Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.10.1998, Blaðsíða 27

Víkurfréttir - 08.10.1998, Blaðsíða 27
Skólastefnu Reykjanesbæjar fylgt úr hlaði: 1 1 0 rfl : ti 1 fnamtíðap Skólastefna Reykjanesbæjar hefur nú litið Ijós. Hún var kynnt formlega fyrir fjöl- miðlafólki nú á dögunum og vakti þegar töluverða athygli. Vinnan við Skólastefnuna stóð yfir á annað ár og komu margir að verkinu með einum eða öðrum hætti. Fræðsluráð leiddi verkið og var fjallað reglulega um málið í skóla- nefnd þar sem skólastjórar. kennarar og foreldrar eiga áheyrnarfulltrúa með mál- frelsi og tillögurétt. Afanga- niðurstöður voru kynntar á stórum og smáum fundum m.a. á borgarafundi í Stapa og athugasemdir bárust frá skól- um og einstaklingum áður en málið fór til bæjarstjórnar í maí síðastliðnum. Ahrifa af mótun skólastefnu tók fljót- lega að gæta í bænum, því í stefnuyfirlýsingum stjórn- málaflokkana við síðustu bæj- arstjómarkosningar mátti víða sjá umfjöllun eða jafnvel beinar tilvitnanir í fyrirliggj- andi Drög að Skólastefnu Reykjanesbæjar. Skólastefnan var að lokum tekin til umfjöllunar á þremur fundum bæjarstjómar og stað- fest nú 15. september sl. með 11 atkvæðum gegn engu. En hvað er skólastefna? Segja má að hún sé annars vegar tilraun til að svara ýms- um áleitnum spurningum skólamál og uppeldisaðstæður barna. Spurningum eins og: Hvernig skólastarf viljum við? Hvaða aðstæður viljum við búa börnum okkar? Hvernig verður skólinn á nýrri öld? Hvaða uppeldis- stefnu viljum við fylgja í Reykjanesbæ? Og hins vegar varðar hún leiðina að settum markmiðum og tekur þá til þátta eins og símenntunar kennara, skólaþróunar og mats á skólastarfi, uppbygg- ingu skóla o.s.frv. Upphafsorð skólastefnu er sjálf stefnuyfirlýsingin sem hljóðar svo: Stefna Reykjanesbæjar í skóla- og uppeldismálum er að tiyggja öllum bömum að- gang að góðri og tjölbreyttri menntun í ömggu starfsum- hverfi. Starfshættir skóla mótist af umburðarlyndi, kristilegu siðgæði, umhyggju og virðingu fyrir einstaklingn- um. Bóknámi og verknámi sé gert álíka hátt undir höfði í grunnskólum og stuðlað skal að góðu tómstunda- og list- uppeldi þannig að hvert barn eigi kost á menntun við sitt hæfi. Yfirlýsingin gefur fógur fyr- irheit og er verðug metnaðar- fullu bæjarfélagi en skóla- stefna snýst ekki aðeins um fögur fyrirheit og háleit mark- mið. Hún er einnig samantekt á öllum stefnumarkandi ákvörðunum sem teknar hafa verið um skólamál hér í bæj- arfélaginu. Þannig má segja að bygging Heiðarskóla og þær forsendur sent lagðar voru við undirbúning og hönnun hans séu á vissan hátt stefnumarkandi fyrir alla skól- ana. Skólastefnan byggir einnig á þeim lögum sem Al- þingi hefur sett okkur um listarskóla sem og reglugerð- um sem menntamálaráðuneyt- ið setur auk aðalnámskrár grunnskóla og tónlistarskóla. Einnig hefur verið tekið tölu- vert tillit til Skólastefnu Kenn- arasambands Islands. Staðan nó I Reykjanesbæ eru nú þrír grunnskólar. Holtaskóli með 430 nemendur í 7.-10. bekk, Njarðvíkurskóli með um 510 nemendur í 1.