Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.02.1998, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 12.02.1998, Qupperneq 4
B 1 0 FRÉTTIR Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319 Aígreidsla, ritstjórn og augiýsingar: Grundarvegi23 Njarðvik sími 4214717 fax 4212111 fíitstjóri og ábm.: Páll Ketilsson heimas.: 4213707, GSM: 893 3717 Fréttastjóri: Hilmar Bárðarson GSM: 898 2222 Blaðamaður: Dagný Gísladóttir heimas.:421 1404 Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir Útlit, litgreining og umbrot: 1/íkurfréttir ehf. Filmuvinna og prentun: Stapaprenthf. sími: 4214388 Netfang: hbb@ok.is Stafræn útgáfa: www.ok.is/vikurfr MUNDI Þá er ekkert annad fyrir maddömuna en ad drifa sig...! BILAKRINGLAN GFtÓFIN 8 - SÍMI 421 1200 KEFLVISKU ALPARNIR Það var heldur betur fjör í keflvísku ölpunum um síðustu helgi. Alparnir eru brekkan í skrúðgarðinum þar sem snjó- þotufólkið safnast saman til að renna sér niður. Unga fólkið spvr bæjaryfirvöld: Hvenær verður útbúin almennileg sleðabrekka í Reykjanesbæ. Svar óskast sent til Víkurfrétta... Suzuki Baleno Station Suzuki árgerð 1998 í sýningarsal ISkúli Skúlason vill fá tækifæri til að leiða framsóknarmenn í Reykjanesbæ í komandi bæjarstjómarkosningum: Drífa taki sér frí frá bæjarmálu VIÐTAL OG MYND: HILMAR BRAGIBÁRDARSON Umræðan um fram- sóknarflokkinn í Reykjanesbæ hefur verið lífleg síðustu vikurnar og heyrast raddir úr röðum fram- sóknarmanna að tími sé koniinn að hlevpa nýju fólki að forystu flokksins. Skúli Skúlason hefur tekið af skarið og segist tilbúinn að leiða fram- sóknarmenn í næstu bæjarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ. Víkurfréttir hittu Skúla að máti og ræddu við hann um fyrirætlanir hans. Skúli segir í samtali við blaðiö að liann sé dæmigerður framsóknar- maður. „Eg er félags- hyggjumaður að eðlisfari, miðjumaður sem er opinn í báða enda og er stoltur af því ,en ég er líka mjög markaðslega meðvitaður. Eg hef alltaf haft mikinn áhuga á félagsmálum og notið þess að kynnast og vinna með metnaðarfullu fólki .“ - Þú vilt Drífu burt úr bæjarpólitík? „Nei, það voru ekki mín orð. Drífa Sigfúsdóttir hefur unnið fyrir bæjar- félagið á annan áratug og sem bæjarfulltrúi síðustu 12 árin. Hún hefur verið áberandi bæjarfulltrúi og hvatning fyrir aðrar konur . Það er samt mitt mat að nú sé rétti tíminn fyrir hana að taka sér frí frá bæjarstjórn. Hennar hæfileikar geta án efa nýst víða í þjóð- félaginu". -Hvað kemur til að þú tekur nú af skarið að bjóða þig frain til for- ystu fvrir flokkinn í Reykjanesbæ? „Það er svo sem ekkert leyndarmál að fjöldi flokksmanna hefur skor- að á mig að gefa kost á mér fyrir flokkinn. Eg hef hins vegar dregið þessa ákvörðun í þeirri von að það þyrfti ekki að koma til einhvers konar uppgjörs. Framsóknarmenn bera virðingu fyrir leiðtogum sínum og vilja komast hjá uppgjöri ef þess er nokkur kostur. Það er hins vegar mjög slæmt ef það er ekki einhugur meðal samstarfsmanna og flokkurinn getur ekki verið trúverðugur val- kostur í vor ef við fram- sóknarmenn vinnum ekki saman sem einn maður“. -Ertu búinn að gera þér hugmynd um hvernig framboðslisti ykkar verður fvrir næstu bæjarstjórnarkosn- ingar? „Það er nú ekki mitt að ákveða það, nema það að ég hef atkvæðisrétt sjálf- ur. Það er þó mjög mikil- vægt eins og alltaf að stilla upp samhentum hópi fólks sem mun síðan geta unnið þétt saman, skipulega og af framsýni og þannig unnið bæjar- félagi okkar gagn. Sjálfur myndi ég vilja sjá ungt kraftmikið fólk sem víðast í forystu flokksins. Nái ég þeim áfanga að leiða flokkinn í næstu kosningum mun ég leggja áherslu á það. Eg hvet bæjarbúa til að hafa auga með framsókn. Við eigum eftir að koma á óvart“. - Hvað með málefnin? „Málefnavinna fer nátt- úrulega af stað fljótlega. Sjálfur er ég kennari að mennt og því skólamálin ofarlega í huga. Iþrótta- og æskulýðsmál sömu- leiðis. Rekstraröryggi og þjónustuhlutverk heilsugæslunnar og sjúkrahússins eru mikið hagsmunamál okkar allra. Eg vil skoða nýja möguleika til hagræðis í rekstri bæjarsjóðs, en atvinnumálin verða þó alltaf númer eitt enda eru þau undirstaða velsældar í hverju samfélagi." Skúli Skúlason hefur tekið af skarið og segist tilbúinn að leiða framsóknarmenn í næstu bæjarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ. 4 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.