Víkurfréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 8
SAMSPIL NATTURU OG NUTIMAHONNUNAR I ILLAHRAUNI:
SUDRAN
PARADÍS
í ÚFNU APALHRAUNI
Bláa lónið er að flytja starfsemi sína á nýjan baðstað. 7-
800 metrum vestan við núverandi baðstað er að rísa
2.700 fermetra bygging og 5.000 fermetra baðlón. Nýji
baðstaðurinn kostar 470 milljónir króna og það er
verktakafyrirtækið Verkafl, dótturfyrirtæki íslenskra
aðalverktaka, sem annast framkvæmdir. Hilmar Bragi
Bárðarson blaðamaður kynnti sér framkvæmdirnar undir
leiðsögn Magneu Guðmundsdóttir markaðsstjóra Bláa
Lónsins hf.
Nútímaleg hönnun
„Það er búinn að vera spenn-
andi tími að fylgjast með upp-
byggingunni á svæðinu og
það verður sannkölluð bylting
í allri aðstöðu þegar við
opnum nýja baðstaðinn í vor“,
sagði Magnea Guðmunds-
dóttir markaðsstjóri Bláa
X Framköllum myndir afgömlu góðu 35 mm.
filmunni og af nýju APSfilmunni.
Verðdæmi
(35 mm.filma framkölluð samdægurs)
X Myndastærðir frá 10x15 til 30x45 sm.
X Möguleiki á hvítum kanti á mynd.
X Stækkumuppúrmyndum.
X Yfirlitsmynd fýlgir öllum APS filmum.
X Yfirlitsmyndireftir35 mm.filmum efóskað er.
Láttufagmanninn
utn filmurnar þínar1.
24 myndir
kr. 1.366
og ný filma
fylgir með!
HAFNARGÖTU 52 KEFLAVÍK SÍMI 421 4290
Lónsins hf. í samtali við
Víkurfréttir. Nú standa yftr
framkvæmdir við byggingu
baðstaðar þar sem fara saman
samspil náttúru og nútíma-
legrar hönnunar.
Vetrargarður
og frábært úrsýni
Nýja bað- og búningsaðstaðan
mun rúnra 700 gesti. Að-
koman að svæðinu er sérstök.
Frá bílastæðum er gengið í
gegnum 200 metra langa
hrauntröð með 4-5 metra
háum veggjum. Þá er komið
inn í vítt og bjart fordyri. Þar
er ferðamannaverslun ásamt
fullkominni búnings- og bað-
aðstöðu á tveimur hæðurn.
Þar eru allir fataskápar læstir
og hægt að ganga beint út í
baðlónið. í húsinu er einnig
Vetrargarður þar sem verður
veitingastaður. Þaðan er út-
sýni í gegnum glervegg yfír
5.000 femietra baðsvæði.
Svört strönd og
jardhitagufubad
Á nýja baðstaðnum geta gestir
synt inn í hraunhella og farið
þar í jarðhitagufubað, legið í
sólbaði á fallegri strönd með
svörtum sandi eða bara skellt
sér í sérstaka kísilpotta. Nýji
baðstaðurinn er í raun suðræn
paradís í miðju úfnu hrauni og
vel varin hraunveggjum á
allar hliðar.
Baðstaðurinn er á mjög skjól-
sælum stað. Úftð apalhraun er
nefnis Illahraun er náttúru-
legur vindbrjótur og veitir
skjól frá næstum öllum vin-
dáttum, segir Magnea. Utsýni
baðgesta er líka annað en á
núverandi stað. I dag hafa
baðgestir orkuver hitaveit-
unnar fyrir augunum, en á
nýja staðnum nun úftð hraun-
ið og sjálfur Þorbjöm í allri
sinni dýrð blasa við bað-
gestum.
Þægilegur hiti allt árið
Baðgestir Bláa lónsins kann-
ast við það að botn lónsins er
misjafn og hefur verið skeinu-
hættur. Botn nýja lónsins
verður hins vegar sléttaður og
hallandi og dýpi hverrgi nreira
en 1,4 metrar í miðju lóninu.
Með tfmanum mun síðan
kísillinn setjast á botninn og
gera hann mýkri yfirferðar.
Hitastig lónsins verður 37-
39°C. Með nýrri tækni verður
hægt að halda lóninu í þessu
hitastigi en jarðsjó verður dælt
að lóninu og blandað lóns-
vatninu í sérstökum blönd-
unarbrunnum sem hafa verið
sérhannaðir til verksins. Þessu
hitastigi verður hægt að halda
allt árið en á núverandi bað-
stað er hitastigið mjög breyti-
legt.
En hvencer verður nýji hað-
staðurinn tekinn í nótkun?
„Framkvæmdum á að Ijúka í
vor. Lagnavinna er nú haftn
og áætlanir hafa staðist þannig
að við nrunum opna unr
mánaðarmótin apríl/maf*
sagði Magnea Guðmunds-
dóttir að endingu.
TEXTI OG MYNDIR:
HILMAR BRAGI
BÁRÐARSON
Skattframtolsgerð fyrir einstakliriga og fyrirtæki.
Tímapantanir frá 31. janúar n.k. Orugg og góð þjónusta.
Sæki um frest.
FRAMTALSÞJÓNUSTAN Katrín H. Árnadóttir, vMiptalræíingur, Halnargötu 90 - sími 4212125
8
Víkurfréttir