Víkurfréttir - 21.01.1999, Qupperneq 18
M Jón Gunnarsson, þátttakandi í prófkjöri samfylkingarinnan_
Hvernig stendur Reykjaneskjördæmi
Þegar staða Re.vkjanes-
kjördæmis er skoðuð í
samanburði við önnur
kjördæmi á íslandi þá
kemur vmislegt fróðlegt í Ijós.
Þetta næsttjölmennasta
kjördæmi landsins virðist
engan vegin koma ár sinni
eins vel fyrir borð og önnur
kjördæmi og það eru mý-
mörg dæmi sem sanna það.
Það er ótrúlegt að fulltrúar
okkar á Alþingi hafi ekki staðið
fyrir hávæmm mótmælum
innan sinna flokka vegna þess
misræmis sem verið hefur á
atkvæðavægi kjósanda í kjör-
dæmimu miðað við hin lands-
byggðarkjördæmin. Það getur
verið að einhver segi að þetta
| skipti ákaflega litlu máli, en
eftir að hafa starfað sem sveit-
arstjómarmaður hér á svæðinu
undanfarin 12 ár þá er alveg
Ijóst í mínum huga að vegur
þessa kjördæmis gæti verið
allur annar en hann er f dag.
það er nánast sama hvaða
málaflokkur er skoðaður,
Reykjaneskjördæmi stendur illa
í flestum þeim málaflokkum
sem Alþingi hefur með að gera.
Samgöngumál.
Framlög ríkisins til vegamála í
Reykjaneskjördæmi em
skammarlega lítil þegar þau em
borin saman við önnur kjör-
dæmi. Eðlilegar og sjálfsagðar
framkvæmdir eins og tvöföldun
Reykjanesbrautar em aftur og
aftur kosningaloforð þing-
manna fyrir alþingiskosningar
en ekkert gerist. Mérertilefs
að samgönguæð annarsstaðar á
landinu með sama umferðar-
þunga og jafnmikilli slysatíðni
væri lengi í því ástandi sem
brautin er áður en þingmenn
þeirra kjördæma gripu í taum-
ana og tryggðu eðlilegar endur-
bætur. Suðurstrandarvegur milli
Grindavíkur og Þorlákshafhar
er annað dæmi um langþráðan
draum í vegamálum kjördæmis-
ins. Ef tillögur að breyttri kjör-
dæmaskipan verða samþykktar
og Suðurland og Suðumes
verða sama kjördæmið árið
2003, þá er alveg nauðsynlegt
að þessi tvö svæði verði tengd
með þeirri beinu tengingu sem
Suðurstrandarvegur er. Það
hlýtur að vera krafa íbúa í
Reykjaneskjördæmi að í sam-
göngumálum komi efndir og
athafnir í stað loforða.
Heilbrigðismál
Nokkuð hefur verið ritað um
stöðu heilbrigðismála á þessu
svæði. Allir þekkja þá miklu
vamarbaráttu sem í gangi hefur
verið við að viðhalda þjónustu-
stigi heilbrigðisstofhana í kjör-
dæminu. Það var erfitt hlutverk
að sitja í stjóm Heilsugæslu og
Sjúkrahúss Suðumesja, sem nú
hefur verið sameinað í eina
stofnun undir nafni Heilbrigðis-
stofnunar Suðumesja og horfa
upp á það gengdarlausa mis-
ræmi sem var á fjárveitingum
hingað í samanburði við aðrar
stofnanir á landsbyggðinni.
Allir muna stríðið við að fá
ríkisvaldið til að standa við lof-
orð sín um byggingu D-álmu
við sjúkrahúsið sem að endingu
vannst fyrir samstöðu íbúa og
sveitarstjómanna á Suður-
nesjum. Stjóm Heilbrigðis-
stofnunar Suðumesja hefur í
gegnum tíðina talað fyrir dauf-
um eymm ríkisvaldsins þegar
knúð var á um leiðréttingar á
rekstrargmnni og aflleysi þing-
manna var hrópandi.
Málefni fatlaðra.
