/
Ulpur og jakkar
Nú kr. 7.900.-
Áður kr. 14.900.-
1-ta.fna.rgötu 25 * símí 421 7111
og er leiðbeinandi í Lífsstíl. Þar
býð ég upp á fjölbreytta opna tíma í fitubrennslu,
á tröppum, Hkamsrækt og jafnvel afró-tíma ef
áhugi reynist fyrir því. / hádeginu á laugardögum
verð ég svo með /étta hjólabrennslutíma. Tilvalið
fyrir byrjendur sem lengra komna.
Upplýsingar
og skráning í tíma
ísíma 420 7001
Lúsin lætur á sér kræla
Lúsin hefur látið á sér kræla að undanfömu
og hafa foreldrar barna á leikskólanum
Garðaseli í Keflavík verið sendir heim með
leiðbeiningar um meðferð.
Samkvæmt heimildum Víkurfrétta virðist
lúsin vera nokkuð öflug um þessar mundir og
óvenjumikið af henni.
nmuE
Víkuifréttir
Q