Víkurfréttir - 21.01.1999, Side 6
Ertu leitand?
Hver er tilgangur lífs þíns? Er ALFA
námskeið eitthvað fyrir þig?
Skráning og upplýsingar um
næsta ALFA námskeið sem hefst
27. janúar '99 er hafin.
Sími: 421 3985, 421 4345
og 421 4337.
Kefla víkurkirkja.
Fasteignaþjónusta
Suðurnesja hf. og skipasala
Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - sími 4213722 - fax 4213900
Heiftarliolt 14, Keflavík.
Góð 2ja herbergja, rúmlega
50nv íbúð á 1. íueð.
4.000.000,-
Fífumói la, Njarðvík.
2ja herbergja íbúð á 1. hæð.
Parket á gólfum, kapalkerfi.
4.200.000.-
Melbraut 23, Garði.
138m- einbýlishús ásamt
42m’ bflskúr. 4 svefnherbergi
9.000.000.-
Suðurgata 42, Keflavík.
3ja herbcrgja íbúð á neðri
hæð í tvíbýli. Sér inngangur.
4.500.000,-
Ránarvellir 9, Keflavík.
93m; raðhús ásamt 25m:
bílskúr. 3 svefnherbergi.
Hagstætt áhvfl. 9.700.000,-
Tjarnargata 9, Sandgerði.
Góð 120nv, 4ra herbergja
íbúð á efri hæð í tvíbýli.
Töluvert endumýjuð.
6.100.000,-
Eyjaholt 17, Garði.
5 herbergja 135m: einbýlishús
ásamt 53nv bílskúr. Hagstætt
áhvflandi. Laus fljótlega.
9.600.000,-
Kirkjubraut 20, Njarðvík.
Um 90m! 3ja herbergja efri
hæð í tvíbýli. Góð kjör.
3.900.000,-
Hultsgata 17, N jarðvík.
5 herbergja einbýlishús
ásamt bflskúr. Hagstætt
áhvílandi. Skipti möguleg.
11.000.000.-
Heiðarból 8, Keflavík.
Mjög góð 2ja berbergja íbúð á
2. hæð. Flísar og parket á
gólfum Skipti á stærri.
4.200.000,-
AÐ FARA
...eðafara ekki!
Heil og sæl öllsömul! Það er óneitanlega
langt liðið frá síðasta pistli og engu um
að kenna, nema leti pistlaskrifara. Nú er
hugmyndin að bæta um betur og hrista
fram nokkra pistla á árinu. Já, meðan ég man
gleðilegt ár og þakka ykkur allt gamalt og gott!
Einhver hefur eflaust ráðið það af fyrirsögn og
tímasetningu pistilsins, að hann tjalli um
prófkjör.
Eflaust muna einhver ykkar, að ykkar elskan-
legur brá sér í prófkjörsslag fyrir fjómm ámm
og náði fjórða sæti á lista Alþýðuflokksins á
eftir þrem þáverandi þingmönnum.I kosn-
ingunum var síðan lagt kapp á að halda þess-
um þremur inni, en það tókst því miður ekki.
Eg (og mitt fólk eins og alvöru pólitíkusar
segja) ákvað, að í næstu kosningum
yrði stefnt á þriðja sætið,
baráttusæti og auðvitað
að vinna þingsætið.
Varla hefur farið fram
hjá neinum að Alþýðu-
flokkurinn býður í ár fram
með vinuni og vandamönnum undir
heiti Samfylkingar. Eg sem mikill áhugamaður
um pólitík fylgdist vandlega með byrjun
þreyfinga og af mikilli athygli. Sú athygli
breyttist fljótlega í undmn sem jókst daglega
eftir því sem fjölgaði inn- og útgöngum
kvennalistakvenna í flestum landshornum.
Undmnin vék síðan smá saman fyrir leiða, þar
til ég hrökk upp með andfælum við það að
skila átti inn prófkjörstilkynningum eftir viku.
Hlutimir voru sem sé aldeilis komnir á fullt.
Fresturinn rennur út á morgun ( 15. jan) og að
sjálfsögðu fá Suðumesjamenn mfnar skýringar
á ákvörðun minni.
Venjan er að segja að margir hafi hvatt mann
til að fara fram, en það væri bara haugalygi.
Þeir sem hafa talað við mig liafa undan-
tekningarlaust held ég ráðlagt mér að láta slíkt
eiga sig. Hvort það er með mína velferð eða
samfylkingarinnar í huga verður hver að gera
upp við sig.
Ljóst er að fyrirkomulag prófkjörs þýðir, að
þingmenn Jafnaðarmanna fá tvö af fjórum
efstu sætum og síðan það fimmta. Óbreyttir
jaffiaðarmenn eins og ég og fleiri eigum von á
6. Sæti og síðan næst því níunda. Fyrir fjómm
árum ákváðum við að auglýsa ekki í
fjölmiðlum fyrir prófkjör, svokallað heiðurs-
mannasamkomulag, sem flestir héldu fullkom-
lega. Nú er ekkert heiðursmannasamkomulag
gert heldur ákvörðun að ofan um að allir skulu
jafnir, og skulu fá jafnmikla kynningu í
flokkslegri blaðaútgáfu næstu 3 vikur, bæði
þingmenn sem allir þekkja með nafni og í sjón
og sfðan lítt frægir menn eins og ég.
Finnst nokkmm þetta ójafn
leikur? Ekki er heldur
loku fyrir það skotið
að þingmönnum takist
að láta sér bregða fyrir í
sjónvarpi alveg óvart næstu
daga og vikur.
Reyndar er það nú svo, að ég hef oft í leik og
starfi verið tilbúinn til að leggja mig allan fram
þó ójafn væri leikurinn, en sannleikurinn er sá,
að ég finn mig því miður skorta sam-
fylkingareldmóðinn, sem þarf til að vera f
framlínu fyrir þessi samtök á Reykjanesi. því
eftirlæt ég öðmm það að berjast um þau sæti
sem minn flokkur fékk í kvóta þar. Ég verð að
sjálfsögðu áfram gamaldags jafiiaðarmaður og
óbreyttur liðsmaður í þeim slag sem framund-
an er. Það er meira að segja aldrei að vita nema
ég sendi frá mér létta grín- og ádeilupistla á
næstunni. Af nógu er jú að taka!
Mottó dagsins ? “Fjörið í kjörið “
Með hafnfirskri kveðju
Hrafnkell
HRAFNKELL
ÓSKARSSON SKRIFAR
FRÉTTAVAKT í SÍMA 898 2222
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju óskar eftir
tilboðum í verkid
„Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju- ÚTBOD 4".
Verkið fellst í innanhússfrágangi safnaðarheimilisins.
Veggir og loft skulu fullfrágengin, öll gólfefni
(nema flísalagnir og steingólf), innréttingar og önnur
smíði. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en
1. júlí 2000. Boðið verður upp á vettvangsskoðun
þann 25. janúar 1999 kl. 14.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Suðurnesja
ehf, Hafnargötu 58, Keflavík, gegn 10.000. kr skila-
tryggingu. Tilboð verða opnuð í Kirkjulundi, við
Kirkjuveg, miðvikudaginn 10. febrúar 1999 kl. 11.
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju
6
Víkurfréttir