Eins og flestum er kunnugt þá
hefur verið í umræðunni að
sveitarfélög taki við málefnum
fatlaðra frá ríkinu. I framhaldi
af þessu hefur verið gerð könn-
un á stöðu fatlaðra í kjördæm-
inu og samanburður gerður við
önnur kjördæmi. Iþessum
málaflokki eins og svo mörgum
öðrum sem ríkið hefur séð um
er niðurstaðan sláandi. Ríkis-
valdið hefur á engan hátt staðið
undir þeim skyldum sem lög
um málefni fatlaðra leggur því á
herðar. Mörghundmð milljónir
vantar upp á bæði til rekstrar og
fjárfestinga til að skyldur
samkvæmt lögunum séu upp-
fylltar. Reykjaneskjördæmi
stendur alveg skelfdega illa í
samanburði við önnur kjör-
dæmi í þesum málaflokki sem
og í mörgum öðmm.
Þessu þarf að breyta.
Það er ekkert náttúmlögmál að
Reykjaneskjördæmi skuli koma
jafhilla útúr samanburði við
önnur kjördæmi og raun ber
vitni. Það hljóta að vera á þessu
einhverjar aðrar skýringar. Það
er vitað, að á Alþingi fer ffarn
mikil hagsmunagæsla þing-
manna fyrir kjördæmi sín, við
getum verið ósátt við þetta kjör-
dæmapot eins og það hefur
verið kallað en það er deginum
ljósara að ef okkar þingmenn
beita ekki sömu aðferðum og
þingmenn annarra kjördæma þá
munum við bera skarðan hlut
frá borði. Það hefur einnig
komið í ljós á undanfomum
misserum að það virðist miklu
skipta, að kjördæmi hafi ráð-
herra í ríkisstjóm til að tryggja
hagsmuni sína.
Höfundur er þátttakandi
í prófkjöri samfylkingar sem
fram fer 5-6 febrúar nk.
og stefnir þar á 2. sæti listans.
Guðmundur Ámi Stefánsson alþingismaðun
SAMFYLKING
Á FULLRIFERÐ!
Samfylking Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og
Kvennalista er loks koniin á
beinu brautina. Eftir langar
og um margt erfiðar fæðing-
arhríðir er nú gatan greið til
kröftugrar og markvissrar
kosningabaráttu, þar sem
Samfylking jafnaðarstefnu,
félagshyggju og kvenfrelsis,
mun gera glögga grein fyrir
stefnumálum sínum og vera
sá valkostur sem fjölmargir
hafa beðið eftir í íslenskum
stjómmálum.
Nú stendur fyrir dyrum að
velja á og stilla upp fram-
boðslista Samfý'lkingarinnar í
Reykjaneskjördæmi og verð-
ur það gert með prófkjöri
5.og ó.febrúar næstkomandi.
Það er mikilvægt að vel takist
til og saman veljist góður og
dugmikill hópur fólks. Það
standa öll efni til þess, því nú
þegar er fyrirséð að fjöldi
góðra manna og kvenna gef-
ur kost á sér til setu á listan-
um. Þess vegna er ástæða til
að hvetja alla áhugamenn um
vöxt og viðgang jafnaðar-
stefnu og félagshyggju að
taka þátt í prófkjörinu.
TIL FORYSTU
Eg mun bjóða mig fram í
prófkjörinu og leita eftir
stuðningi til að leiða hinn
nýja lista Samfylkingarinnar í
góðri samvinnu við félaga
mína.
í þessu prótkjöri verður valin
ný forysta fyrir nýja stjórn-
málahreyfingu, sem byggir
að sönnu á gömlum og traust-
um grunni. Eg býð mig ekki
fram gegn einum né neinum,
heldur fyrst og síðast starfs-
krafta mína og stefhumið.
Prófkjör er lýðræðisleg leið,
þar sem stuðningsmenn raða
samherjum á framboðslista.
ÖFLUGUR VALKOSTUR
Samfylking jafnaðar og fé-
lagshyggju er mætt til leiks -
eini raunhæfi valkostur
launafólks og alls almenn-
ings, valkostur gegn sérhags-
munum og blindri markaðs-
hyggju núverandi stjórnar-
flokka, valkostur almanna-
heilla, þar sem raunverulegt
frelsi einstaklingsins í einka-
ltfi sem og í atvinnulífi er í
heiðri haft, en samhjálp og
samstaða er jafnframt ríkj-
andi.
Oft var þörf - nú er nauðsyn.
Tökum höndum saman - fyrst
í prófkjörinu. svo í kosning-
unum og síðan í samvinnu
um að endurskapa íslenskt
þjóðfélag, jtar sem frelsið,
jafnréttið og bræðralagið eru í
öndvegi.
