Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 21.01.1999, Síða 11

Víkurfréttir - 21.01.1999, Síða 11
 FYRIR EINAST ntudag lífs þannig að sveitarfélagið nái að auka tekjur sínar, sé tak- mörkum háð. Ef til vill liggja tækifærin frekar í að gera Gerðahrepp eftirsóknarverðan stað fyrir fólk að búa á. Fólk gæti síðan starfað í nágrannabyggðarlögunum. En til þess að laða að fólk þarf sveitarfélagið að bjóða góða þjónustu. Spurningin er þá hvort Gerðahreppur laði til sín fólk við núerandi aðstæður. Margt bendir til þess að Gerðahrepps bíði erfíðir tímar, m.a. vegna breytinga í um- hverfinu og umfangsmikilla verkefna sem þarf að takast á við. Aftur á móti er ekkert sem bendir til þess að Gerðahreppur geti ekki staðið óstuddur um ókomna tíð. Við þær aðstæður þá er hinsvegar ólíklegt að framundan sé tími uppbygg- ingar, heldur frekar tími þar sem reynt er að halda í horfinu, hugsanlega tími hnignunar. J D AD MANNA NJÁLL BENEDIKTSSON FYRRV. FRAMKVÆMDASTJÓRI í GARÐI: Garðmenn engnr miélkuikýr fyrir nágrannasveih'rnar Njáll Benediktsson fyrrverandi framkvaemdastjóri í Garði er andstæðingur sameiningar og vill ekki sjá sameiningu Gerðahrepps, hvorki við Sandgerði né Reykjanesbæ. „Garðmenn eru engar mjólkurkvr fyrir nágrannasveitirnar og ég vil að Garðurinn verði sjálf- stæður áfram“, sagði Njáll í samtali við Víkurfréttir. Við heimsóttum Njál um síðustu helgi og þar fræddi hann okkur um landamerkjamál og lét gamntinn geysa um sameingingarmál. Njáll vill ekki að Sandgerðingum eða Reykjanesbæingum sé fært það ntikla land sem Gerða- hreppur á, á silfurfati. Samstarf á síbustu öld Samstarf sveitarfélaga var mikið á síðari hluta síðustu aldar. Þannig voru Miðnes- ingar, Garðmenn, Leimmenn og Keflvíkingar sameinaðir undir merki Rosmhvalanes- hrepps. Þegar Miðnesingar drógu sig út úr samstarfinu árið 1887 til að stofna Mið- neshrepp voru dregin land- amerki sem mörkuðu Gerða- hrepp hinn eldri. „Landamerkin vom dregin ffá Litlu-flös á Skaga eftir hlöðnum garði í Beinhól. Þaðan í baðstofuna Skálareyki og bein lína þaðan í vörðuna Kölku á Háaleiti. Síðan var dregin lína frá Kölku niður í DUUS gróf vestan Keflavík- ur“, segir Njáll og bætir við: „Það var síðan árið 1908 sem Keflvíkingar klufu sig frá Garð- og Leirumönnum og stofnuðu Keflavíkurhrepp en Garð- og Leirumenn samein- uðust undir nafni Gerða- hrepps, sem fagnaði 90 ára afmæli á síðasta ári. Þrátt fyrir að Keflvíkingar hefðu klofið sig úr sam- starfinu var landssvæði Gerðahrepps áfram það sama og byggðin á Bergi heyrði undir Gerðahrepp allt til ársins 1966 að Keflvíkingar fengu alþingismenn til að taka eignarnámi hluta af Gerða- hreppi. Njáll var á þeim ámm að hefja afskipti af sveitar- stjórnarmálum en hann átti sæti í hreppsnefnd Gerða- hreppsárin 1966-1970. Ekki sameining næstu lOárin „Eg er Garðmaður og vil vera það áfram. Ég vil ekki að Garðmenn verði mjólkurkýr fyrir nágrannabyggðarlögin. Þess vegna er ég á móti þess- ari hugsanlegu sameiningu. Sameining sveitarfélaga er mikið tilfinningamál og ég veit að gamlir innfæddir Garðmenn geta ekki sætt sig við sameiningu, enda ástæðu- laust að sameinast. Það verður ekki sameining næstu 10 árin. Ekki á meðan þessir gömlu Garðmenn lifa. Gerðahreppur á töluvert mikið af eignarlandi sem væri fært öðru sveitarfélagi á silfurfati með sameiningu", segir Njáll og bendir á að t.a.m. eigi Gerðahreppur land Gufuskála í Leiru sem sé eitt fallegasta byggingarland á Suðumesjum með frábæru útsýni yfir Faxaflóa, Reykjanesfjall- garðinn, Snæfellsjökul, fjall- garða Snæfellsnes, Hafnarfjall og Esjuna. Njáll bendir einnig á að Gerðahreppur eigi fleiri landsspildur, bæði í Garði og Leiru. Þannig eigi Gerða- hreppur land við höfnina, undir íþróttahúsinu og sund- lauginni og hafi m.a. keypt land í Utskálalandi af sjálfum Pétri postula en það sé til skjalfest á Landsbókasafni að Pétur postuli eigi land í Gerðahreppi. Meiri fískvinnslu Um mannlífið í Garði sagði Njáll að það blómstri, enda væri allt til staðar sem íbúamir þörfnuðust. „Hér er verið að byggja nýja leikskóla og hér er myndarlegur skóli ásamt íþróttahúsi og sundlaug. Ég get ekki séð að þjónustan hér í Garðinum sé eitthvað lakari en í nálægum sveitarfé- lögum“. Njáll vill þó sjá fleiri öflugri fyrirtæki í fiskvinnslu í Garðinum. „Hér er þörf á smábátahöfn og helst vildi ég sjá hana grafna inn í síkið. Það er ekkert meira verk en | þegar Grindvíkingar grófu sig inn í Hópið. Þá segir Njáll að það eigi að fá fólk til að setjast að í Garðinum með því að bjóða upp á ódýrt byggingar- | land. Kýs frekar Sandgerbi Að endingu spurðum við Njál þeirrar spurningar hvorn valkostinn hann tæki ef Gerðahreppi yrði gert að sameinast annað hvort Sand- gerði eða Reykjanesbæ: ,Þ>á vildi ég heldur sameinast Sandgerði. Ég tel þá betri kost en ég vona að það þurfí ekki að koma til þess að við sameinums öðru sveitarfé- I lagi“, sagði Njáll Benedikts- son fyrrum framkvæmdastjóri í Garði að endingu. „Skýrslan er að mörgu leiti góð en hún er bara hálfunnin“, sagði Sigurður Valur Asbjarnarson, bæjarstjóri í Sandgerði eftir borgarafund í Garði. TEXTI OG MYNDIR: HILMAR BRAGI Víkurfréttir 11

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.