Víkurfréttir - 24.06.1999, Qupperneq 10
Raðauglýsingar
KEFLAVIK
Ifrióttar oy untfMetufaúéíay
Sundnámskeið
Innritun á seinna sundnámskeið
Sunddeildar Keflavíkur sem hefst
28. júní - 16. júlí fer fram
fimmtudaginn 24. júní og föstu-
daginn 25. júní frá kl. 18-20 í
K - húsinu, Sunnubraut 32.
Upplýsingar í síma 893 1895 allan
daginn og 421 4389 eftir kl. 19.
Stjórnin
A tvinna
Vanir byggingaverkamenn óskast til
starfa á Keflavíkurflugvelli.
Upplýsingar gefnar í síma 425 7801.
Istak hf.
Keflavíkurflugvelli
REYKJ ANESBÆR
Atvinna
Vantar starfskrafta í tímabundið
starf við Upplýsingamiðstöð ferða-
manna í Leifsstöð.
Vinnutími frá 06.00 til 10.00 fimm
daga í viku og einnig f vaktavinnu
vegna sumarafleysinga
Góð enskukunnátta og norður-
landamál skilyrði. Önnur tungumál
til viðbótar er kostur.
Upplýsingar á Markaðs- og
atvinnumálaskrifstofu,
Johan D. Hafnargötu 57
eða í síma 421 6760
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa
Reykjanesbæjar
Hafnargötu 57
230 Keflavík, Reykjanesbæ.
Framkvæmdir í Reykjanesbæ fyrir
Framkvæmdir við Heiðarskðla ganga vél og er áætiað að
hann opni á tilsettum tíma síðustu vikuna í ágúst.
2,3 milljarða
Gríðarleg framkvæmdagleði einkennir Reykjanesbæ á þessa dagana og er Reykjanesbær
sjálfur einn stærsti framkvæmdaaöilinn. VF tóku púlsinn á stöðu mála og ræddu við for-
svarsmenn hinna ýmsu framkvæmda um áætlaðar kostnaðartölur. Reykjanesbær einn og
sér stendur að framkvæmdum fyrir u.þ.b. einn milljarð sex hundruð sextíu og þrjár millj-
ónir, Keflavíkurkirkja 220 milljónir og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 382 inilljónir.
Revkjanesbær stendur
sannarlega ekki með hend-
ur í vösuin í framkvæmda-
niálum þessa dagana. Hver
stórframkvæmdin rekur
aðra og bera Heiðarskóli og
Fjölnota íþróttahús hæst.
Auk Heiðarskóla er verið
að semja um endurbætur á
Myllubakkaskóla, Holta-
skóla og Njarðvíkurskóla
vegna einsetningar grunn-
skólanna.
Skúli Skúlason, formaður
Stýrihóps um einsetningu
grunnskóla Reykjanesbæj-
ar, sagði að áætla mætti að
um 1,2 milljörðum yrði var-
ið til skólamál vegna ein-
setningarinnar.
„Það er alltaf vandasamt að
stilla af verkefni hins opinbera
og skynsamlegt getur verið að
halda að sér höndum á meðan
þensla er á almennum mark-
að. Fyrir rúmu ári síðan var
stefnan sett á að ljúka fram-
kvæmdum vegna einsetning-
arinnar á tveimur árum. Þetta
viðamiklum framkvæmdum
er ekki auðvelt að fresta þrátt
fyrir mikla spennu á verktaka-
markaðnum nú í sumar. Þá er
viðbúið að strax 1. september
dragi úr þessari spennu því þá
lýkur ýmsum stórum verkefn-
um. lnnan þessarar áætluðu
heildartölu (1,2 milljarða) er
fleira en byggingarkostnaður
því einnig er um töluvert
magn búnaðar að ræða, t.a.m.
er gert ráð fyrir tölvu í flestar
skólastofur auk lóðarfram-
kvæmda. Einnig er áætlað
u.þ.b. 10 milljónum til að
bæta aðgengi fatlaðra að
íþróttahúsi Njarðvíkurskóla.
Þegar upp er staðið er æski-
legt að skólamir fjórir verði
sambærilegir, annað væri
ósanngjarnt gagnvart fbúum
bæjarins. Vegna langskipting-
ar fara líka yngri nemendur í
Holtaskóla og eldri í Myllu-
bakkaskóla. Því fylgja eðli-
lega kvaðir um um aðbúnað.“
Nú er þenslan í þjóðfélaginu
mál málanna í dag. Hefði
ekki verið ráð að fresta ein-
setningu grunnskólanna þar
til aðstæður breytast?
„Skólamál eru, til lengri tíma
litið, homsteinn hvers samfé-
lags og það er mikilvægt að
við séum með ömgg og metn-
aðarfull áform í skólamálum.
Það em mikilsvert þeim sem
hér búa sem og þungviktar-
mál í huga þeirra sem hingað
vilja flytja. Án nokkurrar sér-
stakrar spennu á vinnumark-
aði stefiiir í að skortur verði á
vinnuafli í Reykjanesbæ og
staða skólamála hefur mikil
áhrif á vilja fólks til að koma
og búa hér. Þar að auki ber
Reykjanesbæ lagaskylda til að
ljúka einsetningu grunnskól-
anna“ sagði Skúli Þ. Skúla-
son.
10
Víkurfréttir