Víkurfréttir - 26.08.1999, Blaðsíða 19
Ótrúleg óheppnl
OSIGRAÐIR ENN
Kcflvíkingar lögðu Valsmenn 3-
2 á útivelii með mörkum (iunn-
ars Oddssonar, Pórarins Krist-
jánssonar og Kristjáns Brooks
og eru enn ósigraðir í seinni
umferð Landssímadeildarinnar.
Keflvíkingar fengu næg mark-
tækifæri til að skora fleiri mörk
og mark Arnórs Guðjohnsen,
mínútu fyrir leikslok, skrifast á
Bjarka Guðmundsson. Stigin
þrjú telja og Kellvíkingar eru
komnir í 4. sæti deildarinnar
þótt vissulega sé styttra í botn-
baráttuna en á toppinn. Gunn-
ar Oddsson hefur nú skorað 3
mörk í síðustu 4 leikjum, öll eft-
ir að hafa verið settur til hliðar
sem þjálfari. VF spurði Gunnar
hvort hann gæti sjálfan sig í
hlutverki markhæsta leik-
manns deildarinnar, hefðu
þjálfarantálin ekki truflað hann
fyrstu 10 umferðirnar? „Að
gera mörk hefur aldrei verið
mín sérgrcin, eitt, tvö og stund-
um þrjú í 18 leikjum, en svona
getur þetta dottið fyrir mann.
Valsleikurinn var ekkert augna-
konfekt knattspyrnusérfræð-
ingsins, en þrjú mikilvæg stig
voru í höfn þegar flautað var til
leiksloka og það er það sem
skipti höfuðmáli.“
Grindvíkingar geta ekki þakkað
lukkudísunum 2-2 jafnteflið og
Víkingar geta þakkað Gunnari S.
Magnússyni, markverði, stigið
sem þeir höfðu með sér heim.
Grindvíkingar voru einráðir í
leiknum allt þar til Jón Grétar kom
Víkingum í 1-0. Víkingar komust
inn í leikinn en voru samt ljón-
heppnir þegar Jón Grétar bætti
öðm marki, eftir háðuglegan mis-
skilning vamarmanna Grindavik-
ur, við rétt fyrir hálfleik. A 57.
mínútu seinni hálfleiks setti
Jankowich, þjálfari Grindvíkinga,
þá Hjálmar Hallgrímsson og Duro
Mijuskovic inn á og breyttist leik-
ur heimamanna í kjölfarið. Grétar
minnkaði muninn úr vítaspymu á
71. mínútu og Hjálmar Hallgríms-
son jafnaði með sannkölluðu
þrumuskoti eftir þunga pressu
grindvískra og nokkrar homspym-
ur í röð þar sem boltinn hafði ratað
í slá og stöng Víkingsmarksins.
Eftir að komið var fram yfir
venjulegan leiktíma fengu Grind-
víkinga í tvígang tækifæri til að
skora en í bæði skipti skölluðu
Víkingar af marklínu.
„Þetta var alveg ótrúlegt á
lokamínútunum“ sagði marka-
skorarinn Hjálmar Hallgrímsson í
leikslok. ,J>að var alveg með ólík-
indum hvernig þeim tókst að
koma boltanum frá markinu hvað
eftir annað. Jú, jú það var sætt að
skora mark en betra hefði verið ef
markið hefði tryggt okkur þrjú
stig. Nú verðum við að breyta út
af venjunni og taka öll stigin í
Keflavík næsta laugardag."
Lögreglan í
Keflavík og
Grindavík tikynna
Skotvopna-
námskeið
Lögreglan mun standa fyrir
námskeidi í meðferð skotvopna í
byrjun september. Þeir sem eru
orðnir 20 ára og hafa hug á að
verða sér út um skotvopnaleyfi
snúi sér til varðstofu lögreglu-
stöðvarinnar í Keflavík eða
Grindavík þar sem umsóknareyðu-
blöð liggja frammi. Umsóknum
um þátttöku í skotvopnanámskeiði
ber að skila á lögreglustöðina í
Keflavík eða Grindavík sem fyrst.
Lögreglan í Keflavík og Grindavík.
Allt um torfæruna
www.vf.is
70
cvta
Knattspyrnudeild Keflavíkur
70 cvta
Fjölskyldudagur
Laugardaginn 28. ágúst - kl. 13.00
Samvinnuferðir
Landsýn
Lukkuhjól Samvinnuférða Landsýn
Kaffiveitingar í K-videó
Knattleikir og Þrautir
Keppni: Foreldrar - Börn
Barbaratrúður
og m.fl.
w
í% SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK
Stjörnusnakk
Langbest^j^
og svo leikur Keflavík - Grindavík í LandssímadeildinnTf,nar9ö,u62'230Ke,lavk Sími421 4777
Kl. 16.00 á Keflavíkurvelli
Víkurfréttir
19