Guðmundur Arni
Stefánsson
alþingismaður.
ATTAVILLT I STAPA
6. FEBRÚAR
TIL LEKíU
I.ítil íbúð á góðum stað
í Keflavík. Aðeins reyk-
laust fólk. Góð umgengni
áskilin. Uppl. í síma 421-
2141.
3ja herb. íbúð
í Keflavík, einnig 3ja
lierb. íbúð í Garði. Uppl. í
síma 892-5123.
Mikið uppgerð íbúð
í gömlu húsi. Uppl. í síma
421-5693.
Itjört og góð 3ja herb.
íbúð
leiga kr. 35.000- pr mán.
með hússjóð. Leigist frá
og með 1. febrúar. Nafn
og símanúmer leggist inn
á skrifstofu Víkurfrétta
merkt: 3ja herb.
80 fermetra,
3ja herb. íbúð
á besta stað í Keflavík.
Uppl. ísíma 699-1596.
3ja herb. íbúð
í mjög góðu ástandi á
góðum stað í Keflavík.
Laus um næstu mánaðar-
mót. Ahugasamir leggi
inn nafn og símanúmer á
skrifstofu Víkurfrétta
merkt 3 HERBERGI.
ÓSKAST TIL LEIGU
4-5 herb. einbýlishús
eða sérhæð í minnst 2 ár.
Uppl. í síma 421-6350
Sigríður.
Hús cða íbúð
í tvö ár fyrir barnlaus
amerísk hjón í Keflavík
eða Njarðvík. Góðri
umgengni heitið. Uppl.
hjá David í vs. 425-2228
og hs. 425-7858.
Einstæð móðir
óskar eftir 4ra herb. íbúð í
Keflavík sem fyrst. Uppl.
í síma 436-1236.
Lítil íbúð eða herbergi.
Til sölu fá sama stað
nýlegt furuhjónarúm á 40
þús. Uppl. í síma 421-
4086 og 899-3875.
TIL SÖLU
Fyrirtæki
Æfingarbekkir Dísu,
(slender you 6 bekkir).
Uppl. í síma 421-3405.
Whirpool ísskápur
m/frystihólfi, er enn í
ábyrgð. Hæð 85cm. Verð
ca 15.000.- Uppl. í síma
421- 5354.
Vel með farin Pedigree
barnavagn. Verð kr.
12.000.- Uppl. í síma
422- 7050.
Daihatsu Charade CX
árg. '88 ekinn 164 þús.
Verð 80.000,- Uppl. í
síma 422-7254.
Góð 3ja herb. íbúð
í Keflavík, nýtt á gólfum
ný eldhúsinnrétting. Gott
verð, góðir greiðslu-
skilmálar. Uppl. í síma
486-5521 og 895-8414.
Mitchelin sumardekk
185/65 R14“ og álfelgur
undan Toyota Corollu,
einnig felgur undan Hi
lux DC. Uppl. í síma 421-
3701.
ÓSKAST
PC tölva,
pentium 133 til 200Mhz.
Uppl. í síma 421-6303
millikl. 07-12.
ATVINNA
Starfsmenn óskast
í fiskvinnslu. Uppl. í síma
421-7484 og 899-8033.
BARNAPÖSSUN
Get tekið að mér börn
hálfan eða allan daginn.
Skiptipössun kemur líka
til greina. Uppl. í síma
421-2182.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Smábarnaskór
svartur lakkskór, upp-
reimaður nr.3. er í
óskilum á Víkurfréttum.
ÝMISLEGT
Húshjálp
Get tekið að mér þrif á
heimilum frá 8-12 á há-
degi 1 sinni í viku eða
oftar. Einnig hálfs-
mánaðarlega. Uppl. í
síma 421-5639, 422-7259
og 699-5639.
Oska eftir ræstingu
eftir hádegi eða tek að
mér gæslu á börnum eftir
hádegi. Uppl. í síma 421-
3263 eftir kl.20.
Ert þú búin að prófa
allt? Viltu láta þér líða
vel og grennast á sama
tíma? Höfum vörur sem
skila 98% árangri og
læknar mæla með. Stuðn-
ingur og persónuleg þjón-
usta 100% trúnaður. Póst-
kröfuþjónusta. Uppl. í
síma 897-4512 eftir kl. 18.
virka daga og allar helgar.
Þóra og Bjarki.
18
Víkurfréttir