Víkurfréttir - 21.01.1999, Qupperneq 19
Góður stuðningur
Knattborðsstofa Suðurnesja færði
Þroskahjálp á Suðurnesjum og
íþróttafélaginu NES 46.000 kr.
stuðning á dögunum. Peningarnir
eru borðaleiga KBS í tólf daga fyrir
og eftir jól.
Það var Guðbjörn Gunnarsson á
KBS sem afhenti Gísla Jóhannssyni
formanni Þroskahjálpar peninginn.
KallaOur „Pallister
11
Páll Axel Vilbergs-
son, leikmaður
Grindvíkinga í
körfuknattleik
hefur fengið mikla
umfjöllun í fjöl-
miðlum undanfar-
ið bæði vegna
góðrar frammi-
stöðu og vegna
mikillar umræðu
um meinta lyfja-
misnotkun hans.
Hann undirgekkst
lyfjaprót eftir úr-
slitaleik Eggjabikarkeppninnar
og skömmu síðar varð altalað
að leikmaður Grindvíkinga
hefði fallið á lyfjaprófí. Síðan
það gerðist hafa fjölmiðlar farið
hamförum og mikil umfjöllun
um lyfjaprófun ISI almennt og
refsingar við misnotkun hor-
mónalyfja. Sjálfur hefur ekkert
birst frá Páli sjálfum enda
fjölmiðlar varast að nefha hann
á nafn en hvað fmnst honum
um þetta mál allt saman. ..Það
kom gnðarlega á óvart og varð
mér mikið áfall þegar Sigurður
frá ISI hringdi í mig og sagði
mér að það hefðu greinst ólög-
leg lyf í mér. Mér var kynnt að
karlhormónamagnið (testerer-
one) í mér hefði mælst 6,9 á
móti einum en innan við 1%
karlmanna hefði svo hátt magn
af eðlilegum ástæðum.Eg var
boðaður í annað lyfjapróf og
niðurstaðan úr því var 4,6 á
moti einum sem
skv. upplýsingum
mínum er eðlileg
sveifla. Ekki
nægði þetta og því
var tekið einn eitt
sýnið og niður-
staða ætti að birt-
ast einhvem næstu
daga. Strax eftir
fyrstu niðurstöður
spurðu ÍSÍ-menn
mig hvort það
væri ekki lagi að
kynna fjölmiðlum
stöðuna sem mér fannst mjög
eðlilegt en umfjöllunin hefur
farið út fyrir allan þjófabálk.
Héma heima í Grindavík hafa
menn enga trú á að ég hafi haft
rangt við en þessa langa bið
eftir lokaniðurstöðu er farin að
taka á taugamar og umfjöllun
fjölmiðla ekki til þess fallin að
bæta líðanina. Það jákvæða er
að ég hef ekki orðið fyrir neinu
áreiti frá öðrum körfuknatt-
leiksmönnum og þetta mál allt
gleymist þegar í leikinn er
komið. Eg óttast það helst að
öll þessi neikvæða umfjöllun
hafi áhrif á möguleika mína á
því að fá tækifæri með lands-
liðinu eða öðrum úrvalsliðum
KKÍ.
Nú settir þú íslandsmet í skor-
uðum þriggja stiga körfum og
nýtingu gegn Val á dögunum.
Vom þetta einhver skilaboð til
þeirra sem völdu stjömuliðið?
„Nei, nei, ég ætlaði meira að
segja ekkert að vera að skjóta
þriggja stiga skotum í þessum
leik heldur einbeita mér að því
að leika inni í teignum. En svo
hitti í ég úr fyrstu skotunum og
þá var ekkert annað að gera en
að halda áfram að skjóta. Mér
kom aldrei til hugar að ég væri
að slá eitthvað met.”
Ertu besta íslenska langskyttan í
dag? „Ég er það ef lið halda
áfram að skilja mig eftir í
opnum skotfæmm". JAK
Páll Axel með 41 stig
Páll Axel Vilbergsson sýndi vanþóknun sína á vali leikmanna
til þátttöku í Stjömuleik KKÍ með því að skora 41 stig gegn
Valsmönnum og slá met í fjölda ltriggja stiga karfa (12/15) og
nýtingu (80%) hjá íslenskum leikmanni í úrvalsdeildinni.
Grindvíkingar sigmðu örugglega 94-110 og alls skomðu þeir
úr 24 þriggja stiga skotum (72 súg) í leiknum.
VEISLA HJA DAM0N AISAFIRÐI
Áður en fólk var alveg búið að
átta sig á afreki Páls í
Valsheimilinu lögðu Keflvík-
ingar í óvissuferð á Isafjörð.
Þeir vom án Fals Harðarsonar
sem fékk frí af persónulegum
ástæðum en sigruðu santt
örugglega 88-111 í leik þar
sem Danton Johnson skoraði
fleiri stig en ntargir ntinni spá-
rnenn skora á heilu tímabili
eða 62 samtals. Það var ekki
allt því hann skoraði úr 14/18
þriggja stiga skotum og 25
stig í röð í upphafi seinni
hálfleik.
„Þetta var bara einn af þessum
dögum. Isfirðingar gerðu
engar breytingar á varnar-
leiknum þrátt fyrir að ég byr-
jaði afar vel, bökkuðu of langt
frá ntér og ég hélt bara áfram
að skjóta og skora. Ég skil
eiginlega ekki hvað fyrir jteim
vakti en hvað sem það var þá
gekk það engan veginn upp að
þessu sinni. Þetta var alveg
einstakt og ég hef aldrei áður
skorað jafn mikið í einum leik.
Það væri gaman að detta í
svona ham fyrir framan okkar
áhorfendur", sagði Damon í
samtali við blaðið.
Bílstjóri óskast
S.B.K. hf óskar eftir bílstjóra í fullt
starf, sem felst í akstri strætis-
vagna, hópferdabifreida o.fl.
Nánari upplýsingar á staðnum
hjá Einari og Sigurði.
S.B.K. er elsta fyrirtæki landsins í hópferdaakstri.
Fyrirtækid sinnir m.a. akstri strætisvagna í
Reykjanesbæ, akstri skólafólks til og frá nágranna-
byggðunum, áætlunarakstri til Höfuðborgarsvæðisins
og um Suðurnes. Einnig hópferðir með íslenska og
erlenda ferðamenn um allt land. o.fl.
S.B.K. hf.
Grófinni 2-4,
230 Keflavík.
Sími 421 5551.
Er l/Vindows uppsetningin
eða tölvan biluð ?
Viltu láta lagfæra bilunina.
Hringdu í síma 42 1 424 7
eftir kl. 18 og frá kl. 10 um helgar
Athugiði
Uppfæri gamlar tölvur, þannig
að gamla tölvan verður eins og ný!
Hef einnig hugbúnað til sölu.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
ATAK-ATAK
Er með til sölu frábæra
fæðubótaefnið. Góður árangur
- góð eftirfylgni. Vísa/Euro,
póstsendi.
Sími 895-5695.
Láttu þér líða vel.
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
J ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
DHL-deildin
Keflavík-Skallagrímur 21. janúar
klukkan 20:00 í íþróttahúsinu
í Keflavík.
Landsbankinn
Langbestt&p
Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Simi 421 4777
Víkurfréttir
19