Víkurfréttir - 21.10.1999, Síða 6
Slakur namsarangur grunnskolanema
“á Suöurnesjum áhyggjuefni á aöalfundi Sambands sveitarfélaga
Skólamál voru mikið rædd á
aðalfundi SSS um síðustu helgi.
Amalía Bjömsdóttir, lektor við
Kennaraháskóla íslands, fór yfrr
niðurstöður samræmdra prófa á
Suðumesjum í samanburði við
aðra landshluta, en árangur
nemenda á Suðumesjum er ekki
til að hrópa húrra fyrir.
Menntun foreldra skiptir
máli
Amalía sagði að námsárangur
barna væri yfirleitt slakari í
sjávarplássum en annars staðar,
en það væri samt ekkert nátt-
úrulögmál. Hún benti m.a. á að
frammistaða nemenda væri
tengd menntun foreldra, en að
því leyti væru Reykjavík og
Suðumes ólík svæði. Áhrif frá
umhverfinu gætu einnig skýrt
þennan mun. Atvinnuþátttaka
bama í sjávarplássum hefst fyrr
en annars staðar og böm sjá
snemma að þau geta haft góðar
tekjur án þess að fara í lengra
nám.
Verri en Vestfirðingar
Niðurstöður samræmdra prófa í
4. bekk á Suðurnesjum, eru
sambærilegar við aðra lands-
hluta, en í 7. bekk dragast Suð-
urnesin verulega aftur úr. Is-
lenskan kemur hræðilega illa út
í 7. bekk, en þar eru Suðumesin
í neðsta sæti yfir allt landið.
Suðumesin em svo í næst neðs-
ta sæti í stærðfræðinni.
Tungumálin koma betur út
Könnun á niðurstöðum sam-
ræmdra prófa f 10. bekk á tíma-
bilinu 1993-1999, sýnir að Suð-
urnesin eru enn í baráttu við
Vestfirði um botnsætið, því þar
eru Vestfirðir á botninum en
Suðumesin fylgja fast á hæla
þeirra.
Enn sem fyrr koma íslenskan
og stærðffæðin verst út. Enskan
og danskan koma reyndar ágæt-
lega út, og Amalía tók það sér-
staklega fram að góður dönsku-
kennari skipti öllu máli fyrir
góðan árangur í dönskunámi.
Jóhann Geirdal (J), bæjarfulltrúi
benti á að enskan kæmi e.t.v.
svona vel út vegna nálægðar
við vamarsvæðið, sem er stór
þáttur í atvinnulífi Suðumesja-
manna.
Vantar toppana
Amalía sagði það vera sérstakt
áhyggjuefni hversu hátt hlutfall
nemenda á Suðumesjum værn j
lægstu einkunnaflokkum. Á
landsvísu fá um 10% nemenda
einkunn á bilinu 1-2 en á Suð-
urnesjum er þetta hlutfall um
20%. Slíkur árangur lokar jafii-
vel ýmsum möguleikum, því
þegar undirstaðan er slök þá
gengur fólki oft illa í framhalds-
námi, hvort sem um er að ræða
bóknám eða iðnnám.
Framleiðum slaka drengi
Árangur drengja er slakari en
stúlkna í öllum greinum, miðað
við niðurstöður samræmdra
prófa í lO.bekk. Piltamir standa
sig þó ágætlega í stærðfræði,
miðað við stúlkurnar, en þær
halda samt forskotinu. Einn
fundarmaður nefndi það að ef
stúlkur væm slakari en drengir
þá væri löngu búið að grípa til
einhverra aðgerða til að jafna
stöðu kynjanna.
Mikið áhyggjuefni
Hjálmari Ámasyni, núverandi
alþingismanni og fyrrverandi
skólameistara F.S., var mikið
niðri fyrir þegar Amalía hafði
lokið við að kynna niðurstöður
sínar. Hann sagði að sveitarfé-
lög á Suðumesjum hefðu fengið
falleinkunn í skólamálumog
skoraði á sveitarstjómir á Suð-
urnesjum að hefja stórsókn í
menntun. „Annars töpum við
fyrir öðrum sveitarfélögum”,
sagði Hjálmar Ámason að end-
ingu.
Risaskip i vanda
Betur fór en á horfðist þegar pólskt flutningaskip, Kopalnea
Borynia, kont þversum inní Keflavíkurhöfn í gærdag. Skip-
ið, sem er 140 metrar að lengd, var að konia nteð salt fyrir
hafnarbakkann þegar slysið átti sér stað. Pegar það kom inn
í höfnina seig það á flotbryggjuna og rakst einnig utan í
vesturbryggjuna. Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri, sagði að
ekki væri búið að meta skemmdir á bryggjunni sem urðu
verulegar, en skipið skemmdist ekki.
Vi T.t. U ti UT . . .
Ekki hass í hafnasamlaginu!
Kjartan Már Kjartansson (B)
lagði fram tillögu, á bæjar-
stjórnarfundi sl. þriðjudag,
þess efnis að bæjarstjórn
Reykjanesbæjar beini þeim
tilmælum til stjómar Hafnar-
samlags Suðurnesja að það
breyti skammstöfun samlags-
Núverandi skammstöfun sam-
lagsins er H.A.S.S. og Kjartan
Már benti einnig á að netfang
þess væri hass@hass.is. Þetta
sagði hann að væri mjög svo
óviðeigandi í alla staði. Ellert
Eiríksson (D), bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, sagðist taka
heilshugar undir orði Kjart-
ans.Þorsteinn Erlingsson (D)
kom með þá hugmynd að
liægt væri að breyta skamm-
stöfuninni í H.A.F.S. og net-
fangið gæti e.t.v. verið
haf@haf.is, sem væri öllu
smekklegra.
Tillaga Kjartans Más var sam-
þykkt 11:0.
g(ME) dlEpiP
lítrar -1790.-
-2680.- I
dropinn
Hafnargötu 90 • Keflavík
sími 421 4790
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23,260 Njardvík, sími 4214717, fax 421 2777
Ritstjóri: Páli Ketilsson, sími 893 3717 • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárdarson, sími 898 2222 • Blaðamaður: Silja Dögg
Gunnarsdóttir • Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir, Kolbrún Pétursdóttir, Jónas Franz Sigurjónsson • Útlit, umbrot og litgreining:
Víkurfréttir ehf. • Filmuvinna og prentun: Stapaprent ehf. • Stafræn útgáfa: www.vf.is
6
Víkurfréttir