Víkurfréttir - 08.10.1998, Blaðsíða 14
Suðumesjamenn!
Á haustdögum er hægt
að gera góð kaup!
Kiwanismenn í Keflavík voru á fullu að undirbúa sölu á K-lyklinum í húsakynnum
klúbbsins við Iðavelli í síðustu viku. Þeir vonast eftir góðum viðbrögðum bæjarbúa.
Vetrarstarf Guðspekifelagsins að hefjast
Vetrarstarf Guðspekifélags
Suðumesja hefst fimm-
tudaginn 8. október kl. 20.
Halldór Haraldsson ræðir
unt heimsftekileg viðhorf
Krishnamurtis. Krishnamurti
lést árið 1986 en hann var
þekktur um allan heim sent
mikill andlegur fræðari.
Hann vildi enga áhangan-
gendur, en helgaði lífsitt
andlegri fræðslu.
Aðalinntakið í fræðslu hans
var að gera áheyrendum ljóst
mikilvægi þess að skoða
sjálfan sig, hugsanir, til-
finningar og hvatir og leysa
þannig upp það sent stendur
í veginum fyrir andlegleika
og kærleika hið innra. Hann
segir m.a. að við leysum
vandantál okkar ekki nteð
því að reyna að leysa þau,
heldur segir hann að einmitt
Itegar við gerum ekkert
annað en að skoða þau með
huga sem er ekki truflaður af
hugsunum unt lausn eða
flótta, þá leysast þau upp af
sjálfu sér. Fræðsla hans
beindist mikið að því að
skoða liinn reikula huga sem
liann sagði vera stærstu hin-
dmnina á hinni andlegu veg-
ferð og gerði manninum
erfiðara fyrir en nokkuð
annað í lífinu.
Fræðslufundurinn verðr
haldinn í sal Iðnsveinafélags
Suðumesja við Tjamargötu
og er öllunt opinn.
1
Garðbúar
Vinsamlegast athugid ad ganga
þarf frá ógreiddum fasteigna-
gjöldum ársins 1998 fyrir
30. október n.k.
Eftir þann tíma verða ógreidd
fasteignagjöid send til frekari
innheimtu. Ogreidd fasteignagjöld
vegna ársins 1997 verða send í
lögfræðilega innheimtu hafi þau
ekki verið greidd fyrir
20. október n.k.
Sveitarstjóri.
K- dagur
10. október
Kiwanis - hreyfingin á tslandi
stendur fyrir sölu á K- lyk-
linum um allt land dagana 8,-
10. október n.k. Þetta er í
níunda sinn sem Kiwanis
selur K-lykilinn en K-
dagurinn hefur verið haldinn
þriðja hvert ár allar götur
síðan 1974.
Á núvirði hafa safnast um 150
milljónir króna á síðustu átta
K-dögum. Sú fjárhæð hefur
öll runnið til hjálpar
geðsjúkum. Helstu verkefni
sem styrkt hafa verið em:
Bygging og síðar stækkun
Bergiðjunnar-vemdaðs vinnu-
staðar við Kleppsspítala.
Byggður áfangabústaður við
Álfaland í Reykjavík
Uppbygging unglingageð-
deildar við Dalbraut í
Reykjavík.
Fest kaup á sambýlum í
Reykjavík og á Akureyri fyrir
einstaklinga sem dvalið hafa á
geðdeildum eða endurhæfing-
arheimilum.
Keypt ibúð fyrir aðstandend-
ur geðsjúkra bama og ungl-
inga sem em til meðferðar á
Unglingadeildinni við
Dalbraut
Styrkir til Bjargs á Akureyri
og Geðdeildarinnar á Sogni í
Ölfusi.
Að þessu sinni hefur
Kiwanishreyftngin ákveðið að
félagasamtökin Geðhjálp njóti
góðs af K-lyklasölunni, en
samtökin hafa allt frá stofnun
1979 verið á hrakhólum og
orðið að leigja húsnæði undir
starfsemi sína.
Nú í haust varð breyting á, er
heilbrigðisyfirvöld gáfu
samtökunum húseignina að
Túngötu 7 í Reykjavík til
eignar. Áður en samtökin geta
hafið starfsemi í húsinu þarf
hinsvegar að gera miklar
endurbætur innanhúss.
Þær framkvæmdir eru kostn-
aðarsamar og því var óskað
eftir því að Kiwanis kæmi
samtökunum til hjálpar og
verður ágóði K-lyklasölunnar
í þetta skipti til að treysta
framtíð Geðhjálpar.
Kiwanisklúbbamir Keilir í
Keflavík, Hof í Garði og Brú
á Keflavíkurflugvelli munu
sjá um sölu á K-lyklinum á
Suðumesjum. Gengið verður í
hús n.k. fímmtudags og föstu-
dagskvöld og biðjum við
Suðumesjabúa um að taka vel
á móti Kiwanismönnum og
styrkja gott málefni með
kaupum á K-lyklinum. Verð
lykilsins er 500 krónur.
Gleymum ekki geðsjúkum -
K-lykillinn, lykill að framtíð
Geðhjálpar
Ragnar Örn Pétursson
fjölmiðlafulltriii keilis.
14
Víkurfréttir