Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 15.04.1999, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 15.04.1999, Qupperneq 15
Stæltir stódhestar Leikfélags Keflavíkur á æfingu í fyrrakvöld. Strákarnir láta allt flakka í sýningunni og þessi Ijósmynd segir meira en mörg ord um hvad gerist ísýningunni. Vid gefum myndinni „þrjár stjörnur" þar sem Víkurfréttir eru blad fyrir alla aldurshópa. Sýningin Stæltir stódhestar er hins vegar ekki ætlud börnum. I Stæltir stóðhestar í Frumleikhúsinu á morgun: Stórátðk fypip alla leikara að leika naktip! Leikfélag Keflavíkur frumsýnir á morgun verkið Stæltir stóðhestar sem er lausleg þýðing og staðfæring þeirra Júlíusar Guðmundssonar og Omars Ólafssonar á söngleiknum Lady’s night eftir Anthony Mcarten og Stephen Sinclair. Eins og nafnið ber með sér er hér engin lognmolla á ferð- inni heldur hressileg sýning þar sem leikendur fara fram á ystu nöf. Alls taka 14 leik- endur þátt í sýningunni en stærstu hlutverkin eru í hönd- um sex pilta sem mynda vinahóp í kröggum. Margir þeirra eru atvinnulausir og jregar að þeir heyra af „strip- showi” í bænum sjá þeir fram á skjótfenginn gróða.„Strákamir fara alla leið og að lokum standa þeir berstrípaðir”, sagði Andrés Sigurvinsson leikstjóri sýningarinnar sem tók þó fram um leið að takmarkið sé ekki klám heldur erótík. „Við fylgjum sýningunni ein- faldlega eftir”. Sýningin hefur þróast í samvinnu leikhópsins og þýðenda og er því að hluta til orðin sjálf- stætt verk. Að sögn Andrésar hafa æfingar gengið vel en þær hafa verið keyrðar á met- tíma vegna veikinda leik- stjórans. „Hér hafa allir lagst á eitt til þess að gera þetta sem best úr garði. Auðvitað er það meira mál þegar á að fækka fötum og það er stórá- tak fyrir alla leikara að leika naktiren æfmgarhafa gengið vel og það hafa allir talað tæpitungulaust um þessa hluti”. Andrés hefur áður leikstýrt Fréttaveitu Suðumesja hjá L.K. árið 1991 og starfaði hann með leikfélagi Fjölbrautaskóla Suðumesja, Vox Arena á síðasta ári. „Við höfum unnið af fullum krafti í mánuð og ætlum okkur að koma upp góðri sýningu. Þrátt fyrir að hér séu margir ungir og óreyndir leikarar er hörkulið hér í Keflavík og Keflvík- ingar búa hér að góðu „atvinnuáhugaleikhúsi”. Verkefnaval L.K. hefur verið fjölbreytt og metnaðarfullt en helst hefur vantað að bæjar- búar sýni því starfi sem hér fer fram nægan áhuga”. Ahugann vantar þó ekki á Stæltum stóðhestum og ætti fólk að tryggja sér miða sem fyrst. Að sögn Andrésar er sýningin fyrir alla aldurshópa en fyrst og fremst samfelld skemmtun þar sem allt getur gerst. Hulda leikstýrði Keflavíkurrevíunni Það skal tekið fram að það var Hulda Ólafsdóttir sem leik- stýrði fyrstu Keflavíkurrevíunni hjá L.K. fyrir 10 árum síðan en ekki Andrés Sigurvinsson eins og sagt var í síðasta blaði Víkurfrétta. Alls sóttu um 2.800 manns þá sýningu sem sló öll J aðsóknarmet. Þrír reyna við Leiklistarskólann Það er mikið af hæfileikafólki hjá Leikfélagi Keflavíkur en um þessar mundir þreyta þrír félagar þess inntökupróf í Leiklistarskóla Islands og em komnir í 30 manna úrtökuhóp. Það eru þau Davíð Guðbrandsson, Elva Sif Grétarsdóttir og Einar Lars Jónsson. kvenbuxum fimmtud. fqs£ud! og laugard 1 afslA rMM Nýtt korta^waBil Opið laucjardaoaTmíl3 lúngötu 18 - KeílavíÍc'- sínti 42 f5099 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.