-10. bekk, og Myllubakkaskóli með 730 nemendur í 1. -6. bekk. Tveir hinir síðar töldu búa við gn'ð- arleg þrengsli og erfiða tvf- setningu sem verður að ráða bót á sem fyrst. Skólastefnan gerir ráð fyrir að allir skólar bæjarins að verði tveggja hliðstæðna, ein- setnir skólar en skv. grunn- skólalögum skulu allir gmnn- skólar verða einsetnir árið 2003. Heiðarskóli tekur til starfa haustið 1999. Hönnun hans og skipulagning miðast við það að þar verði tveggja hlið- stæðna skóli með 1 .-10. bekk grunnskóla. Þetta þýðir að þar verða að jafnaði tveir bekkir í hverjum árgangi eða um 20 bekkir. Á svæði sem af- markast að Hringbraut og Að- algötu, sem í daglegu tali er kallað Heiðarhverfi er áætlað að verði um 450 börn á grunnskólaaldri á næsta skóla- ári. Þessi böm eru nú í Myllu- bakkaskóla og Holtaskóla þannig að þar mun fækka að sama skapi. Heiðarskóli mun því létta á tvísetningu í Myllu- bakkaskóla og jafnvel Njarð- víkurskóla. Nú stendur yfir úttekt á hús- næðismálum grunnskóla (eldri grunnskólum bæjarins) sem Verkfræðistofa Stefáns Olafssonar (VSÓ) sér um og mun ljúka nú í október. Úttektin tekur tillit til framtíð- amýtingar húsnæðis og þeirra breytinga sem þarf að gera á þeim í samræmi við Skóla- stefnu Reykjanesbæjar. Það má öllum ljóst vera að gera þarf verulegar úrbætur á húsnæði skólanna svo þeir geti orðið heilstæðir og ein- setnir fyrir 2003. Má nefna að í Myllubakkaskóla er hvorki fullnægjandi kennsluaðstaða fyrir raungreinar og heimilis- fræði, né aðstaða fyrir nem- endamötuneyti. í Njarðvíkur- skóla vantar sárlega almennar kennslustofur og skólalóð er alls ekki fullnægjandi, en þar J er hins vegar góð aðstaða til allrar sérgreinakennslu. Holta- skóli er almennt vel búinn tækjum og búnaði en þar vantar skólalóð fyrir yngri börn og húsgögn fyrir minnstu bömin. Ákvörðun um það hvernig | við nálgumst það markmið að gera alla skóla tveggja hlið- stæðna og einsetna og sömu- j leiðis ákvörðun um skóla- svæði kemur til með að byggja á niðurstöðum þessar- ar úttektar (VSÓ). Niðurstöð- umar verða kynntar skóla og fræðsluráði og bæjarstjórn j sem tekur ákvörðun um fram- haldið. Þessi vinna á að leiða til betri aðbúnaðar og væntan- lega betri skóla fyrir öll böm þegar upp er staðið. Lokaorð Framundan eru miklar breyt- ingar í skólamálum bæjarins. Nýr skóli er að rísa og honum fylgja eðlilega breytingar á j skólasvæðum annarra skóla. Einnig er unnið að áætlun um breytingar og umbætur á skólahúsnæði og skólalóðum eldri skólanna. Niðurstöður verða kynntar öllum hlutað- eigandi eins fljótt og auðið er. Þessi vinna hefði vissulega mátt vera mun fyrr á ferðinni. j En þá vantaði svör við spum- ingunni: Hvemig skóla viljum við? I Skólastefnu Reykjanes- bæjar er horft til framtíðar og j þeirri spurningu er svarað. Skólastefnan markar því leið- ina að betri skólum og betra samfélagi í Reykjanesbæ. í stuttri blaðagrein er ekki unnt að fjalla um alla þætti þessa mikilvæga máls. Vonandi | gefst tóm til þess síðar. Ég læt ftetta duga að sinni. Eiríkur Hermannsson skólamálstjóri Reykjanesbœjar letkskola, grunnskola og tón- Víkurfréttir 27

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.