Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 15.04.1999, Page 12

Víkurfréttir - 15.04.1999, Page 12
II Fegtirðarsamkeppni Suðurnesja 1999 haldin í veitingahúsinu Stapa um síðustu helgi:_ Keflvísk fegurðardrottning 1999 Fegurðarsamkeppni Suðurnesja er stærsta og glæsilegasta skemmtikvöld hvers árs hér á Suðurnesjum. Glæsilegt fólk hvert sem lit- ið er og keppendurnir sjálfir glæsilegastir allra. Hildigunnur Guðmunds- dóttir, 19 ára Keflavíkur- mær, sigraði 12 stallsystur sínar með glæsibrag fyrir fullum Stapa. I öðru sæti varð önnur Keflavíkurmær, Bjarnheiður Hanncsdóttir, en í því þriðja Njarðvíking- urinn Eva Stefánsdóttir. Stúlkurnar þrjár verða full- trúar Suðurnesja í Fegurð- arsamkeppni íslands. Vegleg verðlaun Ungfrú Suðumes, Hildigunn- ur Guðmundsdóttir, fær að launum 100 þúsund krónur frá Sparisjóðnum í Keflavík, demantshring frá Georg V. Hannah, Nike íþróttagalla frá K-sport, árskort í líkamsrækt og ljós frá Lífsstil, ókeypis þjónustu í hár og neglur í eitt ár og Fudge snyrtivörur frá Art húsinu, nærfatasett að eig- in vali frá Smart, glæsilegan gjafapakka frá Guerlain og Apóteki Keflavíkur og veg- lega gjöf frá No Name og Smart. Þá fær hún veglega gjöf frá Oroblu fyrir að vera með fallegustu fótleggi á Suð- umesjum þetta árið. Bjamheiður Hannesdóttir fær þriggja mánaða likamsræktar- kort frá Lífsstfl, fataúttekt frá Kóda, fría þjónustu í hár á neglur í mánuð og Fudge snyrtivörur frá Art húsinu, nærfatasett að eigin vali frá Smart og glæsilegan gjafa- pakka frá Guerlain og Apóteki Keflavíkur. Eva Stefánsdóttir fær þriggja mánaða likamsræktarkort frá Lífsstfl, fría þjónustu í hár á neglur í mánuð og Fudge snyrtivörur frá Art húsinu, nærfatasett að eigin vali frá Smart og glæsilegan gjafa- pakka frá Guerlain og Apóteki Keflavíkur. K-sportstúlkan, Kristín Marfa Birgisdóttir, fær 50 þúsund króna vöruúttekt hjá K-sport. Verðlaunahafar kvöldsins Fegurðardrottning Suðumesja 1999 HildigunnurGuð- mundsdóttir 2. sætiBjamheiður Hannes- dóttir 3. sætiEva Stefánsdóttir Ljösmyndafyrirsæta Suður- nesja 1999 Matthildur Magn- úsdóttir Vinsælasta stúlkan Kristín María Birgisdóttir Fegurstu fótleggirnir Hildigunnur Guðmundsdóttir K-sportstúlka Suðurnesja 1999 Kristín María Birgis- dóttir Allir keppendur leystir út með gjöfum Allir þátttakendur í keppninni fengu Revlon sturtusápu og body lotion frá Revlon og Smart, gjafapakka frá Guerla- in og Apóteki Keflavíkur, Fila sundbol ffá K-sport, húsnyrti- vömr frá Bláa Lóninu, blóm- vendi frá Blómabúð Guðrúnar og sokkabuxur og boli frá Oroblu. Ekki aðeins keppendur sem fengu gjafir Tuttugu fyrstu konumar sem mættu í Stapann fengu glæsi- lega gjöf sturtusápu og Body lotion frá Revlon og Smart. Glæsileg umgjörð mörgum að þakka Aðstandendur keppninnar, veitinga- og tæknimenn Stapans og kynnirinn Freyr Sverrisson eiga öll hrós skilið fyrir glæsilega og vel heppn- aða kvöldstund glansliðsins á Suðumesjum. r n um í bsUm á mánudagsmorgni Ungfrú Suðurnes, Hildi- gunnur Guðmunds- dóttir, vinnur hjá Fisk- þurrkun ehf. í Garði á daginn en setur stefnuna á öldungardeild Fjölbrautar- skóla Suðurnesja eða lík- amsræktarstöðina Lífsstíl á kvöldin. Hvernig upplifðir þú keppn- ina og kvöldið? „Ég þurfti nú að hugsa mig vel um áður en ég sló til og ákváð að taka þátt. Þá lagði ég upp til að eiga skemmtilegar minningar og mögulega eign- ast nýjar vinkonur. Annars var þetta mikil breyting fyrir mig. Ég hafði aldrei fylgst með svona keppni og aldrei stund- að líkamsrækt utan leikfimi í skóla.“ Varstu búinn að eyða öllum verðlaunapeningunum í huganum áður en úrslitin urðu Ijós? „Ég pældi í því einhvem tím- ann hvemig væri að vinna en ýtti því strax frá mér aftur og reyndi bara að njóta undirbún- ingstímans og félagsskaparins því æfingarnar voru mjög skemmtilegar." Var erfitt að mæta í vinnuna á mánudagsmorgni? „Nei, sunnudagurinn var eig- inlega erfiðari. Það stoppaði ekki síminn heima og húsið hálffy lltist af blómum. Mamma og pabbi eru stolt af sinni og það var æðislegt að Sara systir skyldi vera heima. I vinnunni var síðan tekið á móti mér með lófaklappi.“ Þátttaka í fegurðarsam- keppni Islands er framund- an. Breytir þessi titill lífi þínu? „Það held ég ekki þó mögu- lega verði ég eitthvað að minnka við mig vinnuna fram að lokakeppninni. Ætli ég fái ekki einhverja athygli í smá- tíma en sfðan fara hlutimir aft- ur að ganga sinn vanagang. Nú ætla ég bara að vera góð við sjálfa mig í nokkra daga og stunda svo æfingar stíft ffam að keppninni." Er drottningin ólofuö? „Já, en ég á mér kærasta. Hann heitir Einar Lars Jóns- son kallaður Lassi. Við erum enn að kynnast og erunt ekki að flana að einu eða neinu.“ Að hverju stefnir Hildigunn- ur Guðmundsdóttir? Stúdentsprófi, nárnið er aðal- atriðið í dag og draumurinn að geta lokið því í dagskólanunt því það er erfitt að vinna allan daginn og fara í skólann á kvöldin. Viðtal: jak. Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.